Austurglugginn


Austurglugginn - 15.01.2004, Qupperneq 5

Austurglugginn - 15.01.2004, Qupperneq 5
Fimmtudagur 15. janúar AUSTUR • GLUGGINN 5 UTSALA -UTSALA - UTSALA ÚTSALA HEFST FIMMTUDACINN 15. JANÚAR B©%-7© 0/ /O AFSLATTUR AF MORGUM VORUM. EINNIG VERÐUR 10% AFSL. AF ÖÐRUM VÖRUM . r r Komið og gerið góð kaup SUNBUÐIN FJAROASPORT Neskaupstað. S: 477 1 1 33 Cr°ss C0? purnn^ Casau 66*N mm, Be Zo W' OZON Austurbyggð Hafnargötu 12 750 Fáskrúðsfirði AUSTURBYGGÐ AUGLÝSIR BYGGÐAKVÓTI LAUSTIL UMSÓKNAR Austurbyggb auglýsir 40,1 þorskígildistonna byggðakvóta lausan til umsóknar, skv. reglugerð 596/2003 og reglum sem Austurbyggð hefur sett um úthlutun hans sem eru eftirfarandi: 1. Uthlutuðum aflaheimildum verður skipt milli þeirra skipa sem skráð hafa verið með heimahöfn í Austurbyggð fiskveiðiárið 2002-2003. Einnig eiga skip rétt á úthlutun ef eigendur þeirra hafa átt lögheimili og starfsstöð í Austurbyggð á sama tíma. Eingöngu aflamarksskip undir 100 brt. og krókaaflamarksbátar koma til greina við úthlutun byggðakvótans. 2. Byggðakvóta skal skipta jafnt milli þeirra fiskiskipa sem til greina koma. 3. Skilyrði fyrir úthlutun er að útgerð skips skuldbindi sig til að landa til vinnslu í Austurbyggð þeim afla sem úthlutað verður skv. þessum reglum. Jafnframt skuldbindi hún sig til að landa til vinnslu á staðnum þreföldu því magni sem hún fær úthlutað. í lok fiskveiðiárs skal viðkomandi skila staðfestingu frá vinnslu um að tilskilið magn hafi borist henni. 4. Verði útgerð sem úthlutað er samkvæmt þessum reglum uppvís að því að virða ekki þau skilyrði sem sett eru varðandi vinnslu afla í sveitarfélaginu fyrirgerir hún rétti sínum til hugsanlegrar úthlutunar á næsta ári. Hættum að draga í Staðfest gögn um það sem fram kemur í reglunum þurfa að fylgja umsóknum. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Austurbyggðar eigi síðar en 31. janúar 2004. Sveitarstjóri Norðfirðingar Takið fram trogin Hið árlega kommablót verður haldið laugardaginn 31. jan. nk. í Egilsbúð. Blótshald verður samkvæmt hefðum. - Stjórn ABN Að létta öðrum byrðarnar „Davíð Oddsson er meira helvít- is fíflið”, heyrði ég mann segja á kaffihúsi um daginn. Maðurinn var að ræða einhverja nýlega yfir- lýsingu leiðtogans og honum var greinilega heitt í hamsi því hann roðnaði í framan af heilagri vand- lætingu og augun þrýstust út í tótt- irnar. Viðmælandi hans kinkaði sposkur kolli og tók undir. Ég fór hins vegar að hugsa. Hvað vissu þessir menn um Davíð Oddsson? Þekkja þeir hann persónulega? Ég leyfi mér að efast stórlega um það. Þeir voru hins vegar að stunda ástsælustu þjóðar- íþrótt okkar Islendinga- skóníð. Við elskum nefnilega að draga fólk í dilka, flokka það og eyrna- merkja og kveða svo upp sleggju- dóma um greind, smekk, persónu- leika og skoðanir. Og við flokkum ekki bara þá sem prýða forsíður blaðanna, heldur flesta sem við hittum eða eigum samskipti við. í hvert sinn sem við hittum einhvern beitum við þessari þrautþjálfuðu flokkunartækni á nokkrum sek- úndum og skellum viðkomandi í viðeigandi flokk, eyrnamerktum og skilgreindum. Þetta sparar okk- ur vinnu við að mynda okkur skoðanir á nýju fólki sem byggjast á raunverulegri viðkynningu. Þetta gefur okkur líka pottþétt umræðu- efni þar sem við getum óskapast yfir helvítis lögfræðingunum, stjórnmálamönnunum, gróða- pungunum...... En það er ekki skrítið að við beitum þessari fljótlegu og þægi- legu flokkunaraðferð jafn mikið og raun ber vitni. Við erum nátt- úrulega markvisst flokkuð og skil- greind af markaðsspekingum, grúppuð saman í markhópa til að einfalda markaðssetningu á vör- um, þjónustu eða afþreyingu. Nið- urstaðan er ákveðin tvivíð mann- gerð sem er fulltrúi þeirrar hug- myndar sem verið er að selja. Þessum tvívíðu manngerðum, eða dúkkulisum, er