Austurglugginn - 12.08.2004, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 12. ágúst
AUSTUR • GLUGGINN
5
H-
Er málið að fara
að brjóta ein-
hverja glugga ?
Ég sit og horfi út um gluggan. Mér
leiðist, þannig að ég glugga aðeins í
Austurgluggan. Les grein um glugga.net.
Glugga.nets greinin í Austurglugganum
er leiðinleg, þannig að ég ræsi gluggak-
erfið í tölvunni minni. Ég glugga [ geg-
num síðurnar, hlusta á útvarpið í netvarfa
gluggakerfissins, þar er Bubbi að syngja
um stúlku sem starir út um gluggan. Ég
horfi út um gluggan, hugsa um félaga
minn, Gluggagægjir, ímynda mér að ég
sé að horfa á hann i gegnum gluggan,
horfa inn um annan glugga. Það er
kominn ágúst, Gluggagægjir á ekki vera í
huga mínum núna.
Það eru of margir gluggar opnir hjá mér.
Það er hættulegt að hafa of marga glug-
ga opna í einu, þá kemur bara upp ólög-
leg aðgerð í gluggum...
Ég held ég sé orðinn gluggaður.
vitlaust fólk
í hraðbúð essó kom kona nokkur um
daginn og verslaði sér eitthvað í
svanginn. það var auðséð að konan var
ferðalangur, sennilega frá reykjavík.
þegar hún kom á kassann til mín ákvað
hún að kaupa sér blað að lesa, tók mog-
gann og dv en sagði svo; nei ég sleppi dv,
það er svo mikið slúðurblað snéri sé svo
að blaðastandi sem er við hinn kassann
og tók séð og heyrt og lagði á færibandið
hjá mér. mig langaði til að öskra framaní
smettið á henni að þetta væri enn meira
slúðurblað en ég ákvað að halda
“coolinu" og spurði hana hvort hún vildi
afritið.
Björgvin Gunnarsson,
a.k.a. Lubbi klettaskáld.
http://lubbi.blogspot.com/
Við rætur
hugans
Ég hef fundið starfsstétt sem ég á
erfiðara með að tjá mig við en fallegt
kvenfólk. Hárgreiðslukonur virðast aldrei
nokkurntíman vita um hvað ég er að tala
þegar ég bið um hárgreiðslu og því enda
ég í nánast öllum tilvikum með allt annað
útlit en ég ætlaði mér að fá í klippistól-
num. Engar áhyggjur þó, þetta gefur
gerst í síðasta sinn þv( ég hef ákveðið að
mæta tilbúinn með teikningar, myndir,
útskýringar sérfræðinga og jafnvel
stærðfræðiútreikninga næst þegar ég fer
( klippingu svo ekkert klikki og hver veit,
kannski fer ég ekki að gráta í miðri klip-
pingu eins og svo oft áður.
Sigmar Bóndi Arnarson,
a.k.a. Sigmar von Reichs RadioMeister.
http://landmandinn.blogspot.com/
Finnur Torfi Gunnarsson,
a.k.a. Finnur heimsmeistari í skák.
httpMwww. finnurtg.blogspot. com/
1
Æskulýðs- og
íþróttafulltrúi
Laust er til umsóknar starf œskulýðs- og íþrótta-
fulltrúa Fjarðabyggðar. Um er að rœða fullt starfog
þarfviðkomandi að geta hafið störfsem fyrst.
Menntun á sviði uppeldis- og kennslufræða eða sambærileg
menntun æskileg auk þess sem reynsla af æskulýðs-, íþrótta-, og
félagsmálum er mikilvæg.
Skriflegar umsóknir berist til Fjarðabyggðar, Búðareyri 7, 730
Reyðarfirði fyrir 27. ágúst n.k. en þá rennur umsóknarfrestur út.
Laun samkvæmt kjarasamningi Kjarna og Launanefndar
sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um starfið veita Æskulýðs- og íþróttafulltrúi
í síma 470 9098, netfang: sigridur@fjardabyggd.is og forstöðumaður
fræðslu- og menningarsviðs í síma 470 9092 og 861 2221, netfang:
gulli@fjardabyggd.is.
Nánari upplýsingar eru einnig á www.job.is og www.fjardabyggd.is
Forstööumaður frœðslu- og menningarsviðs Fjarðabyggðar
ATVINNA
Óskum eftir að ráða
starfsfólk í 100% vaktavinnu,
bæði í sjoppu og grill.
Aðeins 18 ára og eldri.
IIIISMII
Allar nánari upplýsingar
gefa Svanhildur og Kristín
í síma 470 1231, eða á
staðnum á milli kl. 9 og 17.
