Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Side 3

Austurglugginn - 12.08.2004, Side 3
Fimmtudagur 12. ágúst AUSTUR • GLUGGINN 3 íbúafundur á Norður-Héraði Skorar á félagsmála- ráðuneyti að ógilda Frá ibúafundi á Norður-Héraði Fjörugur íbúafundur var haldinn á Norður-Héraði s.l. laug- ardag. Sameining Norður-Héraðs, Fellahrepps og Austur-Héraðs kynnt og rædd. Fundurinn sam- þykkti loks áskorun til félags- málaráðuneytis um að ógilda sam- eininguna. Um ijörutíu manns mættu á íbúa- fund á Norður-Héraði s.l. laugardag þar sem sameining þriggja sveitarfé- laga á Héraði var kynnt. Níutiu og þrír kjósendur á Norður-Héraði höfðu skrifað undir áskorun til sveit- arstjómar þess efnis að haldinn yrði íbúafundur og í kjölfar hans yrði kosið á Norður-Héraði um hvort sveitarfélagið ætti að sameinast Austur-Héraði og Fellabæ. A kjör- skrá eru 218 manns en íjögurra sveitarfélaga sameining var sam- þykkt í sumar með 97 atkvæðum gegn 87. Boðað var til fundarins í kjölfar síðasta sveitarstjórnarfundar en ekki voru allir fundargestir á- nægðir með dagskrá þessa fundar. Ekki sá fundur sem óskað var eftir Aðalsteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs og taldi þetta ekki vera þann fund sem níutíu og þrír íbúar óskuðu eftir og vildi að haldinn yrði annar fúndur um þau málefni sem krafist var að yrðu rædd. Aðalsteinn var ekki ánægður með afgreiðslu sveit- arstjórnar á erindi þessara íbúa og hafði eftir Guðjóni Bragasyni í fé- lagsmálaráðuneytinu að ef tekin væri ákvörðun um að mál færi í tvær umræður, teldist það ekki afgreitt fyrr en eftir þá siðari. Sem kunnugt er, hafnaði sveitarstjórn bón íbúanna á þeim forsendum að málið hefði verið afgreitt endanlega við fyrri umræðu. I kynningu Asmundar Þórarins- sonar á sameiningunni kom m.a. fram að sjötíu og sex prósent íbúa þessara þriggja sveitarfélaga hafi samþykkt sameiningu fyrr í sumar og því hafi samstarfsnefndin ákveð- ið að þau skyldu sameinast. Hug- myndir komu fram um skoðana- könnun eða kosningu í ljósi þess að Fljótsdalshreppur felldi þann 26. júní en ekki hafi verið talið rétt að kjósa aftur því á Norður-Héraði hafi verið meiri hluti fyrir sameiningu í bindandi kosningu þann 26. júní. Hann sagðist ekki hafa heyrt að fólk teldi forsendur breyttar og að í hinu nýja sveitarfélagi sem verða mun til þann 1. nóvember n.k. verði níutíu og sjö prósent íbúa á Héraði. As- mundur sagði að hugsa yrði til lengri tíma þegar svona skipulagsbreyting- ar ættu sér stað, eða tuttugu til þrjá- tíu ára. Hann taldi eðlilegt að taka þátt í þessari þróun því hún myndi ekki stöðvast. Alfarið á valdi sveitar- stjórnar Hafliði Hjarðar varaoddviti Norð- ur-Héraðs sagði það alfarið á valdi sveitarstjórnar að ákveða hvort farið yrði í sameininguna eða ekki og að sameining hafi verið á stefnuskrá allra lista fyrir síðustu sveitarstjórn- arkosningar og þvi hafi kjósendur mátt vita að hverju þeir gengu. Hann taldi sér ekki stætt á því að hafa mælt með sameiningu í eitt og hálft ár en kjósa svo á móti henni. Hafliði ítrekaði að samkvæmt 91. grein sveitarstjórnarlaganna bæri sveitar- stjóm að meta þetta og ákveða. „Konungur Norður-Héraðs hefur talað,“ sagði Aðalsteinn Jónsson þegar hann sté aftur í pontu og bætti síðan við að viku eftir sameingar- kosningar hafi N-listinn (sem a.m.k. fór með meiri hluta í sveitarstjóm þar til tveir fulltrúa hans tóku sér frí frá störfum - insk. blaðamanns) fundað og þar hafi fólk verið nokk- uð sátt við að fram skyldi fara skoð- anakönnun. Aðalsteinn benti á að skatttekjur Norður-Héraðs hafi auk- ist úr 46 milljónum króna í 126 milljónir á milli áranna 2002 og 2003 og taldi að þessar áttatíu