Ylfingablaðið - 01.12.1937, Blaðsíða 9
YLFINGABLAÐIÐ
9
(§> AXELV. TULINIUS
skátahöfðingi Islands látinn.
f
Sú harmfregn barst okkur íslenzkum skátum
og ylfingum 8. desember frá Kaupmannahöfn,
að skátahöfðingi okkar og leiðtogi um 24 ára
skeið, væri látinn. Tulinius hafði síðan í sumar
dvalið sér til heilsubótar í Danmörku, en fylgd-
ist samt sem áður með öllum skátastörfum hér
heim til hins síðasta, því að efling og viðgang-
ur skátahreyfingarinnar var, eins og öllum er
kunnugt, eitt af hans aðaláhugamálum.
Snemma hneigðist hugur Tuliniusar að mál-
efnum æsku landsins, því þegar á árinu 1896
stofnaði hann og kenndi leikfimisfélagi Eski-
f jarðar. Hann skildi strax réttilega, að heilbrigð
sál þarf að búa í hraustum líkama. Það er því
engin tilviljun, að hann er einn af frumkvuðl-
um að stofnun Iþróttasambands Islands, og
fyrsti forseti þess, starfa, sem hann gegndi um
margra ára skeið með þeirri glæsimennsku, er
einkenndi öll hans störf. Hann sá betur en nokk-
ur annar, að íþróttahreyfingin og skátahreyf-
ingin áttu samleið að því takmarki, að ala upp
góða og sanna íslendinga, því enginn gat betur
brýnt það fyrir okkur skátunum en Tulinius,
hvernig við ættum að leitast við að verða sann-
ir og trúir þegnar íslands. Hinn þríliti fáni ís-
lands var honum heilagt tákn, enda mun varla
nokkur íslendingur hafa meir gert að því en
hann að kenna æsku landsins að meta og virða
þjóðfána vorn, og mun það honum mest að
þakka, að skátarnir leggja svo mikla rækt við
að íslenzka fánanum sé sýnd tilhlýðileg virðing,
og að rétt sé með hann farið.
Strax árið 1913 tók Tulinius við stjórn Vær-
ingjafélagsins, og var yfirforingi þess til 1924.
Öll þessi ár vann Tulinius að skipulagningu fé-
lagsins og hafði auk þess á hendi kennslu í
gönguæfingum og öðrum skátaæfingum. Hann
samdi fyrir skátana „Göngubálk skáta“, sem ís-
lenzku skátarnir nú nota við gönguæfingar sín-
ar. Á þessum árum lagði Tulinius grundvöllinn
að skátastarfinu, eins og það er hér á íslandi.
Þótt hann 1924 léti af starfi, sem formaður
Væringjafélagsins, var það ekki til þess að setj-
ast í helgan stein, heldur gerðist hann nú for-
göngumaður þess, að Bandalag íslenzkra skáta
var stofnað 1924; starfaði hann í stjórn B. I. S.,
sem formaður og skátahöfðingi Islands til
dauðadags. I stjórn Bandalagsins naut sín vel
þekking hans á félagsmálum og skipulagsgáfa,
enda var alltaf leitað til hans um öll vandamál
er að höndum bar. Með starfi sínu í stjórn B.
I. S., kom hann málefnum skátanna í það horf,
að örugt er að skátahreyfingin mun verða ein
öflugasta æskulýðshreyfing Islands á komandi