Austurglugginn - 31.01.2002, Síða 6
6 - AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 31. janúar
Möguleikum fjölgar í menningarmálum
BJART er yfir menningarmálum á
Austurlandi, reyndar svo bjart að
segja má að nánast sé þar heiðskírt
miðað við fyrri ár. Lifni þið leik-
sigrar og listaverk, ómi þið óperur
og söngleikir, hljómi þið hefð og
saga, og rísið upp söfn og sýningar
- nú skal skapað!
En hvemig getum við gefið
sköpunargleðinni lausan tauminn
án þess að stranda á hvössum sker-
um í hafi skipulagninga og fram-
kvæmda?
Hugsanleg lausn felst í starfs-
gildi sem ijórðungnum hlotnaðist
nýlega. Um er að ræða spánnýtt
starf menningarfulltrúa Austur-
lands og hefur Signý Ormarsdóttir
formlega gengt starfínu frá byrjun
þessa árs. Signý, sem er uppalin á
Egilsstöðum, er fatahönnuður og
hefur um árabil stundað fram-
leiðslu á fatnaði úr hreindýraleðri
sem hún hefur hannað og saumað.
Þá var hún um tíma skólameistari
Hússtjómarskólans á Hallormsstað
og hefur síðustu ár kennt list- og
hönnunargreinar við Menntaskól-
ann á Egilsstöðum.
Langur aðdragandi
Signý hefur fylgst grannt með
þróun menningarmála á Austur-
landi undanfarin ár og var yfir sig
ánægð að fá starfið, en yfir 20 um-
sóknir bárast. “Eg var ráðin um
miðjan desember síðastliðinn, en
byrjaði síðan formlega þann fyrsta
janúar. Það var reyndar lengri að-
dragandi að starfmu sem má segja
að hefjist með samningi sem var
gerður á Seyðisfirði 14. maí 2001.
Þar komu saman fulltrúar allra 16
sveitarfélaganna er eiga aðild að
SSA og gerðu með sér samning
um samstarf í menningarmálum,”
sagði Signý.
Sveitarfélögin gerðu svo
samning við ríkið og er þetta eins-
dæmi um samstöðu svona margra
sveitarfélaga í þessum málaflokki.
I framhaldi af þessum samning-
um var Menningarráð Austurlands
stofnað en í því em 7 fúlltrúar,
tveir frá hverju svæði innan SSA
ásamt einum fúlltrúa Þróunarstofu
Austurlands.
“Menningarráð Austurlands
gerði þjónustusamning við Gunn-
arsstofnun á Skriðuklaustri sem
síðan ræður mig. Það er náttúm-
lega mjög gott mál að peningamir
sem settir em í þetta hafna heima í
fjórðungnum,” sagði Signý. Ríkið
hefur samþykkt að verja árlega 25
milljónum til menningarmála á
Austurlandi.
Margt felst í starfinu
Fyrir stofnun Menningarráðsins
var gerð á úttekt í menningarmál-
um og í kjölfarið gefin út skýrsla
sem heitir Stefna í menningarmál-
um á Austurlandi og er það í raun
og vem hún sem Signý vinnur
eftir, “já, það má segja að þessi
skýrsla sé Biblían mín”.
Starf Signýjar felur í sér þró-
unarsstarf í menningarmálum,
eflingu samstarfs, verkefnastjóm-
un og faglega ráðgjöf. Þá mun hún
einnig annast daglega umsýslu
vegna starfsemi Menningarráðs
Austurlands.
“í starfmu felst að hvetja fólk
til eflingar á hefð og stofnunum
sem þegar tengjast menningu
svæðisins samhliða því að byggja
á nýjum hugmyndum. Verksvið
mitt er ekki að undirbúa og vinna
verkefni fyrir það fólk sem leitar
til mín, heldur að aðstoða það við
að hrinda áætlunum sínum í fram-
kvæmd,” sagði Signý. Sem dæmi
um það sem Signý tekur að sér er
að finna fjármagn til að standa
undir menningartengdum atburð-
um og að koma fólki í samband
við aðila sem geta staðið að nauð-
synlegum undibúningi verkefna.
