Austurglugginn - 31.01.2002, Síða 4
4 - AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 31. janúar
Austurglugginn
www.austurglugginn.is
Útgefandi: Prentun : Útgáfufélag Austurlands hf Héraðsprent SF
Ritstj. og ábm. : Blaðamaður: Fréttamaður: Relcstrarstjóri: Brynjólfur Þorvarðarson 869 8643 ritst@austurglugginn.is Katrín Oddsdóttir 477 1750 frett@austurglugginn.is Ágúst Ólafsson 892 6700 agust@athygli.is Erla Trausatdóttir 477 1571 augl@austurglugginn.is
Skrifstofa Austurgluggans er opin 8-4 alla virka daga.
Auglýsingaslmi: 477 1571 Fax: 477 1756
477 1750
Hverjir og hversvegna
Stefna og tilgangur Austurgluggans er að segja fréttir
frá öllu Austurlandi, vera vettvangur fyrir skoðana-
skipti og almenna umræðu um hvaðeina sem skiptir
alla íbúa svæðisins máli og vonandi að veita mönnum
einhverja upplyftingu og skemmtan.
Framundan eru miklar breytingar á mörgum sviðum
hér í íjórðungnum og er því meiri þörf en ella fyrir
öflugan fréttamiðil. Hæst bera fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við álver og virkjanir en einnig eru fram-
undan stór og margvísleg verkefni í fiskeldi og er
fjallað um þau mál sérstaklega í þessu blaði, sem og
þær miklu breytingar sem eru að eiga sér stað í
ferðaþjónustu. En það er margt annað á döfínni,
útgerð og fiskvinnsla er að ganga í gegnum talsverða
uppstokkun, nytjaskógrækt er nýr og spennandi
þáttur í landbúnaði og einnig má nefna stórfelldar
breytingar í samgöngumálum. Loks er það mannlífið
í allri sinni fjölbreyttu mynd sem mun ávallt vera
umljöllunarefni fjölmiðils sem ætlað er að sinna
öllum íbúum fjörðungsins.
Til að blaðið geti sem best sinnt öllu Austurlandi
þurfa starfsmenn að njóta velvildar og aðstoðar íbúa
fjórðungsins. Öllum er frjálst að senda inn pistla,
greinar og lesendabréf og munu ákvarðanir um það
sem birtist ekki byggja á þeim sjónarmiðum og
skoðunum sem þar koma fram.
Við fréttaöflun er mikilvægt að hafa góða tengiliði
sem víðast en ekki verður stuðst við það fyrirkomu-
lag að hafa fasta fréttaritara á hverjum stað. Hins
vegar verður greitt fyrir aðsendar fréttir og frétta-
myndir, 1500 krónur fyrir hvort um sig og er vonast
til að þetta verði sem flestum hvatning til að senda
inn efni um það sem er fréttnæmt á hverjum stað.
Við Austurgluggann eru þrír starfsmenn í fullu starfi,
þau Brynjólfur Þorvarðarson ritstjóri, Katrín Odds-
dóttir blaðamaður og Erla Traustadóttir framkvæmda-
stjóri en hún sér einnig um söfnun auglýsinga. Auk
þeirra er blaðamaður í hlutastarfi, Agúst Olafsson, en
hann er að góðu kunnur fýrir störf sín að ljölmiðlun
og kynningarstarfsemi í fjórðungnum.
Brynjólfur hefur starfað að tölvumálum í Bretlandi
undanfarin 5 ár en var áður m.a. ritstjóri Eystrahoms
um tíma, kennari og kennslubókahöfundur. Katrín er
nýlega búin að ljúka ijögurra ára námi í ijölmiðla-
fræðum við Dyflinnarháskóla á írlandi, þar af eitt ár
sem skiptinemi í Tækniháskóla Sydneyborgar í
Ástralíu. Einnig hefur hún starfað að réttindamálum
sígauna á Irlandi. Bæði em þau fædd í Reykjavík.
Erla er fædd og uppalin í Neskaupstað og hefúr
starfað að útgáfumálum undanfarin fimm ár.
Starfsfólk Austurgluggans
A myndinni sjást úttaugaðir fastastarfsmenn Austurgluggans sem
lagt hafa nótt við dag við að koma út fyrsta blaði á tilsettum tíma.
