Austurglugginn - 01.07.2004, Síða 11
Fimmtudagur 1. júlí
AUSTUR • GLUGGINN
11
IÞROTTA % FRETTIR
Nýr keppnisvöllur fyrir hestaíþróttir í Fjaröabyggð:
„Bylting í hestaíþróttinni"
-segir Guðröður Hákonar-
son, félagi í Hestamannafélag-
inu Blæ og formaður vallar-
nefndar.
Þann 17. júlí næstkomandi
verður haldið félagsmót á glænýj-
um keppnisvelli Hestamannafé-
lagsins Blæs en þetta verður eini
löglegi keppnisvöllur fyrir hestaí-
þróttir í Fjarðabyggð. Félagið
ijármagnar gerð vallarins sjálft en
fékk uppbyggingarsamning við
Fjarðabyggð og Samvinnufélag
útgerðarmanna styrkti líka verk-
efnið. Ætlunin er að setja vikur á
völlinn en hingað til hafa menn
notað ýmsar tegundir af möl sem
ekki hefur þótt virka sem skyldi.
Guðröður Hákonarson hjá fé-
laginu segir þetta mikla breytingu
á aðstöðu frá því sem hefur verið.
„Þetta er alger bylting í hestaí-
þróttinni hér,” sagði hann í sam-
tali við blaðið. „Þetta á eftir að
stuðla að auknum vinsældum í-
þróttarinnar en það er töluverður
íjöldi fólks sem stundar þessa í-
þrótt sem keppnisíþrótt.”
Hann telur að þetta sé ekki síst
mikilvægt vegna þess að ungling-
ar og krakkar fá með þessu al-
mennilega æfingaaðstöðu. „Hér
hafa margir efnilegir krakkar ver-
ið að æfa en hafa liðið fyrir það
að ekki hefur verið góð æfinga-
aðstaða. Von okkar er sú að með
þessu móti náði þeir lengra í í-
þróttinni.”
Aðspurður hvers vegna menn
hafi ekki farið í svona fram-
kvæmdir fyrr sagði Guðröður:
„Við vildum safna peningunum
fyrst þannig að við myndum ekki
skuldsetja félagið.” Reiknað er
með því að verkið kosti 3,5 til 4
milljónir.
Nú er unniö hörðum höndum að því að klára nýja keppnisvöllinn fyrir hestaiþróttir i Fjarðabyggð. Þetta er eíni löglegi völlur-
inn I Fjarðabyggð.
3. deild karla D riðill
Höttur Sindri
Vilhjálmsvöllur 0-0
Neisti - Huginn
Djúpavogsvöllur 0-2
Einherji - Leiknir
Vopnaijarðarvöllur 2-0
Félag LU J r MörkNet Stig
1 Fjarðabyggð 53 11 15:4 11 10
2 Huginn 4 3 1 0 7:2 5 10
3 Einherji 52 1 2 6:7 -1 7
4 Sindri 5 13 1 3:4 -1 6
5 Neisti 5 2 03 4:9 -5 6
6 Leiknir 5 1 1 3 5:11 -6 4
7 Höttur 5 03 2 3:6 -3 3
Næstu leikir:
fim 1. júlí 20:00
Sindri - Fjarðabyggð
Sindravellir
fos 2. júlí 20:00
Huginn - Höttur
Seyðisfjarðarvöllur
1. deild kvenna
C riðill
Sindri - Höttur
Sindravellir
4-0
Félag LUJT MörkNetSHg
1 Sindri 4 3 10 18:4 14 10
2 Höttur 3 1 0 2 4:13 -9 3
3 Fjarðabyggð 3 0 1 2 7:12 -5 1
Næstu leikir:
þri. 6. júlí 20:00
Fjarðabyggð - Sindri
Eskifjarðarvöllur
Atgervisflótti úr
knattspyrnunni
Þjálfarar og forráðamenn fé-
laga sem Austurglugginn ræddi
við telja að aðstöðuleysi hái
knattspyrnu á Austurlandi.
Leikmenn „flýja” í aðra lands-
hluta þar sem aðstaða er betri til
iðkunar allan ársins hring.
Skiptar skoðanir eru um fyrir-
hugað knattspyrnuhús á Reyð-
arfirði.
Heimir Þorsteinsson, annar
þjálfara Fjarðabyggðar segist
þokkalega ánægður með stöðu síns
liðs en það er í efsta sæti ásamt
Huginn þegar þetta er skrifað.
