Austurglugginn - 17.11.2005, Blaðsíða 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 17. nóvember
Leiklesnar álfasögur
í haust kom út á vegum Kjarvalsstofu geisladiskur með þjóðsögum frá Borgarfirði Eystra en Ásgrím-
ur lngi Arngrímsson sá um leikgerð. „Þar leiklesa nokkrir af okkar þekktustu ieikurum, ekki Borg-
firðingar þó, álfa og vættasögur á íslensku og ensku,” segir Arngrímur Viðar Ásgrímsson frá Kjarvals-
stofu og bætir því við að diskurinn sé upphafið að stærra verkefni.
„Hann rnarkar í raun upphafið að uppbyggingu Álfheima þar sem hægt verður að fræðast um þjóðtrú
okkar og þjóðsagnir, sérstaklega tengdar álfa- og huldufólki.”
Diskurinn hefur verið settur í takmarkaða dreifingu og er meðal annars hægt að nálgast í gegnum
Feróaskrifstofu Austurlands, en Amgrímur segir diskinn hafa fengið góðar mótttökur hjá þeim sem
hafa hlýtt á hann. „Diskurinn hefur verið kynntur meðal ungra hlustenda, meðal annars í leikskólum.
Hann hefur fengiö mjög góðar viðtökur og er vinsæll til hlustunar fyrir svefninn.”
GG
II
Ofsalega gefandi að búa til gott Ijóð
Rúnar Þór Þórarinsson sendir frá sér sína fyrstu Ijóðabók.
n
Rúnar Þór Þórarinsson frá
Skriðuklaustri í Fljótsdal sendi
nýverið frá sér ljóðabókina Enn
einn dagurinn. Rúnar Þór er í dag
búsettur í Reykjavík, þar sem
hann vinnur sem leikjahönnuður
hjá CCP, en mestur hluti bókar-
innar er saminn á Fljótsdals-
héraði. Fyrstu ljóðin samdi Rúnar
á æskuheimilinu Skriðu-klaustri,
þar sem hann dvaldist um hríð
sem fræðimaður og síðan hélt
boltinn áífam að rúlla. „Ég var í
fæðingarorlofi og búinn að vinna
mér inn ftí svo ég var ansi lengi
heima. Það er um að gera að skri-
fa það alltaf niður þegar manni
dettur eitthvað í hug, maður á svo
mikið af dauðum punktum, til
dæmis þegar maður er að stökkva
í strætó eða flugvél,” segir Rúnar
og bætir því að lengsta ljóð
bókarinnar, „Ráðherramir” hafi
verið skrifað í loftinu frá
Reykjavík til Egilsstaða.
Ljóðin í bókinni hafa mörg hver
yfir sér sterkan persónulegan blæ
og Rúnar segir það nauðsynlegt,
því miður séu alltof mörg ljóð
hreint bull,
„Maður sér strax hvenær búið er
að leggja vinnu og alúð í eitthvað
en það geta allir bullað. Ég yrki
aldrei um ekki neitt. Ég yrki um
aðstæður sem ég lendi í og finnst
athyglisverðar. Stundum finnst
manni maður vera sá eini sem
áttar sig á því sem að gerast og
því reyni ég að skila frá mér, jafn-
vel þó enginn lesandi átti sig á
hvað ég er að fara. Mörg Ijóðanna
eiga líka upptök sín í draumum.
Það er ekki merkilegt að skrifa
um það sem gerist í draumnum
heldur það þegar maður áttar sig á
tengingunni. Margir draumar em
birtingarmyndir eigin þrár - hvers
vegna datt mér þetta í hug en ekki
eitthvað annað? Hvað þýðir þetta
Athyglisbrestur
Ég fékk hugmynd
en vindurinn
tók hana.
Ég framkvæmdi stórvirki
en nóttin
myrkvaði það
Ég söng yndislegt lag
en þokan
dreifði því.
Ég gerði ekkert
og það
fór ekki framhjá neinum.
fyrir mig? Það er ofsalega gef-
andi að skrifa ljóð.”
Þegar Austurglugginn heyrði fyrst
í Rúnari var hann að útbúa bíl-
skúrinn sinn undir æfingar
rokkhljómsveitarinnar Trassanna,
sem á rætur sínar að rekja til
Alþýðuskólans á Eiðum. Rúnar
hefur nýtt brot úr nokkrum
ljóðanna í rokktexta og heitir því
að plata með bandinu sé næst á
dagskrá. „Svo er ég með tvær
skáldsögur í vinnslu, vonast til að
klára þær á næstu árum. Síðan
höldum við hjá CCP áffarn að
leggja undir okkur heiminn. Við
erum að gefa út kortaspil, byggt á
Eve-Online, sem Pétur (Örn
Þórarinsson) bróðir á veg og
vanda að,” segir Rúnar og leiðir
okkur inn í heim spunaspilsins en
fyrir áratug gaf hann út, í samvin-
nu við annan bróður sinn, Jón
Helga, spunaspilið Ask
Yggdmsils, fyrsta íslenska
spunaspilið.
„Askurinn er grunnurinn að öllu
sem ég hef gert. Ég fór erlendis í
bókmenntafræði en ekki
jarðvísindi. Hér hjá CCP hefur
annar hver maður legið í
Askinum, ég er aðdáandi þeirra
og Vice-Versa!” GG
Nýr Austfirðingur
Þessi ungi drengur fæddist 3. september síðastliðinn. klukkan 1:02 á
Fjórðungssjúkrahúsinu í Norðfirði.
Hann var 4010 grömm. eða I6 tnerkur, og var 57 sentímetrar á lengd
við fæðingu. Hann var skírður 9. október, rúmlega mánaðargamall og
hlaut nafnið Jóhann Breki.Foreldrar lians heita Elsa Jóhannsdóttir og
Þórhallur Freyr Skúlason. hann er þeirra fyrsta bam og þau eru búsett á
Eskifirði.
voru
Mynd vikunnar er frá
Sigurðu Blöndal og var í
eigu foreldra hans, Sigrúnar
og Benedikts Blöndal. Þeir
sem þekkja fólkið á
myndinni eru beðnir um að
hafa samband við Dísu í
síma 471-1417.
í blaðinu 29. september
birtum við mynd af Konráði
Hjálmarssyni, Ólöfu Þorkels-
dóttur og syninum Konráði,
sem bjuggu á Norðfirði, en
það var Óskar Bjömsson í
Neskaupstað sem bar kennsl
á þau og Vilhjálmur
Hjálmarsson staðfesti það.