Austurglugginn


Austurglugginn - 20.11.2003, Side 1

Austurglugginn - 20.11.2003, Side 1
Stjórnarformaður Tanga í viðtali: „Löglegt en | \ siðlaust" á bls. 8 Súellen snýr aftur Sjá bls. 9 Reynir Trausta skráir sögu Lindu Pé Sjá bls. 14 Ólafur Gunnarsson er efstur Sjá bls. 15 Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1026 á mánuði (kr. 256 eintakið) ISSN 1670-3561 INældu þér í áskrift! ©477 1571 Förum létt með þyngri sendingar - dreifum um allt land PÓSTURINN Landflutningar-Samskip Kaupvangi 25 700 Egilsstaðir Sími: 471 3080 Fax: 471 3081 Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá kl. 08:00-16:00 Landflutningar| /sÁMSKIP SECURITAS Frétta- SKOT ® 477 1750 Toppur Gunnólfsvikurfjalls hefur í áraraðlr gegnt hlutverkl ratsjárstöðvar fyrir hinn mjög svo umdeilda bandaríska her en eitt er vist að þau störfsem þar hafa skapast hafa reynst Bakkfirðingum vel I bland við grásleppuna og saltfiskinn. Þó rauðum bjarma slái á fjallið á þessari mynd er allt eins víst að baráttan við annan rauðan - og öllu pólitískari bjarma - hafi eflaust verið færður liðsauki á Gunnólfsvíkurfjalli á þeim árum þegar kalt stríð geisaði Sitt hvorum megin Atlantsála. Mynd: vopnafjörður.is Stjórnarformaður Tanga: Sakar fyrrum framkvæmda- stjóra um svik Stjórnarformaðurinn Tanga hf. sakar fyrrum framkvæmdastjóra fyrirtækisins um að hafa svikið munnlegt samkomulag sem hann segir að gert hafi verið í kringum gerð starfslokasamnings fram- kvæmdastjórans í lok árs 2002. Samkomulagið sem stjórnarfor- maðurinn vitnar í snýst um við- skipti færeyskra kolmunnaskipa við Tanga hf sem fyrir starfslok framkvæmdastjórans voru mikil við fiskimjölsverksmiðju fyrirtæk- isins. Eftir starfslok framkvæmda- stjórans fluttust þessi viðskipti yfir til Loðnuvinnslunnar hf. á Fá- skrúðsfirði. Þetta kemur fram i við- tali sem Austurglugginn tók við stjórnarformann Tanga og birtist í þessu tölublaði. „Viðskipti til samkeppnisaðila í kjölfar starfsloka" I viðtalinu segir Olafur Ár- mannsson, stjórnarformaðurTanga, m.a. um viðskilnað framkvæmda- stjórans fyrrverandi sem komu til að sögn stjórnarformansins vegna aðkomu nýs meirihluta að rekstri Tanga, Hraðfrystihúss Eskifjarðar: „Ég gekk fram fyrir skjöldu með því að bjóða honum (framkvæmda- stjóranum innsk. blm.) veglegan starfslokasamning (...) í framhald- inu urðum við ásáttir um að hann myndi aðstoða okkur við að tryggja hér áframhaldandi viðskipti okkar og þeirra færeysku skipa sem hér höfðu landað afla. Þessu var hann samþykkur og bauðst til að aðstoða okkur við að festa þessi viðskipti enn frekar í sessi hér á Vopnafirði.” Stjórnarformaðurinn segir enn- fremur í viðtalinu að í kjölfar starfslokanna hafi svo viðskipti færeysku útgerðanna, stjórn Tanga að óvörum, flust til Fáskrúðsfjarðar fyrir forgöngu framkvæmdastjór- ans fyrrverandi. Tjáir sig ekki um málið Framkvæmdastjórinn sem um ræðir, Friðrik Mar Guðmundsson, vildi ekki tjá sig um málið þegar Austurglugginn hafði samband við hann. Heimildir Austurgluggans herma hins vegar að Friðrik vilji ekki meina að neitt samkomulag hafi verið gert um viðskiptin á sín- um tíma. Hann starfar nú að sögn að ýmsum verkefnum fyrir Loðnu- vinnsluna og býr í Reykjavík. helgi@agl.is Sjá nánar viðtal við stjórnar- formann Tanga hf á síðu 8. Afgreiðstutími í Bónus á Egilsstöðum g Mánudag til fimmtudags 12.00 til 18.30 ÍÉKKÍffl Föstudag 10.00 til 19.30 f Laugardag 10.00 til 18.00 Sunnudag 12.00 til 18.00 Sjáumst í Bónus á E?ilsstöðum Ódýrastir um allt landl

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.