Austurglugginn


Austurglugginn - 01.07.2004, Qupperneq 9

Austurglugginn - 01.07.2004, Qupperneq 9
Fimmtudagur 1. júlí AUSTUR • GLUGGINN 9 EFNIÐ \ N D INN Umsjón: rut@agt.is Silvia Hromadko sundlaugarvöröur á Hallormsstað er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. hagyrðinga , ..**.. . ... ^Íatgæðingur VIKUNNAR FORRÉTTUR: Zazífií með frauðí 1 stór dós af MS rjómaskyri 3 - 4 hvítlaukslauf pressuð 1/8 gúrka hökkuð [ smátt Salt eftir behag og örlítið af paprikukryddi. Allt hrært saman og borið fram með (heitu) hvítu brauði. AÐALRÉTTUR: Sælt veri fólkið! Enn er að mér komin röðin að ausa úr kvæðabrunni yfir þá les- endur Austurgluggans, sem kunna að vilja staldra við þennan þátt í blaðinu og ákveða að fletta ekki á- fram, þegar þeir sjá myndina af mér í Neistagallanum. Um þessar mundir stendur yfir það verkefni á landsvísu að efla sveitarstjórnarstigið, sem mun væntanlega leiða til kosninga um sameiningu sveitarfélaga eftir svæðum í fyllingu tímans. Til að stýra því ferli hafa verið valdir ýmsir spekingar. Meðal þeirra er vinur minn, Smári Geirsson, fyrr- um andlegur leiðtogi alþýðlegra bandalagsmanna í Neskaupstað og einn af þeim framsýnu sveitar- stjórnarmönnum, sem eigna verð- ur það framfaraspor að stuðla að sameiningu þeirra þriggja sveitar- félaga, er nú bera nafnið Fjarða- byggð. Að beiðni annars framsýns vinar míns, Guðmundar Bjarna- sonar, bæjarstjóra þar, orkti ég eitt sinn vísur um Smára, fyrir þorra- blót að mig minnir. Var það gert frá sjónarhóli eins þeirra Qöl- mörgu sanntrúuðu kommúnista, sem ég gaf mér að hlytu að vera mótfallnir því að kratar á Eskifirði kæmust til valda með Smára og fé- lögum í hinu nýja sveitarfélagi (sem gárungamir vildu í upphafi nefna „Austurríki”). Vísurnar nefndi ég „LITLA MOSKVA - IN MEMORIAM” Öðm vísi mér áður brá með eldrauða kápu á herðum sá smælingjavininn Smára. Nú hefur stórlega stefnu breytt Stalin gleymdur, ei lifir neitt úr glanskistu glæstra ára. Hvar er sá andi, sem áður sveif yfir vötnum og lýði hreif þá Nallinn var náðin skæra. Manstu er Krússi kramdi skó? - af Kastró gat aldrei fengið nóg grýlan vor komma kæra. í litlu Moskvu gekk lífið stillt að lofgjörðir syngi, ei þótti spillt, Bresnef hver Bolseviki. Hvar Leninskra fræða leitað gat liggur nú bara útþynnt plat og „Avarpið“ undir ryki. Á samyrkjubúskapinn settum traust en svikarinn birtist í myrkri um haust Gorbi í lausnarans líki. Likt fór um Smára með „smæl” á vör smekklega stýrði hann vorri for - í lentum svo „Austurríki”. Hvert sem að okkar liggur leið til loka brátt rennur þetta skeið. og vill enginn veginn rata. Aldrei mig við það fellt þó fæ að færð’ann með svikum þennan bæ í skítugar krumlur krata. Maður fær nú ýmis verkefni að glíma við, sem sveitarstjóri og segja má að það starf sé nokkuð fjölbreytt og illútreiknanlegt. Mér var t.d. falið af félagsmálaráði Suðurfjarða að yrkja þakkarvísur til vinkonu minnar, Herdísar Hjör- leifsdóttur, félagsmálastjóra á Hér- aðssvæði, sem setti upp tvo val- kosti í stöðunni. Annað