Austurglugginn


Austurglugginn - 17.11.2005, Blaðsíða 11

Austurglugginn - 17.11.2005, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 17. nóvember AUSTUR • GLUGGINN 11 íþróttahúsið lekur! Tveimur úrvalsdeildarleikjum í körfuknattleik var frestað í seinustu viku vegna þaklega í íþróttahúsum. Annar leikjanna átti að fara fram á Egilsstöðum. Menn höfðu ekki undan við að þurrka gólf íþróttahússins á Egilsstöðum á fimmtudaginn i von um að leikur Keflavikur og Hattar í úrvalsdeild karla gæti farið þar fram um kvöldið. Allt kom þó fyrir ekki. Mynd: GG Leik Hattar og Keflavíkur í úrvals- deildinni í körfuknattleik , sem fara átti fram á Egilsstöðum síðastliðið fimmtudagskvöld, var frestað halftíma fyrir leik. Ástæðan var þakleki í húsinu en gólfið þótti hættulegt vegna bleytu. „60% af vellinum ónothæfur,” stóð á leik- skýrslunni. Hafsteinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hattar, segir að forráðamenn Körfuknattleiks- sambands íslands hafi vitað af að- stæðum í hádeginu á fimmtudag. „Ég hringdi þá til að segja þeim að það yrði að fresta leiknum en þeir þykjast hafa misskilið það og átt von á öðru símtali. Það var ekkert hægt að redda þessu, úrræðin voru engin. Við vorum búnir að redda fleiri sópum en lekinn jókst,” segir Hafsteinn sem ekki hefur áður séð álíka leka í íþróttahúsinu á Egils- stöðum. „Við höfum séð dropa og dropa en aldrei neitt í líkingu við þetta. Það var blejúa á 28 stöðum á vellinum. Menn spiluðu hér B-liðs leik á laugardaginn og þar gekk allt upp.” „Hattarmenn höfðu samband um hádegi og voru beðnir um að gera ráðstafanir til að hægt yrði að spila. Við heyrðum ekkert frekar frá þeim og gerðum því ráð fyrir tekist hefði að ráða fram úr þessu,” segir Hann- es Birgir Hjálmarsson, frarn- Boltaslúður Ljuba Radonovic Mynd: GG Heyrst hefur að ýmis félög vilji fá til sín hinn serbneska leikmann Hugins, Ljubisa Radonovic. Haukar eru sagðir hafa sýnt hon- um áhuga í haust og flest lið 2. deildar karla sömuleiðis, en Huginsliðið er í þeirri deild. Lju- bisa er í vinnu á Seyðisfirði, virð- ist kunna vel við sig þar auk þess sem eiginkona hans er væntanleg þangað í vor svo hverfandi líkur eru á að hann fari. Hinn nýi þjálfari Fjarðabyggðar er sagður vilja krækja í Andra Berg- mann Þórhallsson og Þórarinn Borgþórsson frá Huginn. Andri Bergmann er alinn upp í röðum Austra á Eskifirði en hefur undan- farin tvö sumur spilað á Seyðis- firði. í síðustu viku var raðað niður leikjum í annarri deild karla. Aust- fjarðaliðin mætast strax i fyrstu umferð á Seyðisfirði og síðan í 10. umferð í Fjarðabyggð. Nánari tímasetning leikjanna liggur ekki fyrir. GG kvæmdastjóri KKÍ. „Ef Hattar- menn geta ekki tryggt að leikfært verði í húsinu verðum við að skoða að víxla heimaleikjum þar sem því er við koniið eða færa leikina ann- að.” Forráðamenn Keflavíkur voru held- ur óhressir á fimmtudaginn þar sem lið þeirra var komið austur til Egils- staða. Hannes segir að félagið muni ekki þurfa að greiða aðra ferð austur en eftir eigi að skoða betur hver taki þann skell. „Við vitum ekki enn hver mun á endanum bera kostnað af annarri ferð austur en það er ekki eðlilegt að Keflavík beri þann kostnað. það sama gildir um ferðagjöld dómara, við erum að skoða hvort og hvemig hefiir verið staðið að slíku áður.” Eggert Sigtryggsson, fasteignafull- trúi Fljótsdalshéraðs, segir menn hafa unnið eins hratt og þeir hafi getað til að þétta lekann síðan hann stórjókst í haust. „Það sem skeði í sumar var að þak- pappinn slitnaði meira og minna og þar með mynduðust stórar glufur. I haust stóijókst leki á þakinu og þá strax var leitað til okkar helstu sér- fræðinga í þakviðgerðarmálum og í kjölfarið á þeirra úttekt ákveðið að leita samninga við verktaka um að setja þakdúk á allt þakið,” segir Egg- ert en tilboð i verkið voru opnuð á Höttur tapaði fyrir Grindavík í Iceland Express