Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 31
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N HáþrýstidælurGufudælur Öflugir vinnuþjarkar Háþrýstistöðvar og dælur HDC Classic Háþrýstistöð fyrir 1-3 notendur ■ Vatnsflæði: 700-2000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HDC Standard Háþrýstistöð fyrir 1-8 notendur ■ Vatnsflæði: 700-8000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HD 9/18-4 ST Háþrýstistöð fyrir 1 notanda ■ Vatnsflæði: 460-900 l/klst ■ Þrýstingur: 40-180 bör ■ Hámarks hitastig: 70°c Múl a sni nn Það var fyrir löngu, vestur í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Ohio, að á litlu koti bjuggu gömul hjón, slitin af erfiði lífs- baráttunnar. Þau ræktuðu sinn litla skika, hann plægði jörðina með gömlum plógi dregnum af þreyttum múlasna. Konan hafði þann leiða ávana, að hún nöldraði í bónda sín- um daginn út og inn og hann plægði oftar og lengur í takti við nöldrið í henni. Svo gerðist það dag einn, að hún færir honum bita út á akurinn og meðan hann matast leggur hún ekki aftur túlann. Nú vill svo til, að múlasninn stóð fyrir aftan hana og hlustaði á. Verður honum það á, að slá frá sér með afturfótunum og lenda þeir á höfði kerlingar og dettur hún niður steindauð. Útför hennar var gerð frá litlu, gömlu sveitakirkjunni og var ekki fjölmenn. Prestur sá, er bóndi gekk úr kirkjunni, að kona ein sneri sér að honum og tók í hendi hans og kyssti og hann kinkaði kolli. Næst kom nágranni hans og tók þéttingsfast í hendi hans en bóndi hristi höfuðið reiði- lega. Þetta undraði prest og hann spurði bónda hverju þetta sætti. „Konan var að votta mér samúð sína.“ „Hvað var með bóndann“, spurði klerkur, „þú tókst hon- um svo illa.“ „Hann vildi kaupa múlasnann!“ svaraði bóndi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.