Austurglugginn


Austurglugginn - 15.01.2004, Blaðsíða 9

Austurglugginn - 15.01.2004, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. janúar AUSTUR • GLUGGINN 9 Matgæðingar vikunnar eru Elisabet Þorsteinsdóttir og Skúli Björn Gunnarsson. ATGÆÐINGUR VIKUNNAR [ kjölfar hátíðanna er nú vart vinsælt að bera annað á borð en grænmet- isrétti. Við hjónin ákváðum hins vegar að gerast svo djörf að leiða lesend- ur f freistni í ársbyrjun. Sífun mcarýaccio (forréttur) Beinhreinsuð flök af silungi (helst sjóbleikju) Salt og svartur pipar Fínsaxaður graslaukur (má nota þurrkaðan) Ristuð graskersfræ og fersk steinselja Extra Virgin ólífuolía Silungurinn sneiddur þunnt á diska. Sneiðarnar penslaðar vel með olíu. Salti og pipar stráð yfir ásamt graslauknum og fræjunum, ( lokin skreytt með steinselju. Geymt á köldum stað í 1-2 tíma. Gott að kreista nokkra dropa af sítrónu yfir um leið og diskarnir fara á borðið. Einfalt tilbrigði við þennan forrétt varð til í Veiðivötnum síðasta sumar. Var þá notaður olíulögur af krydduðum Feta-osti, fiskekrydd frá Knorr og muldar hunangsristaðar salthnetur. Víffíjurtafyfft famfafœrí (þarf a.m.R. 2ja daga fyrirvara) úrbeinað lambalæri 1 laukur fínt saxaður 2 hvítlauksrif, söxuð 2 tsk blóðberg eða timian 1 msk lamb islandia krydd 2 msk ólífuolía salt og svartur pipar Stráið vel af salti og pipar inn í lærið. Hrærið öðru saman og dreifið innan í. Vefjið upp lærið og setjið í net. Kryddið vel að utan með salti, pipar og lamb islandia. Geymið á köldum stað í a.m.k. tvo sólarhringa. Steikt við 150 gráður í 2-2 1/2 tíma, þá pakkað I álpappír og látið standa í hálftíma fyrir framreiðslu. McUœtí Brúnaðar gulrætur og rósakál: 100 gr af smjöri brædd í potti og 100 gr púðursykri síðan bætt út í; þar næst sett út í 250 gr af míní gulrótum og 250 gr af rósakáli. Soðið ( ca. 20 mín., kryddað með salti og pipar. Grillaðar kartöflur: Kartöflur skornar í báta, penslaðar með ólífuolíu og saltaðar vel, bakaðar við 250 gráður þar til þær hafa fengið góðan lit. Við ætlum að halda þessu innan fjölskyldunnar og skorum á Þor- gerði Sigurðardóttur mág- og svilkonu okkar i Fellabæ sem næsta matgæðing. hagyrði i nga hornið 27 Sælir lesendur og gleðilegt ár. í tilefni af nýliðnum áramótum og umræðum um Qár- málafyrirtæki landsins varð þessi vísa til: Gamla árið gladdi marga, gefur öðrum nýja von. Stæl með það mun status bjarga stofnfjáreigenda í Spron. Haraldur Hjálmarsson frá Kambi orti eftirfarandi vísu á gamlárskvöldi: Margir eldri hagyrðingar trúðu mjög á áhrifamátt vís- unnar og er eftirfarandi staka eftir Starra í Garði, gott dæmi um það: Gustinn kalda þoldi þjóð, þó að blæddi undin, því hugann vermdi vísa góð vel í stuðla bundin. Lyf hafa bæði kosti og galla og þegar hin eina og sanna „pilla” kom á markað, orti Starri: Allir dagar eiga kvöld, allar nætur daga. Svona verða árin öld aldir mannkynssaga. Pillan hefur högum breytt, hér er töpuð glíma. Sýnist nú til einskis eytt orku manns og tíma. Haraldi þótti góður sopinn og svo mun einnig hafa verið um samferðamann hans, sem fékk þessa lýsingu: Aldrei sést hann einn á ferð, er það mjög að vonum, því að timburmannamergð mögnuð fylgir honum. Kunningi Haraldar, sem þá var kaupfélagsstjóri á Hofsósi, kvæntist á miðjum aldri og gerði Haraldur þá þessa vísu, en tekið skal fram, að ég hef einnig heyrt hana í annarri útgáfu, þar sem nafn mannsins er til- greint: Margur sig að búskap ber besta lífs á skeiði. Kunningi minn kominn er á kot sem stóð í eyði. Þegar ég hóf að setja þetta hagyrðingahorn á pappír, var það ásetningur minn að semja hugleiðingu um ný- byrjað ár, en hinn margffægi tímaskortur og andleysi mitt kom í veg fyrir það. Því er við hæfi að enda svona: Fáar hallir ríms hér reisi, rúmt þótt sé um efniviði. Gleggri mynd af getuleysi gerist vart á þessu sviði. Kveðja, Kristján Magnússon Leiðrétting Farið var rangt með nafh höfundar í síðasta Hagyrð- ingahorni. Einar H. Guðjónsson frá Heiðarseli var ranglega nefndur Jón. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. KRAKKA hornið J) I Austurglugginn kynnir með stolti nýjan lið í blaðinu sem bera mun heitið Krakkahornið. Með því er von okkar að listrænir krakkar fái útrás fyrir sköpunarþörf sfna og leyfi öðrum íbúum Austurlands að njóta afrakstursins. Listelskir krakk- ar eru hvattir til að senda Austur- glugganum myndir á heimilisfang okkar: Austurglugginn, Hafnar- braut 4, 740, Neskaupstað. Gjarnan má fylgja með lítil saga sem segir lesendum hvað sé á seyði. Það er hún Hekla Liv Maríasdótt- ir sem hrindir Krakkahorninu úr vör. Hekla Liv er sex ára gömul og býr á Sæbakka 26a í Neskaupstað. Á myndinni sjáum við flugelda springa og væntanlega er það lista- maðurinn sem stendur þarna á steini neðst í vinstra horninu með stjörnublys. Þetta hljóta að vera áramótin.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.