Morgunblaðið - 05.07.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Allar almennar bílaviðgerðir
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyr-
irskipaði í gær her sínum að sækja
áfram fram í orrustunni um Donbass,
eftir að Rússar náðu að hertaka Lís-
ítsjansk á sunnudaginn. Lúhansk-
hérað er nú nær allt á valdi Rússa,
sem hafa sett allan sinn kraft á síð-
ustu vikum í að hertaka Donbass-hér-
uðin tvö. Þá ráða þeir yfir um 60% af
Donetsk-héraði, einkum í suðri, en
gert er ráð fyrir að Rússar muni nú
herða á sókn sinni þar.
Markmið þeirra fyrst um sinn
verður að hertaka borgirnar Krama-
torsk og Slóvíansk, en fyrri tilraunir
Rússa til að sækja að þeim úr norðri
frá borginni Isíum sigldu allar í
strand. Fall Lúhansk-héraðs gefur
Rússum hins vegar færi á að sækja
einnig að borgunum úr norðaustri.
Serhí Haídaí, héraðsstjóri Lúh-
ansk-héraðs, sagði í gær að Úkraínu-
her væri enn að berjast í bænum Bi-
logorívka, skammt undan Lísítsjansk,
en tilgangur þeirrar varnarbaráttu
væri að kaupa tíma fyrir herinn til
þess að reisa sér varnarvirki.
Volodimír Selenskí, forseti Úkra-
ínu, ávarpaði þjóð sína að kvöldi
sunnudags, líkt og hann hefur gert á
hverju kvöldi frá því að innrásin hófst.
Hann hét því að Úkraínumenn
myndu snúa aftur til Lísítsjansk og
vinna aftur á sitt vald þau landsvæði
sem hefðu tapast.
„Og ef yfirherstjórn okkar dregur
lið til baka frá vissum stöðum víglín-
unnar, þar sem óvinurinn hefur mesta
yfirburði, og þetta á sérstaklega við
um Lísítsjansk, þýðir það einungis
eitt: við munum snúa aftur, þökk sé
herbrögðum okkar, og þökk sé aukn-
um aðgangi að nútímahergögnum,“
sagði Selenskí meðal annars í ræðu
sinni.
Hann hét því að Úkraína myndi
ekki gefast upp og sagði að Rússar
þyrftu að íhuga hvað þeir hefðu þurft
að fórna miklu fyrir lítinn ávinning,
sem brátt myndi verða enginn. Benti
Selenskí á að Úkraínuher væri nú að
ýta Rússum hægt og bítandi frá Kar-
kív-héraði og Kerson-héraði. Þá væri
Snákaeyja, þar sem Úkraínumenn
drógu fána sinn að húni í gær, gott
dæmi um staðfestu Úkraínu. „Sá dag-
ur mun renna upp að við segjum það
sama um Donbass.“
Ræða endurreisnaráætlun
Fulltrúar ýmissa ríkja og alþjóða-
stofnana hófu í gær ráðstefnu í borg-
inni Lugano í Sviss, sem ætlað er að
búa til áætlun um endurreisn Úkra-
ínu að stríði loknu.
Á ráðstefnunni verður reynt að
setja niður helstu grundvallaratriði
um hvernig þeirri endurreisn skuli
háttað, sem og hvaðan fjármagnið
eigi að koma, og hefur verið rætt um
að áætlunin verði á svipuðum nótum
og Marshall-aðstoðin sem Banda-
ríkjastjórn setti á fót eftir lok síðari
heimsstyrjaldar.
Denys Smíhal, forsætisráðherra
Úkraínu, ávarpaði ráðstefnuna í
gegnum fjarfundabúnað og sagði að
það væri sameiginleg ábyrgð allra
lýðræðisríkja að hjálpa til við upp-
bygginguna að stríði loknu.
Áætlaði hann að uppbyggingin
myndi kosta um 750 milljarða banda-
ríkjadala, eða sem nemur um 100.000
milljörðum íslenskra króna, og var
það miðað við þá eyðileggingu sem
stríðið hefur valdið til þessa. Sagði
Smíhal að hann vildi að þær eigur
Rússa, sem vestræn ríki hafa lagt
hald á, yrðu notaðar til þess að borga
fyrir endurreisnina eftir stríð.
Heitir því að Úkraínumenn snúi aftur
AFP/Genya Savilov
Stríð Íbúi í Kramatorsk hjólar framhjá hluta af eldflaug sem lenti í jörðu.
- Rússar náðu valdi á Lísítsjansk á sunnudaginn - Lúhansk-hérað nær allt á valdi Rússa - Selenskí
segir að Úkraínumenn muni aldrei gefast upp - Ráðstefna um enduruppbyggingu hafin í Lugano
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Maðurinn sem handtekinn var vegna
skotárásar í verslunarmiðstöð í
Kaupmannahöfn sl. sunnudag var í
gær leiddur fyrir dómara. Er hann
grunaður um að hafa myrt þrjá í árás
sinni, 17 ára pilt og stúlku og 47 ára
karlmann. Að auki er hann sagður
hafa reynt að myrða fjóra til viðbót-
ar, fólk á aldrinum 16-50 ára. Sjálfur
er ódæðismaðurinn 22 ára danskur
ríkisborgari og segir lögreglan hann
hafa staðið einan að árásinni. Hann
hefur nú verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald í 24 daga, eða til 28. júlí nk.
Danska lögreglan segir allt benda
til þess að fórnarlömb árásarinnar
hafi verið valin af handahófi, enda
eigi þau fátt ef nokkuð sameiginlegt.
