Austurglugginn - 15.01.2004, Blaðsíða 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 15. janúar
MENNING I LISTIR
Umsjón: jonknutur@agl.is
Allir vilja vera
í Skaftfelli
Mikil ásókn er í íbúðina i
Menningarmiðstöðinni Skaft-
fell á Seyðisfirði en um þrjátíu
manns hafa sótt um að dvelja í
íbúðinni á árinu. Athygli vekur
hve samsetning umsækjenda er
alþjóðleg en umsækjendur eru
frá m.a. Danmörku, Frakk-
landi, Bandaríkjunum, Sviss,
Slóveníu, Finnlandi og Niger-
íu. Margir hverjir eru lista-
menn sem hafa sýnt víða.
Áhuginn eykst
Aðalheiður Borgþórsdóttir,
kynningarfulltrúi á Seyðisfirði,
segir að áhuginn hafi vaxið ár
frá ári og aldrei hafi áhuginn
verið eins mikill og nú. „Við
höfum ekkert auglýst nema á
netinu en síðan hefur þetta
spurst út viða,” segir hún. Mest
ásókn er yfir sumartímann en í
íbúðinni eru tvö herbergi og
geta verið sjö manns í íbúðinni
í einu ef menn sætta sig við að
ijölmenna í herbergin.
Söngvakeppni
félagsmiðstöðva
í Fjarðabyggð
I kvöld (fimmtudagskvöld)
fer fram söngvakeppni félags-
miðstöðva í Fjarðabyggð en
þær eru alls þrjár, ein í hverjum
byggðarkjarna. Þetta er í fyrsta
sinn sem keppnin er haldin
með þessum hætti en keppnin
fer fram í Egilsbúð og byrjar
klukkan 20:00. Alls taka þátt
sex söngvarar og það er norð-
firska hljómsveitin Out loud
sem leikur undir. Ahorfendur
munu m.a. fá að heyra lög með
Macy Gray, Ozzy Osbourne og
Coldplay og segja kunnugir að
hér séu á ferðinni afar efnilegir
krakkar. Sigurvegarinn mun
svo keppa fyrir hönd Fjarða-
byggðar í „Samféskeppninni”
seinna í vetur.
Urðu að fá myndina
í viku í viðbót
Sannkallað Hringadrótt-
insæði hefur lagst á Austfirð-
inga en nýjasta myndin í trílóg-
íunni, Hilmir snýr heim, hefur
verið sýnd á Egilsstöðum und-
anfarna daga. Uppselt hefur
verið á alla sýningamar og hafa
aðstandendur óskað eftir því að
hafa myndina lengur og sýna
hana fjórum sinnum í viðbót.
Aætlað er að 900 manns muni
sjá myndina í bíó hér eystra en
það eru um 7,5 prósent allra
Austfirðinga. Ef sama hlutfall
myndi sjá myndina í Indlandi
værum við að tala um 75 millj-
ónir bíógesta (og nú er best að
hafa upphrópunarmerkin þrjú)
!!! Þetta er hins vegar ekki met
því fleiri sáu Titanic um árið
eða 1249 manns.
Hann mun ekki skálda
fréttirnar
Ásgrímur Ingi Arngrímsson er
fæddur þann 27. október 1973.
Hann er skáld, leikritahöfundur og
nú síðast fréttamaður hjá RÚV á
Austurlandi. Meðal þess sem hann
hefur afrekað er leikrit um Kjarval
og tvær ljóðabækur, Ljóðs manns
æði og Óðs manns kvæði. Gefúm
honum orðið:
„Ég ólst upp á Borgarfirði eystra
hjá foreldrum mínum Arngrími
Magnússyni og Elsu Jónsdóttur.
Faðir minn var útibússtjóri Kaup-
félagsins en mamma vann margs-
konar störf m.a. lengi i Álfasteini.
Það toppar mig enginn þegar ég
segi hetjusögur af mömmu minni.
Hún skipti m.a. um vél í Subarun-
um mínum þegar hún var sextíu og
sjö ára gömul. Ég þarf ekki að
segja fleira hún er ótrúlegur snill-
ingur. Þau eru nú bæði sest í helg-
an stein en eru hress miðað við
aldur.