allsstaðar veifað framan í okkur til að segja okkur hvernig við eigum að vera eða hvernig aðrir eru. Við búum flokk- unarsíurnar nefnilega ekki til út frá dilka! eigin reynslu af fólki, heldur fáum við þær að miklu leyti tilbúnar úr Qölmiðlum. Sannleikurinn er hins vegar sá að við erum öll margbrotin og ólík. ALLIR eru einstakir. Þetta er ekki bara einhver væmin klisja heldur sannleikur. Yfirleitt komumst við að því þegar við kynnumst fólki að það er allt öðru- vísi en við héldum. Við þekkjum ekki Davíð Oddsson, Fjölni Þor- geirsson og Völu Matt. Mörg okk- ar hafa hins vegar sterkar skoðanir á þessu fólki byggðar á þeirri dúkkulísumynd sem við fáum af því í DV og Séðu og Heyrðu. Það sama á við um aðra samborgara okkar. Við myndum okkur skoðan- ir á þeim sem byggjast á kjaftasög- um, sleggjudómum og fordómum. Mitt áramótaheit er að hætta að smala og halda réttir í huganum. Ég vil reyna að taka fólki eins og það er. Við erum öll svo margbrot- in og flókin. Maður missir af svo miklu ef maður gerir alla að dúkkulísum. Heimurinn er fullur af prófessorum sem horfa á fót- bolta, bifvélavirkjum sem fíla Laxness, verkamönnum sem yrkja ljóð og prestum sem bölva í hljóði. Ég held að lífið yrði miklu skemmtilegra ef maður gerði sér fulla grein fyrir þessu og hætti að þykjast þekkja alla. Ég a.m.k. tel að það sé hollt að fjarlægja bjálk- ann úr eigin auga áður en maður kastar fyrsta steininum...uhhh- hhh.....eða þannig. Eftir Sigurð Ólafsson, félagsfrœðing Þessi orð koma mér í hug þeg- ar Helgi Seljan fyrrum alþingis- maður stendur á sjötugu 15. janú- ar. Hann hefur fengist við fjöl- margt um dagana, verið kennari og skólastjóri, bóndi og verka- lýðsforingi, sveitarstjórnarmaður og alþingismaður, félagsmála- garpur af áhuga og atvinnu, bind- indisfrömuður af lífi og sál, á- hugaleikari og skemmtikraftur. Er þá aðeins tæpt á nokkru af þeim hlutverkum sem þessi eld- hugi hefur tekist á við um dag- ana. Hann kom til starfa galvask- ur með kennarapróf upp á vasann um tvítugsaldur og festi fljótlega ráð sitt. Jóhanna Þóroddsdóttir er lífsförunauturinn og fyllti sjötíu árin fjórum dögum á undan bónda sínum ef marka má þjóð- skrá. Þannig hafa þau verið sam- stiga í hálfa öld, eignuðust fimm mannvænleg börn og afkomend- ur nú fleiri en ég hafi tölu á. Heimili þeirra á Reyðarfirði stóð öllum opið og margur sem þess fékk að njóta. Best þekki ég til stjórnmála- mannsins Helga Seljan þar eð við áttum náið samstarf um áratugi á Austurlandi og á Alþingi, en hann raunar kominn á sporið með Lúðvík Jósepssyni löngu á undan mér. Fáir hafa náð því í stjórn- málastarfi eins vel og Helgi að vera einarður málafylgjumaður en halda vinfengi og góðu sam- bandi við pólitíska andstæðinga. Þessara eiginleika naut hann meðal annars í forsetastarfi á Al- þingi og í félagsmálastörfum sín- um utan þings. Á bak við létta lund og kímnigáfu býr hugsjóna- maður sem hefur fylgt þeirri köll- un að bæta lífið í kringum sig, beina æskufólki á farsæla braut, tryggja sem flestum mannsæm- andi kjör, bóndanum laun erfiðis, lítilmagnanum réttindi og öryrkj- anum aðstæður sem sæma vel stæðu þjóðfélagi. Eftir sextán ára farsælt starf á Alþingi kaus Helgi að hverfa til annarra verka. Hann bað ekki um vegtyllur en valdi sér sjálfur við- fangsefni. Það var mikið happ fyrir Öryrkjabandalagið að fá hann sem liðsmann, fyrst sem fé- lagsmálafulltrúa og síðan fram- kvæmdastjóra. Einnig þar fylgdi hann vegvisi sínum að freista þess að létta öðrum byrðarnar. Það hefur honum sannarlega tek- ist af fágætri ósérhlífni og þraut- seigju og því berast nú að honum hlýir straumar frá mörgum. Við Kristín sendum þeim hjónum árnaðaróskir á merkum tímamót- um. Eftir Hjörleif Guttormsson.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.