Austurglugginn


Austurglugginn - 15.01.2004, Qupperneq 11

Austurglugginn - 15.01.2004, Qupperneq 11
Fimmtudagur 15. janúar AUSTUR • GLUGGINN 11 IÞRÓTTA % FRÉTTIR Umsjón: sigad@agI. is Svo gæti farið að Fannar Magnússon á Egilsstöðum verð eini keppandinn í Snjókrosskeppni vetrarins hér að austan í vetur. Keppnin hefst fyrripart febrúar með bikarkeppninni, síðan hefst ístandsmótið seinna i febrúar. Blak: Þróttur átti góða helgi Geir segir stelpunum til. Nýtt leikkerfi var prófaö um helgina og gaf þaö góöa raun. Fjarar undan snjó- krosskeppninni hér eystra Mikil óvissa er með keppendur hér af Austurlandi í snjókrosskeppni vetrarins sem hefst nú í febrúar næstkomandi. Það hefur verið mikil gróska í snjó- krossinu hér eystra á undanfornum árum og margir keppendur héðan tekið þátt á hverju ári. Nú gæti svo farið að aðeins verði einn keppandi héðan að austan á keppnistímabilinu sem hefst í næsta mán- uði. Dýrt úthald og aðstöðuleysi Ástæðurnar fyrir þessu áhugaleysi eru að því er best verður séð helst tvær, annars vegar að þetta er dýrt úthald og hins vegar aðstöðuleysi til æfinga hér fyrir austan. Það er staðreynd að þátttaka í þessari keppni er mjög dýr. Snjósleðarnir sem notaðir eru til keppn- innar eru dýrir, ódýrustu sleðarnir sem notaðir eru til keppni eru á verðbilinu ein komma tvær miljón- ir til ein og hálf. Síðan er nokkur viðhaldskostnað- ur sem fylgir svona keppni auk trygginga og flutn- ings milli keppnisstaða. Þennan kostnað verða keppendur að mestu að bera sjálfir þar sem erfitt hefur verið að afla kostunar og styrktarað'ila. Aðstöðuleysi til æfinga Aðstöðuleysi til æfinga hér eystra hefur ekki ver- ið til að bæta ástandið. Viðræður hafa verið milli þeirra sem stunda þessa keppni og bæjaryfirvalda á Austur-Héraði, þó bæjaryfirvöld hafi verið jákvæð og lýst sig viljug að leysa úr þessu aðstöðuleysi hef- ur ekkert gerst í þeim málum. Keppendur hafa á undanförnum árum verið á hrakhólum með æfinga- svæði, síðasta vetur gerðu þeir æfingasvæði uppi á Fjarðarheiði en það er óhentugt og dýrt að halda úti æfingum svo úrleiðis og þar er engin aðstaða til smáviðhalds sem svoleiðis æfingum fylgir. Kepp- endur sóttu um að fá aðstöðu á síðasta vetri á svæði meðfram Eyvindará þar sem snjór sem mokað var burtu úr bænum var látinn. Bærinn var jákvæður til þess en þá strandaði á að staðurinn var svo nálægt hesthúsahverfinu að hestamönnum fannst það ekki fara saman með hestamennskunni. Von að úr málum rætist Nú gæti hins vegar farið að rofa til i þeim efnum þar sem verið er að flytja hesthúsabyggðina út í Fossgerði. Nú er bara að vona að úr þessum málum rætist svo keppendum fjölgi aftur sem fyrst en full- ur vilji er til þess hjá þeim er þetta sport stunda. Þetta er nú einu sinni mjög vinsæl keppnisgrein og þessum snjókrosskeppnum fylgja margir áhorfend- ur auk þess sem sýnt er frá keppninni í sjónvarpi. Það kom að því að vélin í liði Þróttar komst í gang en um helg- ina tók liðið á móti HK og sigraði báða leikina stórt. Fyrri leikurinn fór 3-1 en sá seinni fór 3-0. Þrótt- ur sýndi mikla yfirburði í öllum hrinunum og greinilegt að það býr mikill kraftur í liðinu. Geir Hlöðver Sigurpálsson, þjálfari Þróttar, er að vonum afar ánægður með stelpurnar en í leikjunum um helgina reyndi hann nýja uppstill- ingu sem gafst vel. „Miglena Apostolova spilaði öllu upp og þó munað hefði um hana i sókninni var uppspilið jafnara,” sagði Geir í samtali við Austurgluggann. „Eg var óskaplega ánægður með þær. Við vorum með nýja uppstill- ingu og leikmenn fengu ný hlut- verk en þær skildu þetta vel og spiluðu frábærlega. Það var smá titringur í einni hrinu í fyrri leikn- um og það sást að verið var að prófa nýja hluti en svo small þetta allt saman,” sagði hann. Ungir leikmenn að sýna meistaratakta Tveir ungir leikmenn vöktu at- hygli í leiknum og sýndu meistara- takta. Þetta voru þær Jóna Guð- laug Vigfúsdóttir og Velina Apostolova en þær eru ekki nema fjórtán ára gamlar og spila nú með meistaraflokki. „Þær sýndu gríðar- lega flotta takta,” sagði Geir sem segir þær mjög efnilegar. Fleiri leikmenn sýndu góðan leik þ.á.m. reynsluboltarnir Þorbjörg Jóns- dóttir og Jóna Harpa Viggósdóttir en sú fyrrnefnda spilaði stöðu frelsingja, sem er móttöku og varnarstaða, en Þorbjörg var að spila með Þrótti eftir nokkurt hlé. „Eg vona að hún spili áfram með okkur,” sagði Geir. “Það færðist ró og öryggi yfir varnarleikinn með hana um borð.” Góð sálræn áhrif á liðið Þrótti hefur ekki gengið nægi- lega vel í haust enda liðið ungt en leikirnir nú um helgina sýna ef til vill að betri tíð sé framundan. Að- spurður hvort þetta hafi ekki góð sálræn áhrif á liðið segir Geir svo vera. „Jú, ég held að það sé ekki nokkur spurning en við megum ekki gleyma því að HK er slakasta liðið í deildinni,” sagði hann. Næsti leikur Þróttar er við nafna sína í Reykjavík og fara leikirnir fram fyrir sunnan 23. og 24. janú- ar. Fyrri leikur Fyrsta hrina: 25-12 Önnur hrina: 17-25 Þriðja hrina: 25-19 Fjórða hrina: 25-19 Seinni leikur Fyrsta hrina: 25-19 Önnur hrina: 25-16 Þriðja hrina: 25-15

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.