Eftir skólagöngu á Borgarfirði
fór ég í Alþýðuskólann á Eiðum.
Ég var mikið í félagslífi á þeim
árum og tónlistarlífi líka. Ég var
trommuleikari í þungarokkshljóm-
sveitinni Trössunum sem gerði
garðinn frægan fyrir austan á þess-
um tíma. Við kepptum tvisvar i
Músíktilraunum Tónabæjar en ég
yfirgaf hljóm-
sveitina þegar
við stóðum á
meikþröskuld-
inum. Þeir
komust reyndar
aldrei alveg
yfir þröskuld-
inn þrátt fyrir
að hafa fengið
mikið betri
trommuleikara
í staðinn fyrir
mig.
Eftir Eiða fór
ég í Fjölbraut-
arskólann á Sauðár-
króki og lauk stúd-
entsprófi þaðan árið
1993. Ég kenndi
síðan tvo vetur í
Grunnskólanum á
Borgarfirði áður en
ég fór í Kennarahá-
skólann sem ég lauk
vorið 2000.”
Ásgrímur hefur
mikinn áhuga á leik-
list og hefur tekið
þátt í nokkrum upp-
færslum en mesta
athygli vakti þegar
hann skrifaði leikrit
um Kjarval sem sýnt
var sumarið 2002. Blaðamanni
Austurgluggans leikur forvitni á
að vita hvort hann leiti mikið í ræt-
urnar í sinni listsköpun?
„Ég er landsbyggðarmaður og ef
ég er skáld er ég líklega lands-
byggðarskáld. Ég hef hinsvegar
reynslu af því að búa í Reykjavík
líka og öll reynsla markar mann á
einhvern hátt,” svarar Ásgrímur.
Hvemig líst þér svo á nýja starf-
ið?
„Mér líst mjög vel á að fara að
vinna hjá Ríkisútvarpinu á Austur-
landi og vonast til að eiga gott
samstarf við Austfirðinga í því.
Það á svo eftir að koma í ljós
hvernig mér gengur að takast á við
þetta því þetta er auðvitað bæði
flókið og krefjandi starf. Ég er nú
hálfgerður sauður að mörgu leyti
en ætli þetta gangi ekki bara flnt.”
Fréttamennska og skáldskapur.
Útilokar þetta ekki hvort annað?
„Ég vona bara að fólk haldi ekki
að ég sé að skálda fréttirnar jafn-
óðum! Að öllu gamni slepptu ætla
ég að einbeita mér að nýja starfinu
og hafa skáldskapinn sem hobbý.”
Þrír tenórar
í Egilsstaða-
kirkju
Tenórsöngvararnir Þorbjörn Rúnarsson, Þorsteinn Helgi
Árbjörnsson og Vígþór Sjafnar Zóphoníasson, héldu í síð-
ustu viku tónleika í Egilsstaðakirkju, Keith Reed lék undir á
píanó.
Á efnisskránni voru margar frægar söngperlur, óperuar-
íur og íslensk sönglög. Tenórarnir byrjuðu á að syngja ein-
söngslögin, Sjá dagar koma, Gígjuna, og Draumalandið.
Fjölmenni var á tónleikunum og var tenórunum mjög vel
tekið enda sungu þeir frábærlega vel og sýndu oft virkílega
skemmtileg tilþrif.
Þorbjörn hefur sungið frá blautu barnsbeini sem kór-
Auglýsing um verkefnastyrki
til menningarstarfs á Austurlandi
Menningarráó Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni
samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamélaráðuneytisins um
menningarmál, frá 14. maí 2001.
• Veita á styrki til menningarstarfs á Austurlandi. Ein úthlutun
verður árið 2004, í lok febrúar.
• Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
á Austurlandi geta sótt um styrk til margvíslegra menningar-
verkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.
• Áhersla við styrkveitingu 2004 verður:
1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina.
2. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. Sérstakt vægi fá
verkefni sem miða að fjölgun starfa.
