Austurglugginn


Austurglugginn - 01.07.2004, Side 8

Austurglugginn - 01.07.2004, Side 8
8 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 1. júlí Spurning vikunnar Hvað er skemmtilegast að gera í sumarbúðum? Spurt á Eiðum Teitur Schiöth Mér finnst skemmtilegast að fara í borðtennis. Kristófer Einarsson Fótboltinn. Frosti Grétarsson Útivistirnar og svo finnst mér líka gaman að syngja. Jóna Særún Sigurbjörnsdóttir Að kalla strákana krútt. Bryndís Kjartansdóttir Að vinna brenniboltakeppnina. MANNLÍFIÐ Austurgluggirm heimsækir sumarbúðir á Eiðum: Takk fyrir matinn, hann var góður! Það voru hlýðin börn sem blaðamaður hitti í sumarbúðunum á Eiðum en þar eru nú fjörutíu krakkar á aldrinum, tíu til þrettán ára gamlir. Yfir sumarið koma í kringum tvö hundruð börn á aldr- inum sjö til þrettán ára og hljóta kristilega uppfræðslu á vegum Kirkjumiðstöðvar Austurlands. Nú er yfirskriftin „Þú ert þýðing- armikill” sem er grunnþemað í þeirri fræðslu sem fer fram í sum- ar. Markmiðið augljóslega að byggja upp sjálfsmynd krakkanna sem koma víðsvegar að frá Aust- urlandi. Venjulegur dagur hjá krökkunum skiptist í fræðslu inni- við og svo fer drjúgur tími í allskyns útiveru þar sem krakk- arnir leika sér í hinum ýmsu leikj- um. Krakkarnir voru að fá sér að borða þegar þessi mynd var tekin. Sýndist blaðamanni lystin vera góð. Þegar blaðamaður rak inn nefið í sumarbúðirnar var hádegismatur, kjötbollur og kartöflumús og greinilegt að krökkunum líkaði maturinn ágætlega. I það minnsta sögðu þeir í kór að hádegismat loknum: „Takk fyrir matinn, hann var góður!” Þar eru sem sagt elda- buskurnar sem fá líka þau skila- boð að þær séu þýðingarmiklar. Þessir krakkar voru á leiðinni heim daginn eftir þegar blaðamann bar að garði. Samkomuhúsið á Stöðvarfirði má muna sinn fífil fegurri en hús- ið var reist á fjórða áratugnum í sjálfboðavinnu af félögum í Ung- mennafélagi Stöðvarfjarðar. Það hefur gegnt ýmsum hlutverkum í áranna rás - skóli, dansstaður, kvikmyndahús, listsýningahús og íþróttahús svo eitthvað sé nefnt. Húsið er munaðarlaust um þessar mundir en nýlega auglýsti Austur- byggð eftir áhugasömum aðilum sem vildu taka það að sér. Enginn hefur gefið sig fram og því getur farið svo að brátt verði húsið rifið. I sumar verður þó grafíksýning í því en hvað tekur síðan við, veit enginn. bvg Nýr Austfirðingur Þessi spræki drengur fæddist þann 10. júní sl. á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað. Foreldrar hans heita Sigþór Steindórsson og Hanna Björk Birgisdóttir. Hann vó 13 merkur og var 51 cm. að lengd. Hann á fjögur hálfsystkini og fjölskyldan er búsett á Stöðvarfirði. Rauða torgið opnar í Neskaupstað Margt var um manninn á opnunarhófi Rauða torgsins sl. laugardag. Hér sést Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, færa staðnum gjöf, hvorki meira né minna en stytta af félaga Lenín. Afar viðeigandi að það standi stytta af byltingarleiðtoganum á Rauða torginu. Nýr pöbb opnaði í Neskaup- þetta er eitt af glæsilegustu hús- stað um síðustu helgi að Egils- um í Neskaupstað í dag. braut 19 en þar var rekin versl- un í mörg ár. Pöbbinn ber nafn- Blaðamaður mætti sjálfur á ið Rauða torgið sem er auðvitað opnunarhófið og getur staðfest skírskotun í sósíalíska fortíð að hér er einkar glæsilegur Neskaupstaðar. pöbb á ferðinni og minnir ó- neitanlega á breska pöbba. Það Eigendurnir eru Jófríður vekur athygli að á Rauða torg- Gilsdóttir og Þorfinnur Her- inu eru reykingar bannaðar sem mannsson og þau hafa undan- mun efalítið ekki draga úr vin- farið ár unnið hörðum höndum sældum staðarins, ekki síst hjá að því að gera upp húsið en þeim sem eldri eru. jká

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.