Austurglugginn - 15.01.2004, Page 7
Fimmtudagur 15. janúar
AUSTUR • GLUGGINN
7
Gettu betur keppnin hefst í dag á Rás 2. Austur-
glugginn tók þjálfara austfirsku liðanna tali og
ræddi við þá um undirbúninginn en fyrsta „aust-
firska" viðureignin erá föstudagskvöldið (annað
kvöld) þegar lið Menntaskólans á Egilsstöðum
keppir við lið Menntaskólans á Akureyri.
Austfirðingar tefla fram þremur
liðum að venju. Þetta eru lið Fram-
haldsskólans í Austur-Skaftafells-
sýslu (FAS), Menntaskólans á Eg-
ilsstöðum (ME) og Verkmennta-
skóla Austurlands (VA). Andstæð-
ingarnir eru engar liðleskjur. ME-
ingar etja kappi við Menntaskólann
á Akureyri. VA keppir við Mennta-
skólann við Sund og FAS mun svo
leiða saman hesta sína gegn
Menntaskólanum í Kópavogi.
Framhaldsskólinn í
Austur-Skaftafellssýslu
Guðný Svavarsdóttir, bókavörður
á Fiöfn í Hornafirði, ætlar að þjálfa
lið FAS í ár en þegar Austurglugg-
inn hafði samband fyrir síðustu
helgi var liðið að koma saman og
æfingar að hefjast.
Hvernig líst ykkur á fyrstu viður-
eignina gegn MK?
„Okkur líst vel á það,” segir Guð-
ný sjálfsörugg.
Hversu oft í viku æfið þið og á
hvað leggið þið áherslu?
„Við erum nú bara í startholun-
um með þjálfunina en við munum
æfa stíft þegar nær dregur. Við
leggjum mesta áherslu á að æfa
hraðaspurningamar og svo munum
við fýlgjast vel með fréttum og lesa
blöð og hlusta á útvarp enda tel ég
að það hafi oft reynst haldreipið í
svona keppnum. Þjálfunin mun
fyrst og fremst ganga út á að virkja
athyglisgáfuna. Annars finnst mér
aðalatriðið að vera með frekar en
að vinna.”
Hefur eitthvað breyst frá því í
fyrra?
„Nei fyrir utan það að við erum
með nýtt lið sem nemendafélagið
valdi,” segir Guðný.
FAS hefur einu sinni komist í
undanúrslit en það var árið 1995.
Tóku m.a. á móti liði Menntaskól-
ans i Ármúla og lögðu það að velli
í spennandi keppni. í fyrra gekk
ekki nógu vel og féll liðið úr keppni
í fýrstu umferð.
í liði FAS eru: Sigurður Óskar
Jónsson, Finnur Smári Torfason og
Eysteinn Sindri Elvarsson.
Menntaskólinn
á Egilsstöðum
Þjálfari ME-inga er Ingvar
Skúlason en hann keppti í liði ME
sem komst í úrslit árið 1998, annað
árið í röð, sem er besti árangur
skólans hingað til. Ingvar er með
stúdentspróf og hefur lokið við tvö
og hálft ár í rafmagnsverkfræði við
Háskóla Islands.
Hvernig líst þér á fyrstu viður-
eignina gegn MA?
„Hún leggst ágætlega í mig,”
segir Ingvar. „Þetta er kannski ekki
óskadráttur en við sættum okkur
við það og við munum ekkert
breyta þjálfunarprógramminu þó
mótherjinn sé sterkur. Við höfum
unnið þá hingað til m.a. í frægri
keppni árið 1997. Við munum bara
halda okkar striki.”
Hversu oft í viku æfið þið og á
hvað leggið þið áherslu?
„Við höfum æft tvisvar í viku frá
því í byrjun október og munum æfa
stíft fram að keppni. Þetta eru auð-
vitað misþungar æfingar þar sem á-
herslan er lögð á hraðaspurningar,
almenna þekkingarleit og skipulag
á því sem lesið er. Ég læt liðið líka
semja spurningar sem kennir þeim
hvernig dómarinn hugsar.”
Hefur eitthvað breyst frá því í
fyrra?
„Já, ég þjálfaði ekki í fyrra og
með nýjum þjálfara verða auðvitað
áherslubreytingar. Ég hef lagt á-
herslu á tækni frekar en að auka
mikið við þekkingu en ég má auð-
vitað ekki gefa of mikið upp,” seg-
ir Ingvar.
Besti árangur ME til þessa er
eins og áður sagði þegar skólinn
komst í undanúrslit tvö ár í röð, árið
1997 og 1998. í fýrra varð skólinn
óheppinn og lenti á móti Mennta-
skólanum í Reykjavík i fyrstu um-
ferð sem sigraði keppnina í fýrra
líkt og þeir hafa gert síðan 1993.