millj- ónir mætti alveg nota í sveitarfélag- inu. Hann segist hafa trú á Norður- Héraði. Tillaga samþykkt I kjölfarið spunnust Ijörugar, al- mennar umræður þar sem samein- garsinnar höfðu sig meira í frammi en síðan lagði Aðalsteinn fram eftir- farandi tillögu: „Ibúafundur á Norð- ur-Héraði haldinn laugardaginn 7. ágúst 2004 skorar á félagsmála- ráðuneytið að hafna sameiningu Norður-Héraðs, Fellahrepps og Austur-Héraðs þar til fram hefur far- ið á Norður-Héraði, almenn bind- andi atkvœðagreiðsla um samein- ingu þessara þriggja sveitarfélaga. “ Þar sem fundurinn hafði ekki ver- ið auglýstur ályktunarbær, lét fund- arstjóri greiða atkvæði um hvort taka ætti tillöguna fyrir og var það samþykkt með tuttugu atkvæðum gegn þrettán. Fram kom frávísunar- tillaga en hún var felld með tuttugu og tveimur atkvæðum gegn þrettán. Því var tillagan borin upp og sam- þykkt með tuttugu og Ijórum at- kvæðum gegn þrettán. bvg Jón á hjólinu? - Fyrstu hjólin í Neskaupstað finnast Hann var reffilegur kappinn hann Jón Björn Hákonarson þeg- ar Ijósmyndari hitti á hann árla dags í Neskaupstað á dögunum. Jón var að tæma geymslupláss í Steininum, gömlu húsi í miðbæ Neskaupstaðar, þar sem meðal annars þessi tvö hjól var að finna. „Mér er sagt af kunnugum mönn- um að þetta séu fyrstu reiðhjólin sem komu til Neskaupstaðar," sagði Jón Björn og ljómaði allur við fund- inn enda gamall sagnfræðinemi þar á ferð. Hjólin og forláta kerrukjálkar sem í geymslunni voru eru raunar hluti af minjasafni Neskaupstaðar sem safnað var í á árum áður þó safninu hafi aldrei verið fundið hús- næði undir gripina. En meðal ann- arra muna eru munir tengdir sjósókn og landbúnaði sem væntanlega munu sóma sér vel í nýju safnahúsi í miðbæ Neskaupstaðar á næstu árum. „En funduð þið eitthvað tengt gömlu kommunum, gleraugun hans Lúðvíks Jósepssonar til dæmis,“ spyr blaðamaður. „Nei þau voru ekki þama, því rniður," svarar Jón og hlær. „Hjólin Jón, voru þau af Möve- gerð,“ spyr blaðamaður minnugur þess að hafa þurft að læra kvæði um þessa Austur-þýsku reiðskjóta sem barn, gegn eigin vilja. „Nei enda eru þau eldri en Austur- þýskaland þessi. Eg er ekki klár á Ekki Möve Jón Björn með hjólin. Kampakétur við stýrið. tegundinni,“ svarar Jón Björn og þvertekur ekki fyrir að hjólin verði jafnvel gerði upp fyrir bæjarstjóran og frú í náinni framtíð, enda eflaust ódýrara að gera þau upp en Packard Bell bíl forsetaembættisins sem nú er að verða tilbúin. helgi@agl.is Starfsfólk óskast Upplýsingar veitirÁsvaldur ísíma 4771609 Við leitum að; hressum áskrifendum! Áskriftarsíminn er ® 477 1571 Frá grunnskólum Fjarðabyggðar Foreldrar og forráðamenrt grurtnskólabarna sem eru nýflutt, eða eru að flytja, til Fjarðabyggðar eru hvattir til að skrá börn sín í skólana sem allra fyrst. Símanúmer og netföng hjá skólunum eru: Grunnskóli Eskifjarðar 476 1355 og hilmar@skolar.fjardabyggd.is Grunnskóli Reyðarfjarðar 474 1247 og thoroddur@skolar.fjardabyggd.is Nesskóli 477 1124 og oliskoli@skoiar.fjardabyggd.is . Þeir foreldrar sem ætla sér að nýta Skóladagheimilin eru einnig hvattir til að skrá börn sin á þau. Sömu símar og netföng eru til þess. Auglýsing með frekari upplýsingum um skólabyrjun verður birt í næstu viku. Skólastjórar grunnskólanna i Fjarðabyggð Nýr Eurotrailer - Hardox malarvagn astoðim. 3ja öxla tunnuvagn, diskabremsur, sjálfvirk og handvirk lyftihásing, utanáliggjandi gafl, seglayfirbreiðsla, sjálfvirk bremsa fyrir malbikunarvélar, o.fl. Verð kr. 3.150 þús. Nýjir og notaðir 2ja öxla vagnar væntanlegir. Th.fldolfssonehf. sími 898 3612 fyrir fréttaþyrsta ferðamenn Austur»glugginnj

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.