Undanfomum mánuði hefur
Signý mest megnis varið í að
kynna sér helstu mál en hún er líka
þegar byrjuð að undirbúa starfs-
árið, “eitt af því fyrsta sem ég ætla
mér að gera er að kynna mig í
sveitarfélögunum, þá bæði fyrir
sveitarstjómum og þeim sem
standa að menningarmálum á
hverjum stað. Ég trúi því að aukin
áhersla á menningu efli samkennd.
Það er ótrúlega margt að gerast hér
og menningin á svæðinu er
nokkurs konar montprik okkar
Austfirðinga”.
Menningarmiðstöðvar hafa
verið að opna undanfarið á Austur-
landi og telur Signý Skaftfell á
Seyðisfírði vera gott dæmi um vel
heppnaða mistöð. “Seyðfirðingar
hafa staðið sig vel og er velgengn-
in farin að sjást sem eflir síðan
áhuga hjá öðmm bæjum, en
velgengni í menningarmálum
byggir að stóram hluta á áhuga
fólks á hverju svæði,” telur Signý.
Skaftfell
Austurglugginn kannaði hvers
kyns starfsemi á sér stað í Skaft-
felli og hitti þar að máli Aðalheiði
Borgþórsdóttur, eða Öllu eins og
hún er oftast kölluð. Alla er
Ferða- og menningarmálafúlltrúi
Seyðisljarðar og einnig umsjónar-
maður og stjómarformaður Skaft-
fells.
Hjónin Karólína Þorsteinsdóttir
og Garðar Eymundsson gáfu
bænum húsið Skaftfell árið 1996,
og var stuttu síðar haldin í því
fyrsta listsýningin þrátt fyrir að
ekki væri búið að standsetja húsið.
Garðar hafði um árabil rekið
smíðaverkstæði í húsinu en áður
hafði þar verið norskt
sjómannaheimili. Upphaflega var
Skaftfell byggt sem íbúðarhús og
þar var einnig rekið gullsmíða-
verkstæði um langt skeið.
Á fyrstu hæð Skaftfells er hrá
og stílhrein veitingaaðstaða.
“Kaffihúsið er hannað í anda
Dieter Roth sem var mjög vel
þekktur hollenskur listamaður og
bjó lengi á Seyðisfirði,” útskýrir
Alla. Veggimir era skreyttir með
prentmyndaseríu eftir hann sem
nefúist Surtsey. Á næstu hæð fyrir
ofan er fallegur og látlaus
sýningarsalur en þar fyrir ofan er
síðan nýstandsett listamannaíbúð.
Þegar Austurgluggann bar að garði
var veflistakonan Hadda búin að
hreiðra um sig og lét mjög vel af
aðstöðu og stemmningu í húsinu,
en hún er fyrsti listamaðurinn sem
býr í íbúðinni. Hadda nýtti komu
sína meðal annars til þess að flytja
fróðlegan fyrirlestur um þjóðlegt
handverk í sýningarsal Skaftfells,
en hún nefndi handverk sem gott
dæmi um menningarafleið sem
þarfnast upprisu og styrkingar.
Starfsemi í húsinu
Nemar frá Listaháskóla Islands
hafa dvalið nokkrar vikur í Skaft-
felli árlega og munu þeir standa
fyrir næstu sýningu sem haldin
verður þar í mars. Þeir vinna með
handverksfólki í bænum og stund-
um taka þau að sér verkefni á sviði
lista með skólabömum í bænum.
Hafa þessar heimsóknir nemend-
anna gefist vel og flest hafa þau
komið aftur eftir dvölina til frekara
stamstarfs við Skaftfell. “Allir hér
era mjög ánægðir að fá þessa
krakka og aðra listamenn. Þetta
auðgar mannlífið svo um munar,”
segir Alla.
Á Seyði nefnist umfangsmikil
listahátið frá júní og fram í ágúst
þar sem fjöldinn allur af lista-
mönnum kemur saman og hefúr
þessi hátíð hlotið mjög góða
dóma.
Lunga er listahátið ungs fólks
sem haldin er árlega og stendur í
§óra til fimm sólarhringa og hefúr
einnig fengið frábærar viðtökur.
Aðrir Viðburðir
En menningarviðburðir Seyðis-
ljarðar era langt frá upptaldir, og
er tónleikaröðin Bláa kirkjan einn
sá vinsælasti þeirra sem eftir era.
Þar treður rjómi íslenskra tónlista-
manna ásamt erlendum gestum
upp í kirkju bæjarins á hverjum
miðvikudegi yfir sumartímann.
