Austurglugginn - 17.11.2005, Qupperneq 12
Austur*gluggmn
Fímmtudagur 17. nóv. 2005 rt) 477 1750
Austur^gluggitm
Heimasíða Hitaveitu Egilsstaða og Fella
www.hef.is
Áskrlft og auglýsingar f 477 1571 // Fréttfr 477 1750
Um hundrað krakkar mættu í ýmiss konar búningum á hrekkjavökudiskótek á Hallormsstað. Mynd: GG
Síðbúin
hrekkja
vaka
Ríflega 100 krakkar af Fljótsdals-
héraði og Borgarfirði í 7. - 10.
bekk mættu síðastliðið föstudags-
kvöld á siðbúið hrekkjavöku-
diskótek í íþróttahúsinu á Hall-
ormsstað. Diskótekið átti upphaf-
lega að fara fram hálfúm mánuði
fyrr en var frestað á sínum tíma
vegna óhagstæðrar veðurspár.
Krakkamir mættu uppáklæddir í
ógnvænlega búninga að amerískri
fyrirmynd og voru veitt verðlaun
fyrir frumlegasta búninginn, þann
hryllilegasta, virðulegasta og
flottasta. Diskótekið gekk í flesta
staði óaðfinnanlega, um tónlist sá
skífuþeytirinn ívar Pétur Kjartans-
son en einnig spilaði rokkhljóm-
sveitin Without Balls tvö lög við
gríðarlega góðar undirtektir, en
hljómsveitina skipa íjórar stúlkur
úr 9. og 10. bekk Hallormsstaðar-
skóla.
GG
Buslugangur
Þátttakendur á námskeiði i ungbarnasundi. Mynd: Óðinn Gunnar Óðinsson
Stefanía Freysteinsdóttir, sundkenn-
ari í Neskaupstað, hefur í tíu ár stað-
ið fyrir námskeiðum í ungbama-
sundi og hefúr eitt slíkt verið í gangi
að undanförnu. Á námskeiðinu að
þessu sinni em tíu böm á aldrinum
3ja - 7 mánaða, fjögur koma frá Eg-
ilsstöðum en sex ffá Neskaupstað.
Stefanía segist kenna að meðaltali
þrjú 12 tíma námskeið yfir veturinn
og þá sé kennt tvisvar í viku. Fram-
haldsnámskeið em síðan vikulega
frá nóvember og fram i maí. „Þau
böm sem byrja strax á haustin em í
langflestum tilfellum hjá mér allan
veturinn og fram á vor,” segir Stef-
anía og heldur áífam: „Fólk kemur
af öllu Austurlandi, ekki bara úr
Fjarðabyggð. Konur frá Egilsstöð-
um em duglegastar að koma, fyrir
utan Norðfirðingana. Einnig hafa
konur komið frá Fáskrúðsfirði og
Stöðvarfirði. Ein kona lfá Borgar-
firði Eystra kom í alla tímana tólf
með son sinn fyrir tveimur árum.”
Ungbarnasund virðist njóta vax-
andi vinsælda hérlendis sem
hreyfiþjálfun fyrir ungabörn.
„Ungbarnasund er hreyfiþjálfun í
vatni þar sem meðal annars er farið
í margs konar leiki og sungið. For-
eldrum gefst tækifæri til að efla til-
finningatengsl sín við barnið, þar
sem það fær óskipta athygli.
Ungbarnasund er líka forvarnar-
starf til að gera barnið sjálfbjarga í
vatninu, það lærir smám saman að
bera virðingu fyrir vatninu. Börn
fæðast með mörg ósjálfráð við-
brögð sem hverfa fyrstu mánuðina.
Eitt þeirra er svokallað köfnunar-
viðbragð þar sem barnið bregst við
ákveðnu áreiti, svo sem blæstri,
eða vatnsgusu, í andlitið með því
að loka fyrir öndunarveginn. Við
það áreiti gefst tækfærit til að láta
það kafa. Til að geta viðhaldið
þessu viðbragði er nauðsynlegt að
byrja sundið fyrir sex mánaða ald-
ur,” segir Stefanía.
„Börn þurfa mismikla aðlögun i
ungbarnasundi og er það því mikil-
vægt að foreldrar hugsi alltaf fyrst
og síðast um þarfir barnsins.
Líði barni illa er ósköp notalegt að
draga sig afsíðis í lauginn og gefa
því að drekka.”
GG
TM-Öryggi Sameinaðu allar tryggingar á
fyrir fjölskylduna einfaldan og hagkvæman hátt.
www.tmhf.is I ÖRYGGI
1962-2002
Austfjarðaleið
477 1713
□ VAKA 6005111917 I H&V
r Verslið þar sem úrvaUð er... ...aUt í einni ferð
Samkaup lúrval
EGILSSTÖÐUM Opió mánud. - föstud. 9-19 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 h
Samkaup íúrvai
EGILSSTÖÐUM A
INNANLANDS er...
öflugasta flutninganetið á l’slandi. Við höfum sameinað áætlunarflutninga Flytjanda, gámaatetur Eimskips og svæðisskrifstofur
um land allt í eitt heildstætt flutningakerfi. Við bjóðum daglegar ferðir og öfluga dreifingarþjónustu bæði fyrir fjölskyldur
og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum og erum leiðandi í flutningum á kældum og frystum afurðum.
EIMSKIP
INNANLANDS
Klettagarðar 15 104Reykjavík Sími 525 7700 Fax 525 7709 www.eimskip.is