Heimir segir lið Fjarðabyggðar
eingöngu skipað heimamönnum
því allir hafi þeir búið lengi í
Fjarðabyggð. Hann segir Fjarða-
byggð hafa misst níu leikmenn eft-
ir síðasta keppnistímabil en þeir
hafi fengið einn nýjan og „dregið
tvo á flot eftir langt hlé.” Hann
segir Fjarðabyggð búa yfir fáum
leikmönnum og segir aðstöðuleysi
á Austurlandi vera þess valdandi
að leikmenn fari í aðra landsfjórð-
unga til að spila. „Um leið og ein-
hver fer að geta eitthvað er hann
farinn. Aðstaðan á Akureyri lokkar
þá burtu,” segir Heimir og vísar
þar til knattspyrnuhúss á Akureyri.
Hann telur að slíkt hús á Reyðar-
firði muni gjörbreyta aðstöðunni
hér eystra og verða austfirskri
knattspyrnu til framdráttar.
Þjálfari Hugins á Seyðisfirði er
Brynjar Gestsson og sagðist hann
vera sáttur við gengi liðsins. Hug-
inn er með ungan leikmannahóp
en þeir urðu fyrir því að missa fyr-
irliðann í upphafi móts auk nokk-
urra annarra leikmanna. Hann seg-
ir unga menn hafa komið til að
spila með Hugin og nú sé sam-
keppni um stöður í liðinu og því
leggi leikmenn sig alltaf fram um
að gera sitt besta. Huginn er með
stóran leikmannahóp og liðsand-
inn góður að sögn Brynjars. Seyð-
firðingar hafa leikið heimaleiki
sína á malarvelli en stefnan er sett
á að leika gegn Hetti á nýjum gras-
velli 2. júlí.
Þegar Árni Ólason hjá Hetti var
inntur eftir ástæðum fyrir slæmu
gengi liðsins í sumar, segir hann
að það sé fyrst og fremst vegna
þess að það hafi misst tíu menn úr
byrjunarliðinu síðan í fyrra og nú
komi leikmenn eingöngu „úr nær-
sveitum” en ekki frá Júgóslavíu.
Hann segir Hött hafa farið nýja
leið og fengið til sín mannskap úr
utandeildaliðum sem ekki hafi
komist að fyrr. Liðið er ungt, það
skortir reynslu en hún mun koma í
sumar að mati Árna. Hann segir
að í raun hafi myndast tíu ára gat
því liðið hafði verið nær óbreytt í
jafn mörg ár. Árni bendir á að
Höttur sé öflugastur i yngri flokk-
um hér fyrir austan og eigi því
framtíðina fyrir sér. Hann vonar
að fyrirhugað knattspyrnuhús á
Reyðarfirði skili árangri en telur
þó að skynsamlegra sé að leggja
gerfigras á vellina okkar því hann
segir að húsið muni verða of dýrt
til að félög muni nota það fyrir
yngri flokka.
Það er Ijóst að efnilegir knatt-
Sundíþróttin er komin á fullan
skrið í Neskaupstað og á dögun-
um fór Elínborg Hilmarsdóttir,
íjórtán ára gamall sundiðkandi,
á Aldursflokkameistaramót ís-
lands en þar var Þróttur í Nes-
kaupstað með einn keppanda en
Þróttur var eina félagið á
Austurlandi sem sendi kepp-
anda. Guðlaug Ragnarsdóttir
segir það ekkert óvenjulegt enda
sé þetta mjög sterkt mót: „Það
þarf að ná ákveðnum lágmörk-
um í tíma og þessi skilyrði eru
mjög ströng. Það voru t.d. bara
tveir krakkar hjá mér sem náðu
þeim.” Elínborg keppti í 100 m
spyrnumenn á Austurlandi hleypa
heimdraganum og hvort knatt-
spyrnuhús á Reyðarfirði muni
breyta einhverju þar um, skal ósagt
látið.
flugsundi og í 100 m baksundi
og í seinni keppnisgreininni
náði hún tólfta sæti sem þykir
gott að sögn þjálfara hennar.
„Þetta er geysilega sterkt mót og
ég er mjög ánægð með hana.”
Hjá Þrótti æfa nú ijörutíu
krakkar og nú eru nýhafin nám-
skeið fyrir fimm til sex ára
gamia krakka. Og nóg um að
vera í sundinu eystra. Landsmót
UMFÍ verður haldið þann 9. júlí
á Sauðárkróki og UÍA mun
senda úrvalshóp þangað. Ekki
má heldur gleyma sumarhátíð
UÍA sem haldin verður 17. til
19. júlí næstkomandi.
Neskaupstaður:
Sundið
komið á
skrið...