Austurglugginn - 31.01.2002, Side 16
ALMANNATENGSL ÚTGÁFUI=»jáNUSTA VEFRÁÐGJÖF Á llilfi
Mlðvangl 2-4 Egilsstaðir Símar 471 2800 & 892 6700 agust@athygli.is
iul Austur»gluggmn
gust@athygli.is Fimmtudagur 31. janúar 2002
Austfirðingar til hamingju
með Austurgluggann
tfólmar,
ehf
HÚSGAGNAVERSLUN
Austurvegi 29 730 Fjarðabyqqð
Fjórar ungar dömur komu sér vel fyrir í leikjatíma hjá ljósmynd: andrés skúlason
Ungmennafélaginu Neista á Djúpavogi á dögunum ---------------------------------
FYRSTU leikimir í íslandsmóti
kvenna í blaki fóm fram í Nes-
kaupstað. Þar áttust við Þróttur og
KA og lauk báðum leikjunum með
sigri Þróttar þrjú núll. Yfirburðir
heimaliðsins vom miklir og leik-
imir lítið fyrir augað með fáum
undantekningum. Mikil breidd er í
Þróttarliðinu og vom fímm leik-
menn á bekknum og lítur út fyrir
að mannaval verði mikið. Það leit
samt ekki út fyrir framan af vetri
að nægur mannskapur yrði en eftir
áramót hefur fjölgað svo um
munar í hópnum. Víkingur og ÍS
áttu að leika í Hagaskóla um sömu
helgi en Víkingur mætti ekki til
leiks.
Öll framkvæmd íslandsmótsins
af hálfu Blaksambandsins er til
háborinnar skammar, mótið fer
seint af stað sem þýðir að illa
gengur að fá hús til að að leika í
r
og aðeins verður leikin tvöföld
umferð sem þýðir að leikir verða
helmingi færri en undanfarin ár.
Þróttur lék við ÍS klukkan nítján
fímmtán á laugardaginn og sýnir
sú tímasetning kannski betur en
margt annað sinnuleysi forsvars-
manna BLÍ í höfuðborginni.
f stað þess að fara að morgni og
koma heim að kveldi sem væri það
eðlilega þarf liðið að vera nótt í
Reykjavík.
Víst er að ekki þýddi að bjóða
sunnanliðunum upp á svona
framkvæmd hér heima. Hvað sem
þessu líður þá vann Þróttur sigur í
öllum 3 hrinunum. Næsti leikur er
fyrirhugaður hér heima 9. febrúar
við sameiginlegt lið HK, Fylkis og
Þróttar R - eða sama dag og fyrsta
aldursflokkamótið fer fram á
Hellu. Dæmigerð uppröðun hjá
mótanefnd BLÍ. EG
Ungu fólki er íþróttastarf
ákaflega mikilvægt
íþrótta-og félagslíf bama og ung-
linga á Djúpavogi stendur nú í
miklum blóma.
Þátttaka í íþróttatímum Neista
hefur verið mjög góð í vetur. Til
marks um það taka 80% gmnn-
skólanema þátt í reglubundnum
æfíngum hjá félaginu.
Tveir þjálfarar em að störfum
hjá Neista í vetur, en það em þau
Sigrún Hallgrímsdóttir sem sér um
frjálsar íþróttir og leikjatíma fyrir
yngri kynslóðina og svo Dragan
Stojanovic sem þjálfar yngri
flokka í knattspymu.
Meistaraflokkur karla er nú að
hefja undirbúning fyrir íslands-
mótið í sumar og em menn að
venju hóflega bjartsýnir á gengi
félagsins.
Ljóst er að í dag er það hverjum
bæ lífsnauðsynlegt að þar sé teflt
fram meistaraflokks knattspymu-
liði sem getur tekið þátt í íslands-
móti.
Það hefur sýnt sig að mjög stór
hluti af ungu fólki hefur einfald-
lega ekki áhuga á að búa á þeim
stöðum þar sem íþróttastarf á erfitt
uppdráttar.
Þetta er sérstakt umhugsunar-
efhi í dag fyrir íþróttafélög,
sveitarfélög sem og aðra er vilja
byggja upp sína bæi til framtíðar
með ungu fólki.
A.S.
Vegaframkvæmdir
hafnar á Reyðarfirði
BÞ
Hafnar eru framkvœmdir við fyrsta áfanga endurnýjunar þjóðvegarins
milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. I þessum áfanga verður lokið við
gerð vegarins frá þéttbýlinu á Reyðarfirði út að Sómastöðum. Það er
Myllan hf. á Egilsstöðum sem annast verkið.
Stríð gegn verðbólgu
Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðu-
sambands íslands og fleiri fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar heimsóttu
Fjarðabyggð og Austur-Hérað síðast-
liðinn mánudag. Tilgangur heim-
sóknarinnar var að ræða við
forsvarsmenn sveitarfélaganna um
mögulega þáttöku þeirra í baráttunni
gegn þeirri verðbólgu sem nú heijar.
I samtali við Austurgluggann sagði
Grétar að fundimir með
forsvarsmönnum sveitarfélaganna
hefðu tekist vel og hefðu forsvars-
mennimir sýnt málefhinu góðan
skilning.
Sparisjóður Norðfjarðar óskar
Austfirðingum til hamingju
með Austurgluggann
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR
■ Jyr^r þig °g Mna
Neskaupstoö og Reyðarfirði
- á öllum svidum!
TM-ÖRYGGI
fyrir Qölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
Úrvals þorramatur
Tilboð'
Appelsínur
Gular melónur
Rauðvínslegið
Opiðalla dagafrá kl. 10-19
lambalæri s. 477 1609 & 987 1109