Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 18
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Pólitíkin
er hætt
að anda
hægra
megin við
miðju.
Nýsam-
þykkt lög
um sorg-
arorlof er
dæmi um
það sem
vel er gert.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Gestaíbúð í Davíðshúsi:
stendur skáldum, rithöfundum og öðrum lista-
eða fræðimönnum til tímabundinnar dvalar gegn
vægu gjaldi. Í umsóknum komi m.a. fram:
a) stutt kynning á umsækjanda
b) að hverju umsækjandi hyggst vinna,
c) æskilegt tímabil og tímaskeið dvalar,
Umsóknarfrestur vegna afnota
á árinu 2023 er til 30. september n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður íbúðarinnar
Þórður Sævar Jónsson, s.: 6631306; thordurs@amtsbok.is
Sorgarmiðstöð varð til með samruna fjögurra gras-
rótarfélaga og sjálfboðaliða árið 2019 þegar sérfræð-
ingar og eldhugar frá Nýrri dögun, Ljónshjarta, Birtu
og Gleym mér ei, sameinuðu krafta sína, þekkingu og
reynslu. Þann 12. september 2019 tók Sorgarmiðstöð
formlega til starfa í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði
og heimasíðan, sorgarmidstod.is, var opnuð.
Sorgarmiðstöð vinnur að því að samræma úrræði
fyrir syrgjendur, efla samfélagsumræðu um sorg,
stuðla að skilvirkari upplýsingagjöf og ráðgjöf ásamt
því að almennt gæta hagsmuna þeirra sem syrgja.
Sem dæmi þá gekkst Sorgarmiðstöð fyrir ráðstefnu
um skyndilegan missi þann 31. ágúst þar sem rætt var
hvernig hægt er að gera enn betur fyrir syrgjendur
sem missa ástvin óvænt.
Mikilvægt er að hafa í huga að sorgin er eðlilegt
viðbragð með margvíslegri birtingarmynd og stigum
tilfinninga, allt frá afneitun, reiði og jafnvel sektar-
kennd, til úrvinnslu, sáttar og skilnings. Flestir ná að
aðlagast breyttum veruleika með tímanum, en aðrir
þurfa að upplifa og takast á við langvinna sorg með
tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum.
Rannsóknir benda til að þeir sem upplifa mikla
sorg geti verið í aukinni áhættu á ýmsum geðrösk-
unum, t.d. þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum og
áfallastreituröskun sem og líkamlegum sjúkdómum,
einkum hjarta- og æðasjúkdómum. Landlæknir fékk
þann heiður að vera verndari Sorgarmiðstöðvar og
með því er áréttað að stuðningur við syrgjendur falli
undir forvarnir og þar með lýðheilsu.
Því er mikilvægt að syrgjandi fái viðeigandi
stuðning, í fyrstu til dæmis frá nærumhverfi, presti
eða Sorgarmiðstöð. Ef um alvarleg einkenni er að
ræða þarf úrræði fagaðila og brýnt að stjórnvöld haldi
áfram þeirri vegferð að efla heilsugæslu og aðgengi
að sálfræðiþjónustu. Nýsamþykkt lög um sorgarorlof
er dæmi um það sem vel er gert. Starfsemi Sorgar-
miðstöðvar er afar mikilvæg og hægt að kynna sér
fræðsluefni og hvaða þjónusta er í boði á sorgarmid-
stod.is. Hér með eru færðar þakkir fyrir hið góða starf
Sorgarmiðstöðvar. n
Sorgarmiðstöð
Alma Möller
landlæknir
Það mikilvæga í íslenskri pólitík –
og raunar stjórnmálum hvar sem
er á jörðinni – er að hún sé kraft-
mikil og hispurslaus, og tali bæði
af viti og sannfæringu, segi svo
sannarlega það sem hún meinar – og það má
stundum vera óþægilegt, jafnt inn á við og út
á við.
En þetta gerir pólitíkin sjaldnast. Henni er
lagið að fara á sjálfstýringuna, ef ekki heima
í sófa, þá á gólfinu þar fyrir framan þar sem
hreyfingin er einkum og sér í lagi fólgin í því
að elta skottið á sjálfri sér.
