Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 42
Ég fór ekki í sund í mörg ár, frá því ég var fimmtán ára þangað til ég varð 25 ára. Björn Ingi Hrafnsson var formaður borgar- ráðs þegar Gorbatsjov mætti aftur til leiks og hitti hann sem slíkur. Fatahönnuðurinn Erna Bergmann stakk sér ofan í djúpu laugina með Swim­ slow­sundfatamerkið sitt fyrir fimm árum og er enn á sundi. Á sínum hraða með sjálf bærni og einfaldleika að leiðarljósi en tímamótin gáfu henni kjörið tilefni til þess að bæta við sundbolum í þremur nýjum stílum og langþráðu bikiníi. toti@frettabladid.is Swimslow, sundfatamerki fata­ hönnuðarins Ernu Bergmann, er fimm ára á þessu ári og hún fagnar tímamótunum með sundbolum í þremur nýjum stílum auk þess sem nú verður loks hægt að fá Swim­ slow­ bikiní. „Við erum „slow fashion“ fyrir­ tæki þannig að við erum ekkert alltaf að koma með nýjar línur og fylgjum kannski ekki hinum dæmi­ gerðu árstíðum í tískuheiminum heldur gerum við þetta bara á okkar hraða,“ segir Erna. Hún segir hins vegar fimm ára afmælið kjörið tilefni til þess að svala uppsafnaðri sköpunarþörf. „Vegna þess að við búum ekki neitt til að ástæðulausu en erum núna að bæta við þremur nýjum sundbola­ stílum og bikiní sem er búið að vera lengi á biðlistanum,“ segir Erna sem ætlar að fagna í dag. „Það er af nógu að taka og við ætlum að fagna þessu og árstíða­ skiptunum með Aperol Spritz, sem er náttúrlega líka ítalskt, á Petersen svítunni í dag og vera með sýningu á ljósmyndum sem Silja Magg tók af fyrirsætum í nýju sundfötunum á Langasandi á Akranesi og í nýju sjóböðunum við Hvammsvík.“ Fegurð einfaldleikans Erna segist, sem fyrr, leggja áherslu á fágun og einfaldleika í nýju sund­ bolunum með áherslu á fegurðina í smáatriðunum. „Þeir eru í virkilega klæðilegum sniðum og eru ekki með brjóstaskálum og ættu því að passa flestum líkamsgerðum þann­ ig að ef konur vantar sundbol, hvort sem það er til þess að synda í, fara í sjósund, slaka á í gufunni, eru á leið í sólina eða langar bara einfaldlega að skvísast, þá reddar Swimslow málunum.“ Synti ekki árum saman Erna er menntaður fatahönnuður og hefur starfað víða við hitt og þetta sem tengist tísku en Swim­ slow varð til upp úr mastersnámi hennar í hönnun. „Þar kom þetta verkefni eiginlega upp. Ég var sjálf nýbyrjuð að fara mikið í sund. Búin að uppgötva töfra vatnsins og fann Synt með stæl um tískustraumana Erna Berg- mann fagnar fimm árum á floti í sjálfbæru Swimslow- sundfötunum sínum. MYND/MARSÝ HILD ÞÓRISDÓTTIR Kristín Lilja hjá Eskimo Models sýnir nýja og langþráða Swimslow- bikiníið. Tamara frá Eskimo Models situr fyrir í fyrsta Swimslow-bikiníinu. MYNDIR/SILJA MAGG Erna vinnur sem fyrr með klassísk og þægileg snið í sundbolum sínum. ekki sundföt sem hentuðu mér eða ég var ánægð með þannig að þá ákvað ég bara að ganga sjálf í málið,“ segir Erna sem, eins undarlega og það kann að hljóma, hafði mikið til haldið sig á þurru. „Ég fór ekki í sund í mörg ár, frá því ég var fimmtán ára þangað til ég varð 25 ára. Af því ég var svo með­ vituð um sjálfa mig og óánægð með mig eins og margar konur. Þannig að fyrir mig er þetta líka ákveðinn sigur. Að gera bara sundföt. Vegna þess að mörgum konum finnst alveg erfitt að fara í sund og bera sig og ég vildi gera sundföt sem þeim liði vel í og myndu bara efla þær. Sundföt sem halda vel utan um líkamann og gera okkur öruggar með okkur.