Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 25
Sjómannablaðið Víkingur – 25
upplýsti heildsalinn að Karl Petersen,
lengi kaupmaður hjá Braunsverslun, og
doktor Rudolf Leutelt, jöklafræðingur og
skíðakennari ÍR að Kolviðarhóli, hefðu
báðir farist. Petersen hafði komið til Ís-
lands 1921, gifst íslenskri konu og átti
með henni son. Hann hafði barist í fyrri
heimsstyrjöldinni og þá misst handlegg.
Við komumst frá borði, skrifaði
Scheither, en Karl, svona einhentur, átti
erfitt með að halda sér á floti „og fór
þýskur maður honum til hjálpar, en þeir
drukknuðu báðir.“
Kannski var það fjallamaðurinn og
skíðakennarinn Rudolf Leutelt sem synti
eftir Petersen. Þeir voru vinir en á Íslandi
bjó Leutelt á heimili þeirra Petersenhjóna.
Í frásögnum sínum af slysinu nefndu
blöðin einnig nöfn þeirra Max Keil raf-
magnsverkfræðings og dr. Heinrich Dürr
en fimmmenningarnir voru allir hand-
teknir af breska hernámsliðinu í Reykja-
vík. Enginn gat sjötta mannsins, Franks
Hüter, sem einnig var haldið föngnum um
borð í Arandora. Engum sögum fer af vist
hans um borð eða dvölinni í sjónum en
mikil hefur gleði hans verið þegar
kanadíski tundurspillirinn St. Laurent
birtist út við sjóndeildarhringinn. Hinum
skipreika var komið á sjúkrahús í
Glascow. Síðar átti Hüter – og kannski all-
ir fangarnir á Arandora Star sem komust
lífs af – eftir að leggja upp í aðra langferð
þegar hann var fluttur þvert yfir hnöttinn
í fangabúðir í Viktoríuríki í Ástralíu.
Að loknu stríðinu fluttist Hüter á
Lüneborgarheiði í norðanverðu Þýska-
landi og ræktaði veiðihunda og býflugur.
Hann átti ekki eftir að sjá komu sína aftur
í þessu lífi. Þau skildu. Margarete fann sér
annan mann og fluttist til Danmerkur í
maí 1952.
Fangarnir um borð í Arandora Star voru grunaðir
um fylgispekt við þennan mann.
Flugmenn Sunderland-flugbáts fundu að lokum hina skipreika menn þar sem þá rak um hafið í björgunar-
bátum og á flekum. Kanadíski tundurspillirinn St. Laurent var þá einnig á leiðinni til bjargar og naut góðs
af leiðbeiningum flugmannanna.
Marás ehf.
Miðhraun 13 - 210 Garðabær
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
Allt fyrir sjávarútveginn
Allt fyrir nýsmíðina
12V og 24V lensidælur - handdælurMótorpúðar fyrir vélar og tæki
Alternatorar og DC rafalar
Kraftur
Ending
Sparneytni
Áreiðanleiki
Ál fórnarskaut og zink
Sjóinntök, lokar, sjósíur og fl.
Vélar í skip og báta
asdropLS H A F T - S E A L S
Öxulþétti