Þá er sem stendur ekkert sem bend-
ir til þess að skotárásin verði flokkuð
sem hryðjuverk, árásarmaðurinn
hafi staðið einn að henni og án að-
stoðar frá öðrum. Ódæðismaðurinn
er þó sagður hafa birt myndefni á
samfélagsmiðlum sem sýna skot-
vopn og vopnaskáp, m.a. kraftmikinn
riffill. Var það gert fyrir skotárásina.
Skotið á tveimur stöðum
Lögreglu barst tilkynning um
skothríð í verslunarmiðstöðinni
Field’s í Kaupmannahöfn klukkan
17.35 að staðartíma. Talið er fullvíst
að ódæðismaðurinn hafi á tveimur
stöðum hleypt af skotvopni. Mann-
fjöldi var þá inni í miðstöðinni og leit-
aði fólk skjóls m.a. í verslunum, inni
á salernum og geymslurýmum.
Skamman tíma tók að handtaka
byssumanninn og var það án átaka.
Þeir fjórir sem fluttir voru á
sjúkrahús með skotáverka eru, að
sögn dönsku lögreglunnar, alvarlega
slasaðir og í lífshættu. Ekki hefur
verið greint nánar frá líðan þeirra
eða áverkum. Þá greina danskir
fréttamiðlar frá því að nokkur fjöldi
fólks hafi hlotið minni háttar áverka
þegar það forðaði sér á hlaupum út
úr verslunarmiðstöðinni.
Mette Frederiksen, forsætisráð-
herra Danmerkur, sagði Dani alla nú
slegna óhug og sorg. Ódæðið í
Field’s hafi á örskotsstundu breytt
björtum sumardegi í algert myrkur.
„Saklaust fólk. Viðskiptavinir,
fjölskyldur, ungt fólk á leið á tón-
leika – myrt á grimmilegan hátt.
Þrennt var drepið. Þar af tvennt ein-
ungis 17 ára. Öll ævin blasti við þeim.
Tilgangsleysið er óbærilegt,“ sagði
forsætisráðherrann í yfirlýsingu
sem hún birtir á samfélagsmiðlum.
„Hugur minn hefur frá árásinni
verið hjá ykkur sem misst hafið ást-
vin. Ykkur ættingjunum. Ykkur sem
eruð særð. Ykkur sem voruð nærri
þessum hræðilega verknaði. Ykkur
starfsfólki Field’s. Og hjá ykkur öll-
um sem hafið orðið fyrir áhrifum
þessarar árásar. Ég vil þakka ykkur
öllum sem sýnt hafið hugrekki og
dug síðustu 24 klukkustundirnar.
Ykkur sem hafið sýnt hlýju. Lög-
reglunni færi ég sérstakar þakkir og
heilbrigðisstarfsfólki. Megi mannúð
og samstaða vera það sem á eftir
kemur,“ sagði hún enn fremur.
Björtum sumardegi
breytt í algert myrkur
- Skotárásin í Field’s er ekki rannsökuð sem hryðjuverk
AFP/Thibault Savary
Sorg Fólk lagði í gær blóm við verslunarmiðstöðina Field’s í Kaupmannahöfn. Þrír létust í skotárás þar á sunnudag.
Svartan skugga bar yfir þjóðhátíð-
ardag Bandaríkjamanna í gær, þeg-
ar byssumaður hóf skothríð á hátíð-
arskrúðgöngu í Highland Park, einu
af úthverfum borgarinnar Chicago í
Illinois. Að minnsta kosti sex manns
létust og 24 voru fluttir á sjúkrahús.
Lögreglan í Highland Park og
Chicago leitaði enn byssumannsins
þegar Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Íbúum var ráðlagt að
halda sig innandyra, þar sem hann
væri enn talinn hættulegur.
Vitni sögðust hafa heyrt um tutt-
ugu skot, en árásin hófst um tíu mín-
útum eftir að skrúðgangan lagði af
stað. Frestuðu yfirvöld í Highland
Park og nálægum borgum öllum
frekari hátíðahöldum í kjölfar árás-
arinnar.
Lögreglustjóri borgarinnar, Chris
O’Neill, lýsti byssumanninum sem
ungum hvítum karlmanni á aldrinum
átján til tuttugu ára með sítt svart
hár. Hann var síðar nafngreindur
sem hinn 22 ára Robert E. Crimo
III. Maðurinn notaði riffill við voða-
verkið.
Brad Schneider, þingmaður
demókrata í fulltrúadeildinni, var
viðstaddur skrúðgönguna þegar at-
vikið átti sér stað, og sendi hann fjöl-
skyldum og aðstandendum þeirra
sem urðu fyrir skoti í árásinni sam-
úðarkveðjur. Joe Biden forseti
Bandaríkjanna tilkynnti í kjölfar
skotárásarinnar að hann ætlaði að
gera allt sem í hans valdi stæði til að
berjast gegn ofbeldi með hertri
byssulöggjöf og kallaði hann byssu-
ofbeldi faraldur.
Árásin í gær var ein af fjölmörgum
sem hafa átt sér stað í Bandaríkj-
unum á þessu ári en um 40 þúsund
manns láta lífið þar í landi árlega
vegna byssuofbeldis.
Sex létust í skot-
árás á skrúðgöngu
- Árás á þjóðhátíð Bandaríkjamanna
AFP
Skotárás Fáni á vettvangi dreginn
að húni enda þjóðhátíðardagur.