Austurglugginn


Austurglugginn - 20.11.2003, Side 11

Austurglugginn - 20.11.2003, Side 11
Spurning vikunnar Fimmtudagur 20. nóvember AUSTUR • GLUGGINN 11 Ætlarðu að lesa bókina hennar Lindu Pé? Spurt á æskuslóðum Lindu - Vopnafirði Adam Snær Atlason Það held ég ekki, sé til. Ómar Eyjólfsson Nei. G uðmundur Friðbjarnarson Það stórefast ég um. GuðniÞórJónsson Veit það ekki - er ekki vanur að lesa mikið. Gunnar Smári Guðmundsson Að sjálfsögðu geri ég það. MANNLIFIÐ Linda Pé heim- sækir Vopna- fjörð -Kynnti bók sína fyrir fullu húsi á æskuslóðunum Linda Pétursdóttir kynnti bók sína og Reynis Traustasonar „Ljós og Skugga” á Vopnafirði síðastlið- inn föstudag. En að sögn ákvað Linda sem í mörg ár bjó á Vopna- firði að byrja kynningu sína á bók- inni þar. Linda heimsótti auk þess skólann á staðnum, elliheimilið og frystihús Tanga og var hvarvetna vel tekið. Um kvöldið las hún svo upp úr bók sinni á Gistiheimili Vopnaíjarðar auk þess sem hún á- ritaði þar bókina. Austurglugginn var á staðnum og náði þessum myndum af Lindu í faðmi sveit- unga sinna sem hún hafði marga hverja ekki séð síðan hún flutti al- farin til Reykjavíkur um það leyti sem hún var valinn alheimsfegurð- ardrottning. „Siggi Kross" tók lagið ásamt félaga sínum Gunnari Guðmundssyni í tilefni dagsins. Linda segir frá því I bók sinni hvernig hún var nærri lent í klóm mannræningja í El Salvador meðan hún skoðaði heiminn sem fegurðar- drottning. Hún segist hafa vaknað upp af værum svefni við skothvelli utan við hótel sitt I höfuðborginni San Salvador þar sem hana dreymdi að hún væri á Hofsballi og hljómsveit “Sigga Kross" lék fyrir dansi. Linda les upp úr bók sinni fyrir fullum sal á Vopnafirði. Hún sagði við byrjun lesturs að ef einhverjum þætti hún ekki lesa nógu hátt eða skýrt skyldi sá hinn sami eiga það við „Alla" þvi hann hefði kennt henni að lesa. Þar átti Linda við núverandi skólastjóra Vopn- firðinga og gamlan kennara Lindu, Aðalbjörn Björnsson. Leiðarhöfn við Vopnafjörð Þessi litla og fallega vík utan við þorpið á Vopnafirði er staður vik- unnar að þessu sinni. Víkin sem stendur þarna við bæinn Leiðar- höfn er eins og manngerð höfn þó eins sé víst að aldrei hafi hendur mannanna að henni komið. Lítið sjóhús stendur þarna á brúninni og er engu líkara en það hangi á lyg- inni þó eflaust sé festan góð enda húsið staðið þar lengi. Rétt utan við Leiðarhöfn er svo Leiðarhafn- arviti sem hefur svo sannarlega reynst sjófarendum betri en enginn við innsiglinguna inn til Vopna- fjarðar. Þessi fallegi staður er að mati ljósmyndara eitt best geymda leyndarmál Austurlands og sýnir okkur að það er fleiri matur í skilningi náttúruperlna en hið feita kjöt Snæfellsins. Nýr Austfirðingur Þessi litli drengur fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu i Neskaupstað 7. nóvember sl. Hann vó 9 merkur og var 48 cm. að lengd. Foreldrar hans heita Linda Viðarsdótt- ir og Ingþór Guðjónsson. Fjölskyldan er búsett á Stöðvarfirði. Blaðamaður- inn á barnum Skemmtanalífið tók kipp í Fjarðabyggð um helgina þegar nýr skemmtistaður var opnaður á Reyðarfirði. Staðurinn heitir Zalza og það er enginn annar en Kristján J. Kristjánsson sem rekur staðinn en hann er eins og kunnugt er rit- stjóri fréttavefsins Local.is og hef- ur verið viðloðandi fjölmiðla und- anfarin ár. Þegar blaðamaður Austurglugg- ans heimsótti Kristján, eða Kidda eins og hann er yfirleitt kallaður, var hann upptekinn við undirbúa fyrsta kvöldið. Flann segist ætla að reka lifandi skemmtistað sem í framtíðinni mun verða eins konar menningarmiðstöð í Fjarðabyggð þar sem ýmiss konar menningar- viðburðir verða í boði allt frá hefð- bundnum dansleikjum til hámenn- ingarlegrar myndverkasýninga. í swa* aaapipppii Kiddi fyllir fyrsta bjórglasið.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.