hvort vildi hún fá koss eða vísu(r). Ég ákvað að slá tvær flugur í einu höggi. KOSSAVÍSUR Góða konu alsæll á eg því fagna hnossi. Stóð til lengi þó min þrá þér með ylja kossi. Loks þá smelli einum á öfunda þig hinar. Kinn þótt aðeins kitli smá kossinn góðs þíns vinar. Miklar á ég mætur hef meyja finna angan. Bezt því væri blíðust ef byðir hinn mér vangann. Megi varmir vindar, vekja yl í sinni. Hafþór. Grískur kjötréttur Svtnafuncfír oq Íamfafótífettur Ein matskeið af smjöri og súputeningur er brætt saman í ofnskúffu á hellunum. Lundirnar eru skornar í sneiðar og þær ásamt kótilettunum kryddaðar vel með salti, svörtum pipar karrý, papriku og OREGANO. Sett í 175 gráðu heitan ofn og látið bakast 15-20 mín á hvorri hlið. Berist fram með hrísgrjónum og fersku salati. EFTIRRÉTTUR: 5 brúnir bananar 2 sítrónur 1/4 I rjómi Sykur eftir behag. Bananar músaðir og safinn úr sítrónunum hrærður saman við og sykri bætt út í. Rjóminn þeyttur og svo hrærður varlega í bananamúsina. Verði ykkur að góðu Silvia Silvia leitar ekki langt yfir skammt þvi hún skorar á son sinn Joel Hromadko að vera næsti matgæðingur okkar i Austurglugganum. mr.mnm Ómar R. Valdimarsson er talsmaður Impregilo á íslandi og hefur staðið í ströngu á Kárahnjúkum, vinnan hefur kostað nokkrar and- vökunætur en allt gengur stórvel þessa dagana, stíflubotninn hefur verið óþægilegur Ijár í þúfu en aðrar framkvæmdir á tíma og hann ber Landsvirkjun góða söguna. Nafn: Ómar Rafn Valdimarsson. Aldur: Verður 27 ára 7. júlí n.k. Fjölskylduhagir: Trúlofaður Rakel Hún- fjörð og á tvo drengi 6 og 8 ára; Leó Augusto og Óliver Tiago. Ætt og uppruni i stuttu máli: Ég rek ættir mínar til Vestmannaeyja í föðurlegg en móðir mín og hennar fjölskylda eru Reykvíkingar. Ég er afkomandi þeirrar merku fjölskyldu Andersen í Vestmanna- eyjum, en er fæddur í Reykjavík. Fyrstu ár ævinnar ól ég manninn í Breiðholtinu en flutti ungur í Kópavoginn og tel mig því vera Kópavogsbúa. Starf: Framkvæmdastjóri fyrirtækisins ís- lensk almannatengsl. Uppáhalds -bókin: Sjálfstætt fólk, hef sjaldan lesið jafnmikið um sjálfan mig og alla sem ég þekki eins og í þeirri bók. -platan: Breytilegt eftir skapi en mér finnst hljómsveit sem heiti Zero 7 alltaf góð. Ég er mikið fyrir rólega chill-out músík. Þessa dagana hefur þó rapparinn 50 Cent verið svolítið í geislaspilaranum þar sem ég og strákarnir mínir erum að búa okkur undir tónleika í ágúst. -kvikmyndin: Citizen Kane, lærði að meta hana í fjölmiðlafræði, Raging Bull er líka góð en báðar eru þær svarthvítar. Mottó: Winning silver is losing gold. Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í? Það er hætt við því að ég geti ekki hætt að telja ef ég byrja... Kostir: Ég er mjög vinnusamur, sann- gjarn og stend við gefin loforð. Gallar: Ég er of vinnusamur, þver og það er oft stutt í hrokann hjá mér. Grafskrift að eigin vali: Ertu þá far- inn? með nótunum úr lagi Skítamórals meitlaðar í steininn fyrir neðan textann. Ómar R. Vatdimarsson

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.