Austurglugginn


Austurglugginn - 20.11.2003, Side 8

Austurglugginn - 20.11.2003, Side 8
8 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 20. nóvember VIÐTALIÐ Stjómarformaður Tanga í viðtali við Austurgluggann. Vopnfirðingar hafa nú endurheimt meirihluta í langstœrsta fyrirtæki bæjarins Tanga hf. í viðtali við Austurgluggann segir Ólafur Ármannsson, stjómarformaður Tanga, frá aðdraganda þess að heimamenn á Vopnafirði misstu yfirráð yfir fyrirtæk- inu, því sem hann hefur sjálfur nefnt „óvinveitta yfirtöku Eskju” og viðskipti hans við fynum framkvœmdastjóra Tanga. Vopnfirðingar gengu endanlega frá kaupum sínum á meiri- hluta bréfa í Tanga þann í.nóvember síðastliðinn eftir að hafa misst meirihlutann til Hraðfrystihúss Eskifjarðar sem fyrir rúmu ári keypti sig inn í íyrirtækið við lítinn fögnuð Vopnfirðinga. Þá óttuðust heimamenn mjög um störf bæjar- búa, sem að stórum hluta hafa á einn eða annan hátt at- vinnu af fyrirtækinu. Kaupverðið sem heimamenn greiddu var tæpur milljarður króna en upp í kaupverðið gekk loðnu- kvóti sem Eskja fékk sem greiðslu að andvirði 200 milljóna. En sagan er ekki nema hálf sögð: Að baki eru kaupin, en nú horfa heimamenn á Vopnafirði fram á rekstur fyrirtækisins sem hefur misst talsverðan kvóta og er skuldugt eftir erfiða fjármögnun bréfanna undanfarna mánuði. “Hófst með samruna við Sjólaver” Forsagan að kaupum Eskju hf. (þá Hraðfrystihúss Eskifjarð- ar) á hlutum í Tanga má rekja til samruna Tanga og fyrirtæk- isins Sjólavers ehf. í Hafnarfirði sem átti sér stað seinni hluta árs 2001. „A þessum tíma voru miklir erfiðleikar í rekstrin- um og að okkar mati tvennt í stöðunni; annars vegar að selja frá sér skip og kvóta eða hins vegar að fá inn nýja eignarað- ila til þess m.a. að auka kvótastöðu fyrirtækisins,” segir Olaf- ur Ármannsson, stjórnarformaður Tanga og einn fjárfesta sem tóku þátt í hlutafjársöfnuninni á dögunum. Við sam- runann eignuðust þáverandi eigendur Sjólavers í Hafnafirði, um það bil þrjátíu prósenta hlut í 'langa auk þess sem kvóti Sjólavers sem var í kringum 1800 tonn fluttist til Vopnafjarð- ar. Ennfremur var hlutafé Tanga aukið um 100 milljónir sem Vopnafjarðarhreppur keypti. „Með þessari aðgerð tókst að auka kvótaeign fyrirtækisins verulega og sfyrkja þannig rekstur félagsins sem hafði verið erfiður. Við gerðum okkur alltaf grein fyrir því að með þessum samruna værum við að taka töluverða áhættu, en reynt var að lágmarka hana með hlutafjáraukningunni.” „Loforð um forkaupsrétt svikið” Hann segir að eftir samrunaferlið við Sjólaver hafi verið frá- gengið hafi verið handsalað samkomulag við Guðmund Jónsson, einn eiganda Sjólavers, um að ef til þess kæmi að Sjólaversfjölskyldan seldi alla hluti sína í Tanga h/f þá hefðu Vopnfirðingar forkaupsrétt á hlut Guðmundar/’Hugmyndin um samrunan var komin frá mér og hana seldi ég ráða- mönnum hér heima Okkur var því verulega brugðið þegar þetta munnlega samkomulag var svikið, og Guðmundur seldi hlut sinn, þrátt fyrir gefin loforð. Lengi vel var það