Ylfingablaðið - 01.12.1937, Síða 10

Ylfingablaðið - 01.12.1937, Síða 10
10 YLFINGABLAÐIÐ árum. íslenzku skátarnir sýndu, að þeir kunnu að meta störf Tuliniusar, með því að sæma hann æðsta heiðursmerki skáta, Silfurúlfinum. Orð- stýr hins fyrsta skátahöfðingja íslands mun okkur skátunum aldrei gleymast, eins og í Hávamálum stendur: „Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur et sama, ek veit einn at aidrei deyr“. Ylfingar, heiðrið minningu hins látna 'leið- toga okkar með því að starfa vel og trúlega sem ylfingar, og síðar að keppa að því marki, að verða sannir og duglegir skátar, og aldrei að gefast upp, við það verk, er Tulinius hóf, að vinna að framgangi og v.exti skátafélagsskapar- ins á íslandi. aði: „Eg vil ekki hafa neinn strák“. Og frúin sagði, að hún vildi ekki hafa svona götustrák í sínum híbýlum, og síðan gekk hún út. — Tom var svo undrandi yfir þessum móttökurn, að hann heyrði ekki, að Hansen sagði: „Þetta skaltu ekki láta á þig fá. En nú ætla eg að biðja stúlkuna að baða þig og láta þig fá hrein íöt; svo skaltu fá að borða“. — Síðan hringdi hann bjöllu, og samstundis opnuðust dyrnar og inn kom þjónn. Hansen gaf honum fyrirskipanir, og síðan fór hann út með Tom. — Það var gott að komast í bað. Tom stóð fyrir framan speg- ilinn og speglaði sig, — en hvað hann var fínn! Hann þorði varla að hreyfa sig í þessum fínu fötum. Nú kom þjónn inn og sagði, .að miðdegis- verðurinn væri tilbúinn, síðan fór hann út. — Aumingja Tom vissi ekki hvað hann átti að gera, því að hann vissi ekki hvar átti að borða. En hann var ekki lengi ráðalaus, heldur gekk hann að bjöllunni, en hikaði við að hringja; en þar sem hann átti einskis annars úrkosta, þá herti hann sig upp og hringdi. — Samstundis kom þjónn inn og spurði, hvað hann vildi. — Strax og hann nefndi það, sagði þjónninn: „Herra, viljið þér gjöra svo vel að fylgja mér?“ Tom fylgdi honum eftir löngum gangi, og þegar þeir loksins komu að breiðum gangi, sagði þjónninn um leið og hann opnaði dyrnar: „Það er hérna, herra“. — Tom hafði orðið svo :nörg- um sinnum hissa, að maður skyldi ætla, að hann liefði ekki getað orðið það oftar, en samt varð liann hissa, þegar farið var að þéra hann. Framhald. Umkringdir af Siux-indíánum. Smith flokksf oringi. snéri sér í hnakknum. „Hvenær komum v'ið að gjánni, þar sem elgirn- ir eru,“ spurði hann óþolinmóður. „Eg hugsa, að við komum þangað eftir 'hálftíma, herra flokks- foringi,“ sagði Jackson liðþjálfi, sem reið rétt iyr’ir aftan hann, og á eftir. honum voru fjórir hermenn, allir á hestum. „Þetta er ljóti vegurinn,“ sagði Smith. „Já,“ sagði Jackson, „og' ekki sízt ef indíánarnir eru i.ær á sveimi.“ „Indíánarnir,“ endurtók Smith hæðnislega, „þeir voga sér ekki svona nærri víginu, og svo eru þeir komnir til vetrarsíaðar síns upp við fljótið.“ „Maður heyrir að flokksforing’inn er ný- kominn í herinn,“ sagði Jackson, „rauðskinnarnir eru þar, sem maður sízt býst við þeim, -og sér- staklega eft'ir að SittingBulI varð höföingi þeirra, hann er eins og NapóIeon.“ Þetta litla riddaralið iiélt áfram gegnum skóg- inn. Smith sat fýlulegur á hesti sínum og hugsaði aðeins um sjálfan sig, en Jackson horfði í allar áttir, því að indíánarnir voru mjög herskáir um þetta leiti, og leiðin lá um Dakota, þar sem Sioux- arnir héldu til. Dauft hljóð heyrðist úr mannháa grasinu, sem óx við þennan mjóa veg. Það fékk Jackson til að grípa r’iffilinn, en i sama bili heyrðist hvellt blístur, og þá lagSi Jaclt- son afíur frá sér riffdinn og hélt í hest sinn. Fram úr grasinu hljóp fjórtán ára drengur, með hund á eftir sér. Hermennirnir námu staðar. „Hvað vilt þú ?“ sagði Smith vondur. „Siouxarnir eru í námd“, sagði Dick (það hét drengurinn). „Þið skuluð bíða“, bætti hann við. „Hefur þú séð þá“. „Nei, en K.Vik hann hefir þefað þá, og hann getur þefað þá langar leiöir“. „Uss“, sagði Smith, „eigum við sex h jrmenn að hlíða einum strák bjána“.

x

Ylfingablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ylfingablaðið
https://timarit.is/publication/1697

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.