3. Aðkomu ungs fólks að listum og menningu, sérstaklega þess
sem hefur stundað listnám eða lokið því.
• Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar.
Ætlunin er að tilkynna um úthlutun fyrir lok febrúar.
• Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til
gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni
www.skriduklaustur.is/menning. Þar er einnig að finna stefnu
sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, úthlutunarreglur
og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur.
Tenórarnir þrír syngja af hjartans list i Egilsstaðakirkju. Frá
vinstri Þorsteinn Helgi Árbjörnsson, Þorbjörn Rúnarsson og
Vigþór Sjafnar Zóphoniasson. Mynd: Ágúst Ólafsson
söngvari og einsöngvari. Hann hefur m.a. sungið aðalhlut-
verkið í Töfraflautunni, Rakaranum frá Sevilla og Cosi van
Tutte hjá Óperustúdíói Austurlands. Einnig söng hann að-
alhlutverkið í Rakaranum frá Sevilla hjá íslensku óperunni
árið 2002.
Þorsteinn Helgi lauk 8. stigs prófi frá Tónlistarskóla Aust-
ur-Héraðs síðastliðið vor undir handleiðslu Keeth Reed.
Hann hefur sungið í uppfærslum Óperustúdíós Austur-
lands á Eiðum. Hann stundar nú söngnám við Oklahoma
University í Bandaríkjunum.
Vígþór Sjafnar sem lýkur söngnámi við Tónlistarskóla
Austur-Héraðs næsta vor og stefnir á framhaldsnám í söng
erlendis hefur sungið í kórum og tekið þátt í uppfærslum á
ýmsum verkum hjá óperustúdíói Austurlandas og Leikfé-
lagi Fljótsdalshéraðs.
Þorsteinn Helgi og Vígþór Sjafnar hafa gefið út geisla-
diska með söng sínum.
Keith Reed er þekktur söngvari og söngkennari, en hann
lék undir söng tenóranna þriggja í Egilsstaðakirkju á píanó.
Keith hefur verið ein aðalsprautan í klassísku tónlistarlífi á
Austurlandi mörg undanfarin ár.
sigad@agt.is
• Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð
skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2004.
c
• Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, |
menningarfulltrúi hjá Gunnarsstofnun, í síma 471-32.30, 860-2983 1
eða með tölvupósti menning@skriduklaustur.is
• Umsóknir skal senda, í tölvupósti og í ábyrgðarpósti, til
Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123,700 Egilsstaðir og
menning(a)skriduklaustur.is.
Menningarráð Austurlands auglýsir viðveru í sveitarfélögum á Austurlandi
vegna úthlutunará menningarstyrkjum.
Viðtalstími menningarfulltrúa Signýjar Ormarsdóttur verður eftirfarandi:
Einnig er hægt að
óska eftir viðtölum
á öðrum tímum.
Skrifstofa
menningarfulltrúa
er að Miðvangi 2-4,
Egilsstöðum.
Sími 471-3230 og
860-2983
Seyðisfjörður 19. janúar kl. 15.00-17.00
Menningarmiðstöðinni Skaftfelli
Fjarðabyggð 20. janúar kl. 15.00-17.00
Fundarsal Bæjarskrifstofu Eskifirði
Strandgötu 49
Djúpivogur 21. janúar kl. 13.00-15.00
Hreppsskrifstofu Bakka 1
Hornafjörður 21. janúar kl. 17.00-19.00
Skrifstofu Menningarráðs Nýheimum
Menningarráð Austurlands
Breiðdalsvík 22. janúar kl. 13.00-15.00
Hreppsskrifstofu Ásvegi 32
Vopnafjörður/Bakkafjörður
2ó.janúar kl. 14.00-17.00
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps
Austur-Byggð/Fáskrúðsfjarðahreppur
27. janúar kl. 14.00-16.00
Skrifstofa Austurbyggðar,
Hafnargötu 12 Fáskrúðsfirði
Fljótsdalshérað/Borgarfjörður
28. janúar kl. 13.00-17.00
Skrifstofu Menningarráðs
Miðvangi 2-4 Egilsstöðum