SJOPPA - GRILL - VÍDEOLEIGA
Sími 470 1230
Þjóðleg stemning úr mörg-
um áttum á þjóðahátíð
Þjóðahátíð
Austfirðinga
verður haldin
sunnudaginn
12. septem-
ber nk á Eg-
ilsstöðum.
Þetta er í
þriðja sinn
sem hátíðin er haldin á Austurlandi,
en þær fyrri voru haldnar á Seyðis-
firði og í Fjarðabyggð. Undirbún-
ingur hátíðarinnar er í höndum fjög-
urra manna undirbúningsnefndar en
starfsmaður hefur verið ráðin María
Ósk Kristmundsdóttir. Hátíð sem
þessi er að sjálfsögðu vart fram-
kvæmanleg nema til komi fjöldinn
allur af sjálfboðaliðum sem af
dugnaði og ósérhlífni leggur fram
krafta sína. Líknarfélög, fyrirtæki,
starfsmannafélög að ógleymdum
fjölmörgum einstaklingum leggjast
því á eitt, nú sem endranær, við að
gera þjóðahátíðina sem veglegasta
og glæsilegasta.
Umfang hátíðarinnar hefur farið
vaxandi ár frá ári og má búast við
fleirum á þessa hátíð en nokkru
sinni fyrr. Vel yfir 40 þjóðir og
þjóðabrot búa nú á Austurlandi, að
ótöldum öllum þeim Qölda sem nú
um stundir býr við Kárahnjúka. Má
því búast við afar fjölbreyttri og al-
þjóðlegri hátíð.
Eins og á fyrri hátíðum verður
boðið upp á skemmtiatriði frá ýms-
um löndum við setningarathöfn og
eftir það gefst gestum kostur á að
ganga um svæðið, bragða á góm-
sætum réttum og kynnast menningu
hinna ýmsu þjóða. Islendingar
munu að sjálfsögðu setja sinn svip á
hátíðina og gefa aðfluttum þannig
færi á að kynnast menningu og mat
landsmanna.
Með þjóðahátíð gefst kærkomið
tækifæri til að kynnast aðfluttum
Austfirðingum, viðhorfum þeirra,
menningu og listum, og að sama
skapi sýna aðfluttum að við kunn-
um vel að meta aðkomu þeirra að
lífinu á Austurlandi.
Aðalheiður Birgisdóttir
Eru íslendingar Gay-pride þjóð?
Síðastlið-
inn laugardag
gengu þús-
undir manna
fylktu liði
niður Lauga-
veg í karni-
va1f í 1 in g.
Ekki var ein-
göngu um að ræða samkynhneigt
fólk heldur einnig aðstandendur og
baráttufélaga þeirra og því má með
sanni segja að samkynhneigðir hafi
átt þennan dag, mættu skuldlaust
eiga fleiri en það er svo annað mál.
Nóg í bili?
Á föstudagskvöldið sátu fyrir
svörum í Kastljósi sjónvarpsins fólk
sem á einn eða annan hátt tengdist
atburðum vikunnar. Þetta voru þau
Maríus Sverrisson, Jónína Bjart-
marz þingkona og Bogomil Font
(les. Sigtryggur Baldursson). Aðal-
umræðuefni þáttarins voru svokall-
aðir Hinsegin dagar og þá ekki síst
réttindabarátta samkynhneigðra á
Islandi í gegnum árin. Athyglisvert
var að fylgjast með eina þingmann-
inum í hópnum keppast við að
mæra samkynhneigða sem mest
hún mátti, tala fjálglega um hvað
hefði nú áunnist í réttindamálum
þeirra inni á þingi o.s.frv. Þegar svo
spyrill þáttarins spurði þingmann-
inn lykilspurningarinnar: Hvenær
samkynhneigðum yrði tryggður
réttur til ættleiðinga líkt og þeim
gagnkynhneigðu, fór þó allt í baklás
hjá Jóninu sem muldraði eitthvað út
úr sér með að réttindin fengjust í
skrefum en endurtók þó að margt
hefði áunnist. Athyglisverð afstaða
til mannréttindabrots það.
Húsvörðurinn og
djöfladýrkunin
Sömu sögu er að segja af hinni ís-
lensku þjóðkirkju sem þrátt fyrir að-
skilnaðarstefnu sína i garð samkyn-
hneigðra nýtur forréttinda umfram
öll önnur trúfélög á íslandi - svo
finnst prestum skrýtið að maður
nenni ekki að eyða sunnudögum í að
hlusta á þá boða kærleikann. En í
hvert sinn sem þetta er rætt við full-
trúa hinnar alíslensku kirkju hlaupa
þeir hinir sömu undan í flæmingi og
bera fyrir sig að málið hafi annað
hvort gleymst ellegar ekki fengist
full rætt á prestastefnum einhvers
konar. Það vantar ekki að sömu rík-
isstyrktu húsverðirnir út um allt land
eru tilbúnir að hoppa hæð sína í loft
upp og fyllast vandlætingu þegar
ungt fólk leyfir sér að gantast með
orð eins og „satan“ eða „María
mey“, eins og ónefhdur prestur hér
fyrir austan gerði - og sjálfan sig að
fífli í leiðinni - hér í blaðinu um dag-
inn. En þegar kemur að því að ræða
annað en ógreinanleg skil milli góðs
og ills þá stendur allt fast í einhverju
sem er svo miklu meira en íhalds-
semi að manni verður nóg um.
Ríkisstyrkt
umburðarlyndi
Ég tók líkt og fleiri þátt í helgi-
leikjum sem bam og man ekki betur
en þar hafi trúin á hið góða í mann-
inum og ekki síst fyrirgefning gam-
alla synda verið ofan á og því fyrir-
gaf ég blessuðum húsverðinum það
að kalla ungu skemmtikraftana í
Austurglugganum um daginn djöfla-
dýrkendur - enda er oft spuming
hvomm megin línunar maður vill
vera þegar svona er sagt. Hversu
lengi hommar og lesbíur þessa lands
munu fyrirgefa þjóðkirkjunni hatur
sitt á þeim er óvíst en umhugsunar-
efnið er eftir sem áður aðeins eitt:
Getur það verið að á einum vagni í
Gay-pride göngunni síðastliðinn
laugardag hafi reynst meira umburð-
arlyndi en í öllum þeim stéttum sem
við köllum sálusorgara og þjóna al-
mennings? Svar óskast, merkt:
„Kynvillingar“.
Eftir Helga Seljan blaðamann
óthildur segir.
m m
Bóthildur hefur fundið einn sálu-
félagann til viðbótar; nefnilega
Jöklu því eins og allir vita, heldur
Jökla ekki vatni yfir framkvæmd-
unum þarna í efra. Það gerir Bót-
hildur nefnilega ekki heldur. Bót-
hildi þykir afskapega gaman að
stæltum og sveittum karlmönnum,
berum í mittisstað með skóflu í
hönd eða uppi í skurðgröfu sem fyr-
ir Bóthildi er kynrænt tákn. Skurð-
gröfur þykja henni vera framleng-
ing karlmennskunnar - reistur arm-
ur sem grefur sig ofan i raka mold-
ina. Bóthildur staupar sig og fer í
kalda sturtu.
Marga ferðina hefur hún farið
þarna uppeftir til að virða fyrir sér
myndarlega karlmenn í öllum regn-
bogans litum, hamast og djöflast í
harðri baráttu við náttúruröflin. Há-
marki náði þetta þó þegar Jökla
gekk í lið með Bóthildi og flæddi.
Þá sýndu þessi marglitu kyntákn
hvers þau eru megnug en mest
fannst henni þó til kynningarfull-
trúa Kárahnjúkavirkjunar koma.
Pollrólegur mætti hann í fjölmiðla
og útskýrði fyrir Bóthildi hvað væri
að gerast og hann sannfærði hana
um að engin hætta væri á ferðum.
Það tók að vísu dálitla stund fyrir
Bóthildi að sannfærast því hún veit
kvenna best að konu með vaxandi
rakastig fær fátt stöðvað, jafnvel
þótt göngin séu stífluð. Kynningar-
fulltrúinn er geðþekkur maður á of-
anverðum miðjum aldri, rétt eins og
Bóthildur. Og hann talar útlensku
líka, rétt eins og Bóthildur, þvi hún
sá í dag viðtal við hann í ammrísku
blaði. Þar er líka talað við Skalla-
grím og Árna hása sem finna Kára-
hnjúkavirkjun allt til foráttu, bölv-
aðir. En kynningarfulltrúanum, Mr.
Arnalds eins og útlendingarnir kalla
hann, tókst aftur að sannfæra Bót-
hildi að allt væri í stakasta lagi.
Karlana vantar neluilega vinnu og
Mr. Arnalds sagði að þeir myndu
streyma í álverið á Reyðarfirði af
nærliggjandi fjörðum þótt Bóthild-
ur vilji fyrir sína parta frekar fá
sjóðheita Itali en Stöð- eða Seyð-
firðinga, svo borið sé niður af
handahófi.
En Bóthildur er náttúruvæn og
það í viðasta skilningi þess hugtaks.
Henni finnst að nýta beri náttúru-
auðlindir landsins, einkum og sér í
lagi ef það getur orðið til þess að
Bóthildur geti nýtt sínar. Hún hefur
nefnilega ffétt af lestri í ákveðnum
útlenskum blöðum að náttúruauð-
lindir hennar sé hægt að virkja og
þær séu mun arðbærari en Kára-
hnjúkavirkjun. Bóthildur segir skál
fyrir því!