Öllum Austfirðingum stendur fúsiega til boóa að auðvelda
starfsmönnunum lífið með því að senda efni í blaðið og minnka
þannig álagið, panta auglýsingar og styrkja þar með fjárhaginn eða
einfaldlega kaupa drykki handa okkur og auka þar með gleðina.
Frá vinstri: Katrín Oddsdóttir blaðakona, Brynjólfur Þorvarðarson
ritstjóri og Erla Traustadóttir framkvœmda- og auglýsingastjóri.
Þorrablót Alþýöubandalagsins
Þorrablót Alþýðubandalagsins í Neskaupstað 2002
verður haldið í Egilsbúð, laugardaginn 2. febrúar
og hefst kl. 20.00.
Miðasala í Egilsbúð fimmtudaginn 31. janúar milli
kl. 17.00 og 19.00
Söngur, anndlsgrín og dansleikur.
Komið með trogin ó blótsstað milli kl. 15.00 og 17.00
Gosdrykkir verða seldir í Egilsbúð
Blakkir
Er bæjarstjómin í Fjarðabyggð fær
um að taka við heilu álveri ? - ef
hún getur ekki komið upp aðstöðu
fyrir lítið skotfélag.
Það em nokkur ár síðan stofnað
var skotfélag í Fjarðabyggð, skot-
félagið er að reyna að fá framtíðar
aðstöðu við miðbæinn. Þetta
gengur ekkert, frekar afturábak
síðustu mánuði, það má engan
styggja, margir þykjast eiga lóðir
(skyldu þeir borga skatta og
skyldur af þessum lóðum og
standa fjallaski 1 ?), það em vatns-
vemdar- og gróðursvæði alsstaðar.
Nú er mál fyrir Guðmund
bæjarstjóra að hífa í ósýnilega
vírinn (ef sjónvarpsmyndavélinni
væri beint upp við útsendingu á
fundum þá sæjust blakkir í loft-
inu) og hala upp hendumar á
bæjarfulltrúunum. Það þarf ekki
vír á Bennta og klára málið. Ég
get lofað því að Andrés bróðir
verður ekki með mótþróa. Ef þetta
strandar á embætismannakerfinu
þá er hægt að sprauta sinnepi upp í
afturendann til að fá meiri kraft,
þetta virkar vel á ketti.
íbúar í Fjarðabyggð: Veltið þið
því fyrir ykkur hvort stjómkerfíð
hjá Fjarðabyggð geti tekið við
heilu álveri. Eins og staðan er í
dag stjómar Guðmundur B. og
Smári öllu, frá stómm ákvörðum
og niður í litlar ákvarðanir, svo
sem götusópi, Guðmundur Sigfús-
son fær að stjóma pínulitlu, hinir
stjóma engu (þurfa alltaf að ath.
málið og þæfa).
Vonandi hefur einhver hlegið,
en öllu gamni fylgir einhver
alvara.
Guóni Þór Elisson
Fífubarði 2
EskifirðL
Auglýsing um verkefnastyrki til
menningarstarfs á Austurlandi
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um
styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og
Menntamálaráðuneytisins um menningarmál, frá 14. maí
2001
• Veita á styrki til eflingar menningarstarfi á Austurlandi. Tvær úthlutanir verða
2002. Sú fýrri í mars og hin síðari í október. Meirihluta ijármagns verður úthlutað
í mars.
• Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta
sótt um styrk til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur
sýni fram á mótframlag.
• Umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar er til og með 20. febrúar. Ætlunin er að
veita styrkina fýrir 15. mars.
• Umsóknum skal skila til Menningarráðs Austurlands á þar til ger ðum eyðublöðum
sem hægt er að nálgast á skrifstofum sveitarfélaga og á heimasíðunni
www.skriduklaustur.is/menning. Þar er einnig að finna úthlutunarreglur og ýmsar
aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur.
• Allar nánari upplýsingar veiti r Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi í síma 471 -
2990, 860-2983 eða með tölvupósti menning@skriduklaustur.is
• Umsóknir skal senda til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123,700
Egilsstaðir.
Menningarráð Austurlands.