“ Hæg en örugg sundtök Erna segist frá upphafi hafa lagt mikið upp úr sjálfbærni Swimslow og að allt framleiðsluferlið sé eins umhverfisvænt og mögulegt er. Sundfötin eru hönnuð á Íslandi og framleidd á Ítalíu úr endurunnum efnum þannig að þráðurinn í efninu er meðal annars unninn úr notuð­ um teppum og fiskinetum sem hafa verið endurheimt úr hafinu. „Ég vildi að við værum umhverf­ isvæn og að þetta myndi tikka í öll boxin fyrir mig sem neytanda,“ segir Erna og bætir við að þessi hugsun hafi ekki verið sérstaklega algeng í þessum efnum fyrir fimm árum. „En þetta er í rauninni alveg búið að blómstra og neytenda­ hópurinn náttúrlega bara stækkar og stækkar.“ Erna segir aðspurð að vissulega hafi reynt nokkuð á úthaldið á þessum fimm ára langa sundspretti með Swimslow. „Við höfum alltaf fengið góðar viðtökur en maður þarf alveg að vera með smá þraut­ seigju ef maður ætlar að vera með hönnunarfyrirtæki á Íslandi. Umhverfið er ekkert með manni á þessari litlu eyju í Atlantshafinu. Tollar eru háir, erfitt að f lytja inn og markaðurinn líka náttúrlega bara lítill þannig að ég myndi ekki segja að þetta sé búið að vera auð­ velt. En ógeðslega skemmtilegt að gera það sem maður hefur ástríðu fyrir, þannig að við ætlum að halda því áfram,“ segir Erna og hlær. n toti@frettabladid.is Þegar Míkhaíl heitinn Gorbatsjov sótti Ísland heim öðru sinni árið 2006 var hann orðinn fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna ólíkt því sem var þegar hann fundaði með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í Höfða. Leiðtogafundurinn var þó enn og aftur ástæðan fyrir seinni heimsókninni þegar Gorbatsjov var flogið til Reykjavíkur í einka- flugvél Björgólfs Thors Björgólfs- sonar þann 11. október 2006 til þess að halda fyrirlestur í Háskóla- bíói í tilefni þess að tuttugu ár voru liðin frá leiðtogafundinum sögulega. Björn Ingi Hrafnsson var for- maður borgarráðs þegar Gorbat- sjov mætti aftur til leiks og hitti hann sem slíkur í móttöku í Höfða þar sem heiðursgestinum varð svo starsýnt á örið í andliti Björns Inga að hann veitti honum mun meiri athygli en mörgu fyrirmenn- inu sem var mætt til að spóka sig í frægðarljóma Sovétleiðtogans fyrrverandi. Sjálfur skartaði Gorbatsjov sjálfsagt frægustu valbrá heims á skallanum, sem gat mögulega skýrt þennan augljósa áhuga hans á áberandi ytri einkennum fólks. „Þetta snýst allt um að skera sig úr fjöldanum,“ sagði Björn Ingi á léttu nótunum fyrir sextán árum þegar Fréttablaðið forvitnaðist um hvað fór þeim Gorbatsjov á milli. Hann upplýsti síðan að Gor- batsjov hefði spurt hvort örið væri minnismerki um þátttöku Björns Inga í hnefaleikum. „Það kom svolítið á mig en ég var fljótur að ná áttum og svara og sagði honum að einu hnefa- leikarnir sem ég hefði tekið þátt í væru í boxhring stjórnmálanna.“ Björn Ingi bætti síðan við að örið væri fyrir löngu orðið skrásett vörumerki og eftir fundinn með Gorbatsjov mætti segja að hróður þess væri farinn að berast víða. Björn sagði jafnframt að heim- sókn Rússans í Höfða hefði öll verið hin ánægjulegasta. „Það var mjög gaman að hitta hann og hann er furðu vel á sig kominn. Var hress og man greinilega vel eftir fundi sínum og Reagans í húsinu; var til dæmis með alla herbergja- skipan í Höfða á hreinu,“ sagði Björn Ingi Hrafnsson árið 2006, þegar honum var greinilega þegar orðið einkar lagið að stela athygl- inni löngu áður en hann byrjaði að stunda það af kappi sem Björn Ingi á Viljanum. n Þegar Gorbatsjov hitti boxarann Binga n Tímavélin Fréttablaðið ræddi við Björn Inga fyrir sextán árum um örið sem fangaði athygli Sovétleiðtogans fyrrverandi þegar þeir Gorbatsjov hittust í Höfða. 34 Lífið 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.