Ylfingablaðið - 01.12.1937, Side 5

Ylfingablaðið - 01.12.1937, Side 5
YLFING ABL AÐIÐ 5 Allar æfingar eiga að hefjast á kveðju og dýradansi, og enda á söng og kveðju. Og mundu svo, litli ylfingur, að þú átt allt af að hlýða gamla úlfinum, hvort heldur það er pabbi, mamma, kennari, húsbóndi eða foringi, — og: Að þú mátt aldrei gefast upp! ALDREI! Þetta áttu að reyna eftir megni! G. Andrew. Keppinautar. Saga frá Jótland! ÍSveinn gekk hljóðlega inn í prjónastofuna, þar sem mamma lians sat við vélina, eins og vant var. „Mamma“, sagði hann og benti á auglýsingu í „dótlandspóstinum". „Þetta vær'i staða fyrir mig“. Mamma lians leit þreytulega upp frá vinnu sinni. „Hvaða staða er það, drengur minn?“ Sveinn las: „Duglegur, áreiðanlegur unglingur, sem hefir lokið gagnfræðaprófi og langar til að stunda verzl- unarstörf, getur fengið góSa atvinnu strax. Um- sækjendur hitti mig sjálfan kl. 10—12, í skrif- stofu minni í Aðalgötu í Arósum. Chr. Skou, stórkaupmaður“. Pilturinn lagði blaðið frá sér og stundi við, um leið og hann strauk hárið frá enninu. „En lík- lega er það vonlaust. Eg er að verða leiður á þessu‘ ‘. Mamma hans sat andartak og hallaði bakinu npp að prjónaborðinu, áður en hún lét skoðun sína í ljós. „Skou stórkaupmaður er mjög vel látinn“, sagði hún svo. „Eg held þú ættir að reyna. Einhvern- tíma lilýtur þér að heppnast að fá vinnu“. Sveinn kinkaði kolli. — „A eg að reyna að fá lánað re:ðhjól ? Þetta er ekki s\fo ógurlega langt“. Mamma hans leit þreytulega á klukkuna. „Nei, forðu heldur með lestinni. Annars nærðu ekki á réttum tíma í dag, og á morgun verður þaS vafa- laust of seint. Þú nærð í hraðlestina, ef þú flýt- h þér, og það er alveg mátulegt. Búðu þig nú í skyndi, og á meðan skal eg útbúa matarbita handa þér“. Sveinn flýtti sér einsog hann gat að komast í sparifötin og borða, og eftir fjórðung stundar var hann búinn til ferðar. „Yertu sæl, mamma mín!“ sagði hann og þaut af stað. Mammma hans strauk tár af kinn sér. „Vertu saell, drengur minn, og góða ferð. ÞaS væri sann- arleg heppni fyrir okkur, ef þú kæmist að. — Æi-jæja, það er víst ekki vert, að gera sér of háar vonir. Það sækja sjálfsagt. margir um svona gott. stai-f. Hefði hann pabbi þinn lifað! Hann var kunnugur athafnalífinu, og hefði getað hjálp- að þér áfram“. Sveinn mátti ekki koma mínútunni seinna á járnbrautarstöðina. Lestin var búin til brott- ferðar. „Þér verðið af flýta yður, ef þér ætlið að komast með“, kallaði stöðvarþjónninn lafmóður; Iiann hljóp meðfram lestinni og skellti aftur vagn- dyrunulm. Sveinn þaut inn í vagn, og lá við sjálft, að hann velti Arna syni héraðslæknisins um koll; hanm stóð í göngunum og var að kveikja í vindl- ingi. — „Fyrirgefðu!“ „Hvað — er það nú?“ spurði læknissonurinn hissa. „Hvert ætlarðu að fara?“ „Til lrósa“. „Það var gaman; ég ætla þangað líka, Við e;g- um þá samleið. Við skulum Isetjast hérna inn í klefa og hvíla lúin bein. Viltu reyk?“ „Nei, þakka þér fyrir, eg reyld ekki“. „•Ta, svei!“ sagði Árni háðslega og þevtti gíf- urlegum reykjarstrók út um nefið. „Eg hélt þú hefðir slit.ið barnaskónnm“. „Nei, ofurlítið er eftir af þeim“. Drengirnir höfðu verið bekkjarbræður í barna- skólanum, og þekktust því vel, en ekki voru þeir þó eiginlega vinir. Árni var of hávær og mikill á lofti t’l þess að falla Sveini í geð, en hann var kyrrláfur og hafði þegar, þótt ungur væri, reynt ekki svolítið af því, sem vant er að kalla alvöru lífsins. Hann hafði misst föður sinn fyrir sex árum,. aðalhúsasmið þorpsins, og fáuim mán- uðnm síðar dó emkasystir hans. Bétt á eftir varð móðir hans að flvtja úr fallega liúsinu þeirra. í litlu íbuöina við Smiðjugötu, og þá komu prióna- velarnar í húsið, til þess að framfleyta mæðg- inunum,

x

Ylfingablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ylfingablaðið
https://timarit.is/publication/1697

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.