þannig að Guðmundur ætlaði að standa við þetta loforð sem hann gaf, það skýrir að hluta til hvers vegna Eskja náði ekki að ganga frá kaupunum á hlut Sjólvers-fjölskyldunnar í einu,” segir Ólafur og vitnar þar í þann tíma sem leið frá því Eskja hf. tilkynnti um kaup á rúmlega 40 % hlut sínum þar til samningur um kaup á hlut Guðmundar var tilkynntur Kauphöll Islands. „Þarna sveik Guðmundur þetta loforð sem hann viðurkenndi í votta viðurvist að hafa gefið okkur.” 11. SEPTEMBER Þann 11. september 2002 eða tæpu ári eftir samruna Tanga og Sjólavers undir nafni Tanga hf. barst svo Vopnfirðingum tilkynning um að Eskja hf. hefði gengið frá kaupum á 47,48% hlut í Tanga hf. „Ég var staddur á sjávarútvegssýn- ingu suður í Reykjavík þegar mér bárust þessi.tíðindi og ég hef átt skemmtilegri daga í Reykjavík en þá,” segir Ólafur. Hann segist ekkert hafa haft á móti því að Eskja kæmi inn í félagið en ekki á þeim forsendum sem hann telur Eskju hafa gert það á. „Fjölskylda Aðalsteins Jónssonar hafði áður fyrr verið þátttakandi í atvinnulífi hér á Vopnafirði og það hefði í sjálfu sér átt að vera fagnaðarefni að fá Eskju að rekstrinum ef það hefði verið gert á öðrum forsendum.” Stjórnarformað- urinn fullyrðir að fyrir forsvarsmönnum Eskju hafi ekki vak- að annað í upphafi en sameining fyrirtækjanna og hagræða í starfsemi á þann hátt að leggja niður starfsemi Tanga á Vopnafirði að stærstum hluta. „Það verð sem greitt var fyrir fyrirtækið var mjög hátt og virtist því eina leiðin til þess að fjárfestingin bæri sig að sameina fyrirtækin og draga úr um- svifum á öðrum staðnum,” segir Ólafur. „Umræðan um kvótann í AÐDRAGANDA KOSNINGA HAFÐI AhRIF” Á fundi sem haldinn var í kjölfar kaupanna með forsvars- mönnum Eskju og sveitarstjórnarmönnum á Vopnafirði voru reifaðar hugmyndir varðandi samstarf fyrirtækjanna og eflingu starfseminnar á Vopnafirði. Á því ári sem leið eftir að Eskja náði meirihluta í félaginu segir Ólafur að lítið sam- starf hafi verið á milli fyrirtækjanna og samvinna lítil sem engin þrátt fyrir óskir Vopnfirðinga þar um. Hann segist full- viss um að umræðan um sjávarútvegsmál - og þá ekki síst kvóta og framsal hans - fyrir alþingiskosningarnar hafi haft sitt að segja um þróun mála á Vopnafirði og þá ákvörðun Eskju að selja bréfin aftur til Vopnfirðinga. „Það var í burð- arliðnum að loka verksmiðjunni hér, selja Sunnuberg og færa kvótann á milli fyrirtækjanna, það er ég viss um,” segir Ólafur og bætir við: „Þeir brutu ekki á okkur lagalega á neinn hátt. Þetta er að mínu mati fremur spurning um sið- ferði hvernig hlutirnir hafa þróast hér. Löglegt en siðlaust eins og frægur maður sagði eitt sinn.” Starfslok fyrrum framkvæmdastjóra Ólafur segir farir Vopnfirðinga í viðskiptum þeirra við fyrr- um framkvæmdastjóra Tanga heldur ekki sléttar. “Það var snemma Ijóst þegar Eskja fékk ráðandi hlut í Tanga að ekki var traust milli þáverandi framkvæmdastjóra félagsins (Frið- riks Mars Guðmundssonar, innsk.blm.) og forsvarsmanna Eskju og því ljóst að hann mundi víkja