deildinni í körfuknattleik en liðin rnætmst í Grindavík á sunnudagskvöld. Leik- urinn átti upphaflega að fara fram á Egilsstöðum en mótanefnd KKÍ ákvað að víxla leikjum Hattar þar sem aðstæður í íþróttahúsinu á Egilsstöðum þóttu ótryggar. Framan af stefndi í spennandi leik og var staðan eftir fyrsta leikhluta 25-20, heimamönnum í vil. Þeir sigu þó fram úr í öðrum leikhluta, voru 50-33 yfir í hálfleik, 82-58 eftir þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með tæplega íjörtíu stiga mun, 108-70. Guðlaugur Eyjólfs- son, bakvörður Grindvíkina, fór mikinn í leiknum og skoraði 30 í haust var kjörin ný stjórn Skák- sambands Austurlands. Hákon Sigfússon, Eskifirði, er formaður og með honum í aðalstjórn Reyð- firðingarnir Jóhann Þorsteinsson og Rúnar Hilmarsson. Þrettán fyrirtæki tóku þátt í firmakeppni sambandsins í ár. Landsbankinn á Egilsstöðum bar sigur úr býtum en Jóhann Þor- steinsson tefldi fyrir hans hönd og hlaut 10 vinninga af 13 mögu- legum. Malarvinnslan varð í öðru sæti með 9 1/2 vinning, en Sverrir Gestsson tefldi á hennar vegum. þriðjudag og rniðað er við að verk- inu verði að fullu lokið um áramót. „Þakið hefur lekið alveg frá því húsið var tekið í notkun og aldrei tekist að komast í veg fyrir það þó viðgerðir hafi verið unnar á þakinu. Það er ekkert hlaupið í viðgerðir á svona fleti, 1.550 fermetrum. Það hefur verið unnið eins hratt að lausn þessa máls og nokkur kostur hefur verið. stig, öll úr þriggja stiga skotum. í liði Hattar var Viðar Örn Haf- steinsson stigahæstur með 29 stig, Loftur Þór Einarsson skoraði 10, Peter Gecelovsky og Frosti Sig- urðsson 8, auk þess sem Gecelov- sky hirti 13 fráköst. Björgvin Karl Gunnarsson skoraði fimm stig og Eiríkur Jónsson þrjú. Bandaríkjamaðurinn Eugene Christopher, sem fyrir leikina í seinustu viku var stigahæsti leik- maður deildarinnar, átti arfaslakan dag í Grindavík og skoraði ekki nema sjö stig. Ekkert þeirra tíu þriggja stiga skota sem hann reyndi rataði ofan í körfuna og ekki nerna tvö af tólf 2ja stiga skotum. Sagði Rúnar Hilmarsson kom Kjöt- kaupum Reyðarfirði í 3ja sæti með því að næla sér í 8 1/2 vinn- ing. Gaman er að segja frá því að fimm Pólverjar frá Bechtel tóku þátt í keppninni. Þeir Jóhann, Rúnar og Sverrir urðu lika efstir á Hraðskákmóti Austurlands sem haldið var í haust, en eftir 12 skákir höfðu þeir allir fengið níu vinninga. Eftir útreikning á stigum stóð Rúnar efstur, Jóhann annar og Sverrir þriðji. GG Þakið er byggt upp á tvennan máta, annars vegar einingarþak og hins vegar krossviðarþak og þarna hafa skapast þær aðstæður að vatn getur komist undir þakpappa á einum stað en síðan komið fram mörgum metrum neðar svo það er vonlaust að segja hvar lekur inn. Mat sérfræðinga okkar var að það þýddi ekki að fara í bráðabrigðavið- gerð á þakinu. Það er ekki leki í Kirk Baker, þjálfari Hattar, nieðal annars eftir leikinn að Eugene hefði ekki getað skotið rakettu í nýrri hlutanum þó klæðningin þar sé skemmd en eldri hlutinn er til vandræða vegna þenslu á samskeyt- um. Það verður allt kapp lagt á að koma dúknum fyrst á þann hluta sem veldur leka niður í hús.” Á sunnudagskvöld var leik Þórs og KR í deildinni frestað vegna þakleka í Iþróttahöllinni á Akureyri. GG sjóinn þó hann hefði staðið á bryggj usporðinum! GG Nr. Félag Leik U T Stig Nett Stig 1. UMFN 6 6 0 467:339 128 12 2. UMFG 6 5 1 598:492 106 10 3. Keflavík 4 4 0 273:229 44 8 4. Fjölnir 6 4 2 553:540 13 8 5. KR 5 3 2 412:368 44 6 6. ÍR 6 3 3 514:527 -13 6 7. Skallagrimur 6 3 3 360:365 -5 6 8. Hamar/Selfoss 6 2 4 500:600 -100 4 9. Snæfell 5 2 3 485:469 16 4 10. Þór Ak. 5 1 4 404:464 -60 2 11. Haukar 6 0 6 469:537 -68 0 12. Höttur 5 0 5 379:484 -105 0 Ný stjórn Skáksambands Austurlands Frá Firmakeppni Skáksambands Austuriands sem fram fór I húsi Kjötkaupa á Reyð- Ósigur í Grindavík

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.