Bræðrabandið - 01.02.1963, Page 1
f/7 lesenda gRÆÐRABANDSINS
Kæru systkini og vinirl
Við byrjun nýs árs sendi ég ykkur öllum kærar kveðjur og
beztu óskir.
Liðna srið var gjöfult og gott allri þjóð okkar. Sem
söfnuöur getum við vissulega sagt að Drottinn hafi mettað okkur
gæðum. Fjórtán nýir meðlimir bættust söfnuðinum á árinu. 1
Keflavík óx hópur okkar svo að börnum og fullorðnum, aö
húsrýmið, sem notað var til samkomuhalds á hvíldardögum, varð
allt of lítið. Unnið er mjög að því að efla þar kirkjubyggingar-
ajóð, en meðan því fer fram hefur söfnuðurinn þar verið svo lán-
samur að bræöur tveir, sem gerðust safnaðarmeðlimir á árinu,
létu honum í té ágætan sal til samkomuhalds.
Tíund og gjafir hafa mjög vaxið á árinu, en að sjálfsögðu
vex og allur rekstrarkostnaður með vaxandi verðbólgu.
Tveir nýir kennarar hófu starf, Guðmundur ölafsson í
Hlíðardalsskóla og Jón Karlsson í safnaðarskóla Reykjavíkur.
Skólamir þrír eru þétt settnir nemendum.
Almennar samkomur eru haldnar á nokkrum stööum svo sem
Selfossi og nágrenni, í Keflavík og nú munu þær hefjast í Reykja-
vík. Starf systrafélaganna virðist stöðugt fara vaxandi. Basarar
voru haldnir á fjórum stöðum á þessum vetri og seldust vörur
fyrir meira en 70.000.oo kr.
Á liðna árinu fékkst loks langþráð leyfi til að útvarpa
guðsþjónustu frá kirkju okkar. Samkvæmt því má útvarpa guðs-
þjónustu sinu sinni á ári. Fyrstu guðsþjónustunni var út-
varpað sunnudaginn 21. október. Mun nú verða unnið að því með tíð
og tíma að fá rýmkun á leyfi þessu svo að oftar verði hægt að
útvarpa frá kirkjunni.
Merkilegir atburðir eru að gerast í heimsmálunum á þessum
tíma, sem sýna áþreifanlega uppfyllingu spádómanna - mætti þar
nefna Vatikanfundinn og Efnahagsbandalagið.
íiættum við skilja boðslcap þessara atburða og með hjálp
Guðs framkvæma það, sem okkur hefur verið trúaö fyrir áður en
um seinan er orðið.