Ylfingablaðið - 01.12.1937, Side 15

Ylfingablaðið - 01.12.1937, Side 15
YLFINGABLAÐIÐ 15 Ylfi ngar og Skátablaðið. Skátablaðið 2. tbl. 3. árg. kom út 21. nóvem- ber þ. á., og var ylfingum frá skátafélögunum „Væringjar“ og „Ernir“ falið að selja blaðið í Reykjavík. Alls tóku um 90 ylfingar þátt í söl- unni, þrátt fyrir þótt veður væri alls ekki gott. Verðlaun fengu 3 þeir, sem seldu flest blöð, og voru þau ákveðin kr. 5,00, kr. 3,00 og kr. 2,00. 1. verðlaun hlaut Hrafn Tulinius, Tjarnargötu 40 (seldi 24 blöð). 2. verðlaun hlaut Bjarni Steingrímsson, Fjölnisveg 15, og 3. verðlaun hlaut Tórnas Helgason, Kleppi. Skátablaðið þakkar öllum ylfingunum fyrir góða aðstoð, og vonast til að allir verði tilbúnir að selja blaðið aftur, þegar það kemur út næst, en það verður væntanlega í aprílmán. næsta ár. Ylfi ngar á Sauðárkróki. Skátafélagið ,,Andvarar“ liafði starfað í nær 5 ár, er það fékk sína fyrstu ylfinga, en það var 10. marz 1934; er ylfingaflokkur var stofnaður með þrem ylfingum. Foringi þeirra var Margrét Sigurðardóttir. Þegar eftir stofnunina sóttu nokkr- ir drengir um upptöku, sem þeir líka fengu. Þessi ylfingaflokkur starfaði í rúmlega e'itt ár eða til 29. maí 1935, e hannr liann var lagður niður. Þá voru í flokknum 8 ylfingar. Sex þeirra gengu upp, en tveir hættu. Aðalásfæðan fyrir því, að flokkurinn var lagður niður, var sú, að foring'inn var að fara úr bænum. Þrátt fyrir það, hve stutt þessi flokkur starfaði, tel ég, að hann hafi haft mjög mikla þýðingu fyr'ir félagið. Margir af þessum fyrverandi ylfing- rm hafa reynzt ágætlega sem skátar og eru ennþá vel starfandi og hafa mikinn áhuga fyrir málefn- um skátahreyfingarinnar. — Eftir aS þessi flokk- urvarlagður niður, sáum v'ið það fljótt, að stofna þurfti ylfingaflokk á nv, og 22. apríl s.l. (á sumar- daginn fyrsta), var flokkurinn stofnaður með 12 ylfingum. Foringi þeirra er Frank B. M'ichelsen, ritstjóri Skátáblaðsins. En nöfn vlfinganna eru þessi .(eftir stafrofsröð) : Aage Yaltýr Michelsen 8 ára Árni Þorkell Blöndal 7 — Arni Sigurðsson 9 — Grísli Tómasson 9 — Jón Halldór Fr’iðriksson 9 — Kristinn Pálmi Michelsen 11 — Kristján Þórður Blöndal 9 — Magnús Hilmar Björnsson 11 — Snorri Sigurðsson 8 — Þorvaldur Ari Arason 8 — Inntaka ylfinganna fór farm í SauSárkróks- kirkju við skátaguðsþjónustu. Ylfingarnir komu td kirkju í skrúðgöngu undir íslenzka fánanum, ásamt kven- og drengjaskátunum. Eftir að sung- inn hafð'i verið einn sálmur, gekk foringinn upp að altarinu og t'lkynnti hvað fram átti að fara. Síðan kallaði hann á alla ylfingana með nafni, eftir stafrofsröð, og röðuðu þeir sér í iiálfhr'ing fyrir framan liann. Foringinn útskýrði fyrir þeim, hvað það væri að vera ylfingur og hvaða ábyrgð fylgdi því. Að öðru leyt'i fór inntakan fram sem hér segir: Foringinn: Kunnið þið ylfingalögin, ylfinga- lieitið, stóra hrópið og kveðjurnar? Ylfingarnir: Já (allir í kór). For.: Hvernig eru lögin ? Ylf.: Ylfingur hlýðir gamla úlfinum. Ylfingur gefst aldrei upp. For.: Eruð þið viðbúnir að vinna hið hátíðlega heit ýlfinganna. Ylf.: Já, það erum við. Ég lofa að reyna eftir megni að halda ylfingalögin, og að gcra á hverjum degi eitthvað öðrum til gleði og hjálpar. Fro.: Ég treysti ykkur til að reyna af öllum mætti að efna heit ykkar, og ég lýsi því hér með yfir, að þið eruð teknir 'inn í hið mikla bræðra- lag' ylfinga, og Alþjóðábræðralag skáta. Verið vel- komnir! Þessu næst afhenti foringinn hverjum ylfing sitt félagsskírteini og tók í vinstri hönd hvers ylfings, sem um leið heilsaði með ylfngakveðju.— Ylfingar fengu sér nú sæti og var nú sunginn söngur úr Söngbók skáía, sem einnig er í sálma- bókinni. Sóknarpresturinn, séra Ilelgi Konráðsson, sem er deildarforingi skátafélagsins, sté í stólinn og talaði um skátahreyfinguna. í enda ræðu sinnar m'inntist liann Baden Powells í tilenfi af því, að hann varð 80 ára 22. febr. s.l., og las ávarp frá

x

Ylfingablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ylfingablaðið
https://timarit.is/publication/1697

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.