Ingvar hafði þetta um ósigurinn að
segja: „Mér skilst að ME hafi verið
það lið sem stóð hvað mest í þeim.”
Og hananú!
Lið ME er óbreytt frá því i fýrra.
í því eru: Gunnar Gunnarsson, Lára
Guðlaug Jónasdóttir og Ragnar
Sigurmundarson.
Verkmenntaskóli
Austurlands
Elvar Jónsson heitir þjálfari liðs
Verkmenntaskóla Austurlands og er
28 ára gamall Stöðfirðingur. Hann
er stundakennari í VA og leiðbein-
andi í Nesskóla. Þetta er í annað
sinn sem hann þjálfar lið VA.
Hvernig líst þér á fyrstu viður-
eignina gegn MS?
„Þetta er í þriðja sinn í röð sem
við keppum við MS og í annað sinn
sem við fáum þá í fyrstu umferð,”
segir Elvar. „Við töpuðum í fyrra
og árið þar á undan töpuðum við
gegn þeim í undanúrslitum. Við
forum í þennan slag með bjartsýn-
ina að vopni og markmið okkar er
að hala inn ákveðinn fjölda af stig-
um.”
Hversu oft í viku æfið þið og á
hvað Ieggið þið áherslu?
„Við höfum lagt áherslu á fjöl-
breytni. Undanfarið hef ég kennt á-
fanga í Verkmennaskólanum sem
kallast Get 101. Við höfum hist
einu sinni í viku og líkjum eftir
spurningakeppni og ýmislegt sem
tengist þeim. Kannski má segja að
áfanginn sé hluti af félagslífinu í
VA. Þessi áfangi byrjaði eftir jól í
fýrra og var haldið áfram í haust
með fjórtán nemendur. Síðan var
valinn sjö manna hópur og af þeim
munu þrír vera í liðinu sem mætir
MS. Fram að viðureigninni æfum
við stíft og leggjum þá meiri á-
herslu á formið t.d. hraðaspurning-
ar.”
Hefur eitthvað breyst frá því í
fyrra?
„Já, náttúrulega það að við höf-
um verið með þennan áfanga á
haustönn og siðan erum við með
tvo nýja menn i liðinu,” segir Elvar.
Besti árangur VA til þessa var
þegar liðið komst í undanúrslit fyr-
ir tveimur árum og tapaði þar gegn
MS. í fyrra kepptu liðin aftur í
fyrstu umferð og hafði MS betur en
VA náði þó góðum stigafjölda.
Lið VA er breytt frá því í fyrra og
eru tveir nýir menn komnir um
borð. í því eru Matthías Heimisson,
Hallgrímur Sveinþór Arason og
Atli Már Sigmarsson en Matthías
keppti einnig í fýrra.
Mótherjarnir
MK
MK sigraði keppnina emhvern
tímann í lok níunda áratugarins
og eflaust muna margir ettir
frammistöðu Flosa Eiríkssonar,
bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar
í Kópavogi, í liðinu en hann átti
svör við flestum spurningum þa
sem nú. MK féll úr keppm i
fyrstu umferð I fyrra en teflir nú
fram nýju og fersku liði.
MA
neð sterkt lið i Gettu
yrstu árunum. Skólinn
opnina árín 1991 og
S/ð hefur þrívegis kom-
inúrslit síðan 1992, síð-
3 en þá tapaði liðið illa
l Lið MA er óbreytt frá
MS
j liði Menntaskólans við Sund
eru nýir menn um borð. Liðiðí
fyrra komst I úrslit en varð að
lúta í gras fyrir MR. MS vann
keppnina einu sinni rétt fyrir
1990 þegar tvíburarnir og rót-
tæklingarnir Sverrir og Ármann
Jakobssynir fóru á kostum.
Lið ME. Standandi frá vinstri: Eiríkur Guðmundsson, Andri Mar Jónsson, Sigurjón
Þórsson (varamenn) og Ingvar Skúlason, þjálfari. Fremri röð: Lára Guðlaug Jónas-
dóttir, Ragnar Sigurmundarson og Gunnar Gunnarsson. Mynd: Guðmundur Ingi
Úlfarsson
Lið VA. Hallgrímur Sveinþór Arason, Elvar Jónsson, Atli Már Sigmarsson og Matth-
ías James Spencer Heimisson.
Lið FAS: (f.v.) Eysteinn Sindri Elvarsson, Sigurður Óskar Jónsson, Finnur Smári Torfa-
son. Fyrir aftan stendur Guðný Svavarsdóttir þjálfari.
Hvar & hvenær
Viðureignirnar fara fram á Rás 2:
Föstudagur 7 6. janúar - MA-ME
Þnðjudagur 20. janúar - VA-MS
Þriðjudagur 23. janúar - FAS-MK