GUÐMUNDURRAGNAR
Menningarvidnn Megas treður upp í Skaftfelli á Seyðisfirði
Samvinna góð við heimamenn
GEIR Gunnlaugsson stjórnar-
formaður Reyðaráls ræddi við
Austurgluggann á dögunum um
samstarf fyrirtækisins við
heimamenn og framtíðarsýn í
atvinnumálum.
“Við höfum átt mjög gott samsarf
við aðila á Austurlandi sem er
ákaflega mikilvægt þegar tekist er
á við þetta stórt verkefni. Gott
samstarf er ekki bara mikilvægt
fyrir okkur heldur einnig fyrir
heimamenn,” sagði Geir.
“Við sem eram að vinna að
þessu eram mjög ánægðir með
hvemig Austfirðingar hafa staðið
að kynningar -og undirbúnings-
vinnu. Heimavinna hefur verið
unnin vel, efasemdum verið eytt
og sýnt fram á hvemig hægt er að
takast á við það að fá svona stórt
fyrirtæki á svæðið,” sagði Geir og
bætti við að mikilvægt væri að
samstarf héldi áfram á sömu braut.
Geir telur sameiningu sveitar-
félaganna mjög mikilvæga í þessu
sambandi. “Kjamar eins og
Fjarðabyggð og Austur-Hérað
skapa í raun grundvöll fyrir bygg-
ingu stórs fyrirtækis og gera
mögulegt að takast á við sam-
félagsleg verkefni af þessari stærð-
argráðu. Þá er einnig mikilvægt að
fólk í svo nefndum jaðarbyggðum
átti sig á því að ijarlægð frá fram-
kvæmdum getur valdið erfiðleik-
um í fyrstu en einnig að nálægð
við öflugan kjama getur skapað
þeim vaxtarmöguleika í framtíð-
inni. Viðhorf stærri fyrirtækja á
svæðinu, t.d. Síldarvinnslunnar og
Hraðfrystihúss Eski^arðar hefur
verið jákvætt gagnvart verkefninu
þrátt fyrir að ffamkvæmdir við
fyrirhugað álver geti hugsanlega
valdið þeim erfiðleikum í fyrstu.
Þau horfa til þess að til lengri tíma
litið styrkist og eflist allt atvinnulíf
og þá skapast nýir möguleikar
meðal annars í þjónustu sem þau
geta nýtt sér”.
Geir sagði að samningavið-
ræður við Fjarðabyggð og ríkis-
valdið séu langt komnar, “það er
til dæmis búið að ganga frá samn-
ingum um höfnina og gengu þeir
samningar mjög vel, drög að Ijár-
festingasamningi liggur fyrir en
þar er meðal annars kveðið á um
fasteignagjöld til sveitarfélagsins.
Annað sem síðar verður samið um
era til dæmis bygging vatnsveitu,
samstarf um branavamir og aðra
þjónustu.
Mikið hefur verið rætt um störf
sem skapast í fyrirhuguðu álveri
og þann undirbúning sem tilvon-
andi starfsmenn þurfa. “Þegar
ákvörðun liggur fyrir um byggingu
álversins verður efnt til samstarfs
við skóla á Austurlandi þannig að
boðið verði upp á nám bæði fyrir
ungt fólk sem þegar er í námi og
fyrir fólk sem er á vinnumark-
aðinum. Á þeim þremur til Qóram
áram frá því að ákvörðun er tekin
og þar til að verksmiðjan hefur
starfsemi, mun fólk
geta aflað sér
þeirrar menntunar
sem krafist er í
flestum störfúm
álversins,” sagði
Geir. Gera má ráð
fyrir því að hægt
verði að stunda
þetta nám á
kvöldin og eftir
vinnu, þar verður
meðal annars
kennd tölvutækni,
enska og ýmiss
fræði er lúta að áli
og vinnslu þess.
I fyrsta áfanga
álversins munu
starfa um 450
manns. Auk þess
er gert ráð fyrir 300 afleiddum
störfúm í margskonar þjónustu.
Þegar talað er um þessi 300 störf
hefur verið tekið tillit til þess að
einhver störf munu falla niður.
“Ymsir einyrkjar og þeir sem í dag
stunda árstíðabundna vinnu munu
til dæmis eflaust kjósa að hafa
frekar fasta vinnu í verks-
miðjunni,” sagði Geir. ko