Og pólitík þarf á skoðanaskiptum að halda,
hörðum og efnislegum snerrum þar sem
hvína má í tálknum um leiðir og stefnur
án þess að hnjóðsyrði falli um persónur og
leikendur, enda ber að líta á það sem aðal
allra lýðræðisríkja að fólki leyfist að hafa
ólíkar skoðanir. En þar er raunar dýnamíkin
í öllum tilþrifamestu samfélögunum komin,
sjálft töfrandi tjáningarfrelsið.
En því er á þetta minnst að þróttinn skortir
í stjórnmálaumræðuna hér á landi. Nú um
stundir – og svo hefur verið alllengi, er hún
tilþrifameiri og röggsamlegri utan flokk-
anna en innan þeirra, svo og á milli þeirra.
Skeytasendingarnar hafa færst úr þingsölum
og ráðhúsum yfir á samfélagsmiðla þar sem
menn fá það miklu fremur óþvegið en inni í
sótthreinsuðu fundarherbergjunum.
Kannski kemur þetta til af því að öfgar
stjórnmálanna hafa mildast og róast á
undanliðnum árum þar sem vinskapur
stjórnmálamanna er tekinn fram yfir
væringar og heift. Og atvinnupólitík sé orðin
svo þægileg innivinna að menn nenni ekki
lengur nokkru rausi.
En ástæðan er vísast líka sú að pólitíkin
þorir ekki lengur að skora sjálfa sig á hólm,
virða sjálfa sig fyrir sér í speglinum og spyrja,
fyrir hvað stend ég?
Blessunarlega varð til Sósíalistaflokkur á
Íslandi fyrir fáeinum misserum. Hann hefur
hrist upp í umræðunni. Og boðað hressilega
róttækni. Af henni stafar pólitískt fjör.
En það sama verður ekki sagt um hægri
kantinn á íslenskum stjórnmálavæng. Hann
er sofnaður. Þar er bara ekkert að gerast. Eiga
landsmenn enn þá alvöru hægriflokk sem
boðar báknið burt og alvöru skattalækkanir
til handa almenningi og atvinnulífi? Nei,
svarið er afdráttarlaust.
Pólitíkin er hætt að anda hægra megin við
miðju. Og það er veruleiki sem gerir stjórn-
málin hér á landi óspennandi og leiðinleg. n
Pólitísk leiðindi
benediktboas@frettabladid.is
Bent á þann næsta
Í gær var sagt frá því í Frétta-
blaðinu að yfir 100 skyndileg
dauðsföll verði hér á landi á
hverju einasta ári. Það þýðir að
einhver tekur sitt eigið líf, deyr í
slysi, verður bráðkvaddur og svo
framvegis. Enginn er til að grípa
syrgjendur og verkefnið Hjálp48
hefur verið sett á laggirnar til
að aðstoða á fyrstu 48 klukku-
tímunum frá andláti. Verkefni
sem er þarft og nauðsynlegt
enda kom fram í greininni að
þeir sem eiga að grípa þá sem
syrgja beina fólki frá og benda á
þann næsta sem bendir á þann
næsta og svona heldur keðjan
áfram þar til syrgjandinn gefst
upp og heldur áfram með lífið á
hnefanum.
Kunnugur staðháttum
Ísland er pínulítið land. Það
þekkja nánast allir alla. Svona
hér um bil. Skyndilegur dauði
hefur áhrif á svo ótrúlega
marga sem hér búa. Og það
er ekki nema að viðkomandi
þekki einhvern sem er kunn-
ugur staðháttum í kerfinu sem
viðkomandi er gripinn. Það er
gjörsamlega óþolandi. Samt eru
trúlega ótrúlega margir að þiggja
peninga frá ríkinu og segjast
vera að veita einhverskonar sálu-
hjálp en eru í raun ekki að gera
það. Kerfið er orðið að svo stóru
bákni að það er orðið óþolandi –
líka fyrir þá sem deyja. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR