Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Blaðsíða 12

Austurglugginn - 12.08.2004, Blaðsíða 12
Heimasíða Hitaveitu Egilsstaða og Fella www.hef.is Leyfðu okkur að þjóna þér Ferðaskrifstofa Austuriands Sími 471 2000 - www.fatravel.is Stoltenberg til Seyðisfjarðar Sækir kraft í kosningabaráttu til austfirskra fjalla Svo gæti farið að Jens Stolten- berg fyrrum forsætisráðherra Noregs og Ieiðtogi norskra jafn- aðarmanna muni verða gestur Norskra daga á Seyðisfirði næsta sumar. Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingar- innar, hafði milligöngu um heimboðið til Stoltenbergs eftir beiðni frá Tryggva Harðarsyni, bæjarstjóra á Seyðisfirði. „Við erum héma á ferðalagi við Einar Már Sigurðarson og ætlum að heimsækja fólk á Héraði, Reyð- arfirði og Scyðisfirði,“ sagði Össur Skarphéðinsson í samtali við Aust- urgluggann. Hann var þá staddur á Seyðisfirði þar sem hann færði Tryggva Harðarsyni fréttirnar af hugsanlegri heimsókn Jens Stol- tenbergs á Norska daga að ári. „Stoltenberg kom oft til íslands á árum áður, m.a. með föður sínum sem var á þeim tíma utanríkisráð- herra og lét vel af þeim ferðum sín- um svo hann tók vel í að koma hér að ári ásamt konu sinni og heilsa upp á Seyðfirðinga á Norskum dögum,“ sagði Össur þá tiltölulega nýkominn af fundi úr Viðey ásamt forystumönnum jafnaðarmanna- flokka á Norðurlöndunum. Bestu vinir í Viðey í grein í DV á mánudag var fjall- að um fundinn og ekki síst hversu vel hefði farið á með „krötunum“ í Viðey og það meðal annars haft eftir þeim að „þeir yrðu allir for- sætisráðherrar von bráðar“. Stol- tenberg var eins og kunnugt er for- sætisráðherra í Noregi og segir Össur heimsókn Stoltenbergs til Fimmtudags- SPURNINGIN Björgólfur Jóhannsson - forstjóri Síldarvinnslunnar I Neskaupstað Björgólfur, ertu á leiðinni á sjóinn? „Nei, ég er ekki leiðinni á sjó- inn." Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verzlunar eru skipstjórar á skipum Sildarvinnslunnar með hærri laun en forstjórinn. Ekki er þó víst að laun Björgólfs myndu hækka við að fara á sjó, þvi kannskiyrði hann ekki skipstjóri - kannski bara kokkur. 1 1 1 I 1 í Seyðisfjörður Jens Stoitenberg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hefur boðaða komu sina á Norska daga að ári. Norsk- ir dagar hefjast nú í vikunni. Jens Stoltenberg Sækir kraft i kosn- ingabaráttu til seyðfirskra fjalla að ári sem gestur Norskra daga. Bæjarstjórinn á Seyðisfirði Hafnfirski kratinn er hæstánægður með að fá heim- sókn gamals vinar sins Stoitenberg Seyðisfjarðar að ári vera lið í því að safna kröftum fyrir kosninga- baráttu sem hann og flokkur hans fara haustið eftir. „Já, hann ætlar að sækja sér kraft til seyðfirskra fjalla áður en hann fer í slaginn og vinnur þar vonandi stórsigur,“ segir Össur sigurviss fyrir hönd félaga síns. Gamall vinur bæjarstjórans „Já hann er búinn að boða komu sína hingað,“ sagði kampakátur Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, aðspurður um hvort rétt væri. Tryggvi og Jens Stolten- berg eru ekki alls ókunnir hver öðrum enda sátu þeir um tveggja ára skeið saman í stjórn ungra jafnaðarmanna á Norðurlöndum, „fyrir of mörgum árum síðan,“ að sögn Tryggva. Þar var og með þeim í stjórn Anna Lindh heitin, sem myrt var í Stokkhólmi fyrr á þessu ári - þá utanríkisráðherra - sem þótti þá vonarstjarna jafnaðar- manna í Svíþjóð. Tryggvi segir endanlega dagsetningu þingkosn- inga hjá frændum vorum Norð- mönnum geta sett strik í reikning- inn með för Stoltenbergs hingað, hann muni þá koma ári seinna. „Þá vonandi orðinn forsætisráherra,“ segir Tryggvi eins sigurviss og Össur fyrir hönd síns manns. Ekki á leið í framboð Tryggvi segist aðspurður um hvort Össur sé með þessu að bæta honum upp tapið, sem hann hlaut í formannskosningu gegn Össuri SAMKAUP EGILSSTÖÐUM Opið mánud. - föstud. 9-19 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 Verslið þar sem úrvalið er... ...allt í einni ferð mjissmmmi Anna Lindh heitin Líka vinkona Tryggva. Össur Skarphéðinsson Rígmontinn með að hafa náð að landa Stoltenberg til Seyðisfjarðar. um árið þegar Samfylkingarfólk kaus sér formann, svo ekki vera enda sé hlýtt með þeim Össuri. „Við erum vinir við Össur og höf- um verið til margra ára svo það er nú frekar þess vegna,“ segir Tryggvi sem ítrekar að hann muni ekki taka slaginn gegn Össuri og Ingibjörgu Sólrúnu í næsta sinn sem Samfylkingin kýs sér for- mann. „Nei það biða mín næg verkefni hér á Seyðisfirði og hér líður mér vel,“ segir Tryggvi Harð- arson. Ekki náðist í Adolf Guðmunds- son fulltrúa sjálfstæðismanna í minnihluta bæjarstjórnar Seyðis- íjarðar til að fá viðbrögð hans við þessari sósíaldemókratísku heim- sókn Stoltenbergs. helgi@agl.is fyrir fjölskylduna einfaldan og hagkvæman hátt. v<r>' www.tmhf.is | ÖRYGGI

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.