Austurglugginn - 01.07.2004, Blaðsíða 6
6
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 1. júlí
VIÐTALIÐ
Hilmar Örn Garðarsson um nýja PLÖTU SÍNA:
Það er ekki oft sem ungir Austfirðingar senda frá sér plötu
og enn sjaldnar sem þeir fjalla á opinskáan hátt um líf sitt
og gera upp fortíð sína á þann hátt. Því vakti það athygli
Austurgluggans þegar fréttist að komin væri út plata þar
sem ungur maður að austan opnar hug sinn og hjarta og
veitir hlustendum innsýn í líf sitt.
ffilmar Orn Garðarsson var að senda frá sér sína fyrstu plötu
um daginn. Plötuna kallar hann „Pleased to leave you” og
segir ffilmar tónlistina á henni vera rokk í anda Neil Young
og Plastic Ono Band. Með Hilmari spila þeir Orri Harðar-
son, Birgir Baldursson, Eðvarð Lárusson, Jón Ingólfsson,
Flosi Einarsson og Jóna Palla syngur með Hilmari í einu
lagi. A plötu Hilmars er að finna melódíur, „grunge” rokk
og einnig gætir þar djassáhrifa en öll lögin eru eftir Hilmar.
Platan á sér ekki hliðstæðu á Islandi svo blaðamanni sé
kunnugt og verður að leita út fyrir landsteinana til að finna
haennar líka. Austurglugginn náði tali af Hilmari þar sem
hann var að burðast með græjurnar sínar niður á Nelly's
hvar hann var að fara að spila.
„Nei, hún er ekki kveðja til heimabyggðarinnar. Þessi plata
er uppgjör mitt við fortíðina og það útskýrir nafnið,” segir
Hilmar þegar blaðamaður spyr hvort nafn plötunnar sé
kveðja til Austurlands. „Þessi fortíð einkenndist af notkun á-
fengis og annarra vímuefna en nú hef ég sagt skilið við hana
og reyni að gera hana upp með þessari plötu. Eg er þó ekki
í leiðinni í ræktina,” segir Hilmar og hlær. „Textarnir eru
svona í anda Nick Cave, Tom Waits og David Gray, dálítið
þungir kannski en fjalla um fortíð mína. Þeir eru á ensku
einfaldlega vegna þess að mér þykir þægilegra að semja á því
tungumáli. Ég er ekki orðinn nægilega góður í bragfræði til
að semja vel á íslensku en ég stefni að því að næsta plata
verði á móðurmálinu.”
Aðspurður um hverjir séu helstu áhrifavaldar hans, segir
Hilmar þá vera marga. „Eg gæti nefnt marga til sögunnar
s.s. Bob Dylan, Nick Cave, Tom Waits, Neil Young og fleiri.
Svo er ég svona til helminga pólitískur í hugsun og reiður
ungur maður og myndi telja mig vinstri sinna en ég er ekki
róttæklingur. Ekki lengur.”
Hilmar er 24 ára Stöðfirðingur sem snemma sýndi hvað í
honum býr. Hann hefur spilað opinberlega síðan hann var
sextán ára gamall en þá var hann með hljómsveitinni Spirit-
us. Sú hljómsveit spratt úr Tónlistarkólanum á Stöðvarfirði
en þar hefur verið afar gróskumikið starf á undanförnum
árum. Hann hóf feril sinn sem trúbador nítján ára þegar
hann hélt tónleika á Svarta folanum á Stöðvarfirði og síðan
þá hefur leið hans legið víða.
Hvernig hefur þú það Hilmar, hvað ertu að brasa núna?
eins? „Það er allskonar fólk eins og
gengur og gerist. Ég spila mest á
pöbbum en mér finnst að mörgu
leyti betra að spila fyrir útlendinga
því þeir gjamma ekki frammí,
heldur sitja bara með bjórinn sinn
og hlusta. Ég spila bæði frum-
samið efni og svo náttúrulega líka
lög eftir gömlu meistarana, inn-
lenda sem erlenda.” Hilmar seg-
ist ekki vera með neinn sérstakan
markhóp í huga. „Þetta er bara
mín tónlist og ég vona að sem
flestir njóti hennar.”
Hvað finnst þér um íslenska
tónlist í dag?
„Sumt er gott, en margt er afar
slæmt. Við eigum marga fína
tónlistarmenn og þar standa
Megas, Bubbi, Sigurrós og
fleiri uppúr. Mest af tónlist-
inni þykir mér þó vera orðið
alltof amerískt og flestir pæla
meira í sölu en listsköpun.
Þetta er orðinn of mikil iðn-
aðarframleiðsla og mér sýn-
ist margir leggja meira upp
úr ljósabekkjum og lyfting-
um en því að gera góða tón-
list.” Þegar Hilmar er
spurður að því hvort hann
langi að taka þátt í E-
urovision, hugsar hann sig
um í skamma stund en
segir svo: „Nei, en aldrei að segja
aldrei. Hver veit nema að eftir tuttugu ár verði tónlistin mín
farin að hljóma í panflautu útsetningum á skiptiborðinu hjá
Landssímanum. Þá kannski fer maður í Eurovision. Ég hef
ekkert voðalega mikið álit á Eurovision tónlist, því miður.”
Hilmar reiknar ekki með að setjast aftur að á Austurlandi á
næstunni en segir að það sé aldrei að vita nema hann geri
það seinna á lífsleiðinni og hann reiknar alls ekki með að
rjúka austur til þess að vinna við álver eða virkjun. Hann
segist ætla að reyna að starfa sem tónlistarmaður og vonast
til að geta helgað sig tónlist í framtíðinni. „Það skiptir ekki
öllu að þessi plata skili hagnaði og ég verð ekkert ósáttur þótt
ég tapi á henni fjárhagslega. Ég lít fyrst og fremst á hana sem
kynningu á mér og vona að hún verði til þess að ég fái nóg
að gera við spilamennsku á næstunni.”
Hilmar Öm Garðarsson
var að senda frá sér sína
fyrstu plötu um daginn.
Plötuna kallar hann
„Pleased to leave you” og
segir Hilmar tónlistina á
henni vera rokk í anda
Neil Young og Plastic
Ono Band.
„Ég hef það fínt og er í mikilli spilamennsku og er að kynna
plötuna. Það stóð til að við Geir Harðar færum saman í tón-
leikaferð en það datt uppfyrir. Ég mun hinsvegar halda á-
fram að spila og kem austur í sumar og svo spila ég líka mik-
ið í Reykjavík. Ég er mjög sáttur við aðsókn að tónleikunum
mínum.” Hverjir koma að hlusta - eru allir áheyrendur
Að lokum Hilmar, ertu sáttur við lífið og tilveruna?
„Mjög svo - eins og meistari Megas segir: „Ef þú smælar
frarnan í heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig. Já, og
svo ætla ég að reyna að vera með útgáfutónleika á Austur-
landi um helgina.”