þar sem við Vopnfirð- ingar vorum komnir í minnihluta í fyrirtækinu,” segir Ólaf- ur. „Ég gekk fram fyrir skjöldu með því að bjóða honum veg- legan starfslokasamning enda hafði hann þá starfað hjá fyr- irtækinu í 13 ár og gegnt því starfi vel.” Olafur vildi ekki greina frá því hversu hár starfslokasamningurinn var en kvað hann hafa verið veglegan og fulla sátt um hann milli beggja aðila. Tekjumissir í kjölfar starfsloka framkvæmdastjóra „í framhaldinu urðum við ásáttir um að hann myndi aðstoða okkur við að tryggja hér áframhaldandi viðskipti okkar og þeirra færeysku skipa sem hér höfðu landað afla. Þessu var hann samþykkur og bauðst til að aðstoða okkur við að festa þessi viðskipti enn frekar í sessi hér á Vopnafirði. Það var okkur því mikið áfall þegar það kom á daginn að á sama tíma og verið var að gera við hann starfslokasamning þá var hann líklegast búinn að semja við annað fyrirtæki sem er í beinni samkeppni við okkur um þessi viðskipti færeysku skipanna.” Fyrirtækið sem Ólafur nefnir er Loðnuvinnslan hf á Fáskrúðsfirði. En síðan þessi samningur var gerður hef- ur Fáskrúðsfjörður verið ein stærsta löndunarhöfn erlendra skipa á Austurlandi þar munar miklu um landanir færeyskra uppsjávarveiðiskipa. „Ef Friðrik Mar Guðmundsson ætlaði að nota þetta til að hefna sín á forsvarsmönnum Eskju þá hefur það mistekist hrapalega því þolendurnir eru fyrrum vinir hans á Vopnafirði, þetta er sorgleg niðurstaða ” segir Ólafur. „Samstaða bæjarbúa gerði gæfumuninn” „Þó við Vopnfirðingar höfum verið brennd af viðskiptum okkar við Sjólaver á sínum tíma, og þeim svikum á munn- legum samningum sem þar voru gerðir, þá má forstjóri Eskju eiga það að hann hélt það loforð sem hann gaf okkur um að gefa Vopnfirðingum tækifæri til að kaupa fyrirtækið til baka,” segir Ólafur sem telur tímann sem Eskja gaf Vopn- firðingum til kaupann ekki hafa getað gengið nema með samstilltu átaki „Sá stutti tími sem við fengum til að kaupa bréf Eskju til baka rétt um þrír mánuðir hefði aldrei dugað nema til hefði komið samstillt átak sveitarstjórnarinnar, og Vopnfirðinga almennt, um kaupin.” Hann segir að Vopn- firðingar hafi strax og ljóst varð að þeir höfðu tækifæri til að kaupa til baka meirihluta fyrirtækisins ákveðið að safna sam- an hlutafé og nærri lætur að þriðji hver Vopnfirðingur hafi lagt hlutafjársöfnuninni lið auk þess sem fyrirtæki og sveitar- stjórn hafi einhent sér í að ná að fjármagna kaupin með að- stoð nýrra fjárfesta og lánastofnana innan tilskilins tíma. „Fólkið hér á Vopnafirði stóð einfaldlega saman og því var þetta lrægt. Við sem unnum að framgangi málsins viljum sérstaklega þakka fyrir þann mikla stuðning sem við fengum við frá íbúum sveitarfélagsins.” Ólafur segir björninn þó hvergi nærri unninn. „Nú bíða okkar erfið verkefni þar sem við stöndum eftir kvótaminni í kjölfarið og með erfiða skuldastöðu en við gefumst ekki upp” segir Ólafur Ármann- son,“ stjórnarformaður Tanga hf, að lokum. helgi@agl.is

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.