Austurglugginn - 15.01.2004, Page 8
8
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 15. janúar
Spurning
vikunnar
s • \ ' >
Hvernig líst þér á
þessar framkvæmdir
við túnfótinn?
Spurt (Fljótsdal
Helga H. Vigfúsdóttir
Valþjófsstað
Ekki var ég nú fylgjandi þess-
um framkvæmdum en þetta er
komið og þá er bara að lifa
með þessu.
Hjörleifur Kjartansson
Glúmsstöðum
Það verða allir sáttir við þær
þegar þetta er búið.
Baldur Hjaltason
Langhúsum
Þetta er allt í lagi eins og þetta
er, en þetta er ansi nálægt og
brýtur kyrrðina.
Sigurður Þórhallsson
Klúku
Framkvæmdirnar, það er svo
sem allt í lagi með þær, en
verður álið ekki orðið úrelt
þegar þær verða komnar í
gagnið.
Elísabet Þorsteins-
dóttir Skriðuklaustri
Ég get ekki verið annað en
ánægð með þær, það er mikið
um að vera í sveitinni en
kyrrðin er ekki sú sama.
MANNLÍFIÐ
Endurbygg-
ingu Végarðs
að Ijúka
Nýr Austfirðingur
Endurbyggingu Félagsheimilis-
ins Végarðs í Fljótsdal er nú að
ljúka, rétt mátulega svo Fljótsdælir
geti haldið þar þorrablót sitt, sem
sennilega verður góugleði þetta
árið. Verktaki við endurbygginguna
er Völvusteinn frá Akureyri ásamt
undirverktökum héðan að austan.
Framkvæmdirnar hófust í byrjun
september síðastliðnum og hafa
gengið vel og voru verklok áætluð
10 febrúar næstkomandi. Að sögn
Ottós Eiríkssonar annars eiganda
Völvusteins verða einhverjar tafir á
því vegna utanaðkomandi áhrifa
sem tengjast efnisöflun og
skemmda á byggingahlutum í flutn-
ingi. Endurbyggingin fólst i því að
viðbygging við gamla samkomusal-
inn sem er 77 fermetrar var rifin og
byggt nýtt hús við salinn 144 fer-
metrar að grunnfleti, auk þess sem
kjallari undir hluta gamla salarins
tæpir 40 fermetrar að stærð verður
lagfærður og útgönguleiðum á hús-
inu verður fjölgað. 1 nýja húsinu
sem er að hluta á tveimur hæðum
verður anddyri, eldhús og sýningar-
salur sem hægt er að tengja gamla
salnum og í þessum nýja sal verður
aðstaða fyrir sýningar á vegum
Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka-
virkjunar.
Á efri hæð nýbyggingarinnar
sem er 35 fermetrar verða skrifstof-
ur fýrir oddvita Fljótsdælinga og
Upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
Reiknað er með að endurbygg-
ingunni ljúki í lok febrúar og ætti
því góugleði Fljótsdæla að geta að
öllu forfallalausu hafist um mánað-
armótin febrúar, mars.
ffeildarkostnaður við fram-
kvæmdina er á bilinu 60 til 70
milljónir króna.
\
Þessi litla stúlka fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu i Neskaupstað l.des sl. Hún
vó 4350 gr. eða nærri 17,5 merkur og var 54 cm á lengd. Hún hefur verið
nefnd Anna Lovisa. Foreldrar hennar eru Auður Maria Agnarsdóttir, fædd og
uppalin á Seyðisfirði, og Ágúst Gísli Helgason og á hann seyðfirskan föður.
Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum.
Góðbændur í
kaffihorni KHB
Það er oft glatt á hjalla hjá góð-
bændum af Héraði þegar þeir
safnast saman í kaffihorni Kaup-
félagsins á Egilsstöðum. Þar bera
saman bækur sfnar bæði núver-
andi og fyrrverandi bændur. Þar
eru heimsmálin rædd, ásamt því
að helstu málum svæðisins eru
gerð skil og leyst eftir atvikum.
Skepnuhöld rædd og jafnvel,
heilu afréttirnar og eyðifirðirnír
„smalaðir".
Veðurspár til langs tíma eru af-
hjúpaðar, þar kom meðal annars
fram strax á haustdögum hjá Sig-
urjóni frá Eiríksstöðum að það
yrði milt fram að jólum, það
mundi að vísu grána nokkrum
sinnum, sem gekk eftir. Ekkert
hefur fengist upp gefið um veðr-
ið nú fram á vorið. Blaðamaður er
smeykur um að tíðin verðí ekkert
góð seinnipart vetrar, vegna þess
að spámennirnir eru ekkert fyrir
að spá illa, það getur alltaf hent
eins og alkunna er að „boðberar
slæmra tíðinda séu hengdir á
hæsta gálga".
Við Norðfjarðará
Það er fátt notalegra en að fá sér
göngutúr á sunnudegi og anda að
sér tæru lofti. Sumir göngugarpar
segjast verða hluti af náttúrunni er
þeir njóta hennar og víst má það til
sanns vegar færa. f það minnsta
fannst ljósmyndara Austurglugg-
ans hann verða hluti af einhverju
stærra og meira þegar hann gekk
meðfram Norðfjarðaránni sl.
sunnudag.
Sumir segja að umhverfi Norð-
fjarðarár sé gott dæmi um það
hvernig maðurinn hafi raskað ró
móður náttúru. En í það minnsta
þennan dag virtust mannanna verk
vera jafn forvitnileg listaverk og
þau sem maðurinn kemur hvergi
nærri. Gamalt og ryðgað járnarusl
virtist vera stillt sérstaklega upp
fyrir ljósmyndara Austurgluggans
sem sá umhverfið í römmum í
þessa stund sem göngutúrinn tók.
Fótspor á svelli virtist óendanlega
fagurt en hafa ber í huga að fegurð
fólks og hluta fer oft eftir því hug-
arástandi sem sjáandinn er í.
Þetta gamla drasl sem við köll-
um svo getur oft geymt skemmti-
legar minningar enda fá gömul
tæki og tól sem löngu er hætt að
nota ný hlutverk þegar börn eru
annars vegar. Staður vikunnar er
einhvers staðar við Norðfjarðará.
Þeir Hallbjörn Jóhannsson á Finnstöðum, Sigurjón Guðmundsson frá Eiríks-
stöðum, Þórólfur Stefánsson frá Múlastekk og Einar Haraldur Þórarinsson
frá Fljótsbakka hittust í kaffihorni KHB og ræddu landsins gagn og nauðsynj-
ar.