Bræðrabandið - 01.02.1963, Side 3
Bls. 3 ~ Bræörabandiö - 1.2.1o3
Hve oft erum við alltof önnum kafin og höfum of lítinn
tíma til að biðja. Við höfum mikið að gera, en við verðurn að
muna, að sá, sem biöur mest - honum verður einnig mest úr verki.
Jesús var sá maður, sem mest hafði að ger« af öllum, sem hér á
jjörðu hafa verið. Hann var ávallt önnum hlaðinn. Á lcvöldin
var hann þreyttur og þarfnaðist svefns og hvíldar. En liann tók
hluta af svefntíma sínum til að biðja. "Og árla, löngu fyrir
dögun, fór hann á fætur og gekk út og fór á óbyggðan stað og baðst
þar fyrir." (Mark.l:35) Pólksfjöldinn safnaðist kringum hann, en
hann tók ávallt, tíma til að biöja. "Og er hann haföi kornið mann-*
fjöldanum frá sér, fór hann einn saman upp á fjallið, til þess
aö biðjast fyrir." (Matt,14:23.)
Hve mikið biðjum við? Og hvernig biðjum við? Krjúpum við
eins og lítil börn og biðjum Jesú að senda englana sína til að
varðveita okkur í nótt - og flýtum okkur svo að seg«ja Amen og
fara í rúmið?- Eða tökum við okkur raunverulega tíma með Guði?
Maður í hárri stöðu sá eitt sinn lítinn dreng vera að
reyna að hringja dyrabjöllu á húsi einu, en drengurinn var of
lítill til að ná upp að bjöliunni. Maðurinn gekk því til hans og
hringdi. Um leið og hringingin heyrðist leit drengurinn á mann-
inn og sagöi:"l\Tú skulum við hlaupa fljótt áður en nokkur kemur."
Það var auðvitað ekkert annað fyrir manninn að gera, en biðjast
afsökunar fyrir hönd drengsins.
Við þurfum að endurlæra list íhugunarinnar. "Þegar allar
aðrar raddir hafa þagnað og við bíðum í kyrrð eftir Drottni, mun
kyrrð sálarinnar gera rödd Guðs skýrari, Hann segir: Hættið og
viöurkennið að ég er Drottinn." Desire of Ages bls.363
Eigum við ekki að ákveða að nota meiri tima til Biblíu-
lesturs á árinu 1963. Hve mikinn tíma notum við daglega til aö
borða? Eg býzt við að flest okkar noti u.þ.b, eina klukkustund.
Skyldum við nota svo mikinn tíma til að lesa í Biblíunni daglega?
Ættfaðirinn sagði :"Frá orðum vara hans hefi ég ekki vikið og metið
þau meira en fæðu mína." Job.23:12 (ensk þýðing.)
Stundum verðum við fyrir þeirri freistingu að flýta okkur
að lesa í Liblíunni - við lesum í flýti einn kafla og getum svo
sagt að við höfum lesiö kafla dagsins. En það er ekki alltaf undir
þvl komið hve mikið við lesum, heldur hvað gagn við fáum af því
sem við lesum. Þjónn Guðs skxifaði: Lesið eitt vers og íhugið
það og finnið þann boðskap, sem Guð hefur lagt í það. Dveljið svo
við þá hugsun, sem í versinu felst, þar til hún verður hugsun
ykkar sjálfra, Eitt vers, sem lesið er þannig að hugsun þess verði
ljós hefur meira gildi en hraðlestur margra kapxtula án nokkurs
tilgangs og án þess að þekkingin aultist." E.G.W.
Rounveruleg Biblíurannjsókn krefst tímo, en þennan tíma
veröum við að taka okkur.
Við verðum líka að taka tíma til aö vera kurteis. Kurteisi
er fremur sjaldgæfur eiginleiki nú á dögum. Okkur ber að taka
tíma til að segja "þökk fyrir" - til að víkja fyrir öðrum
vegfarenda, til að heilsa fólki og til að segja uppörvandi orð.
Við erum ávallt í leit að stærri stofnunum, meiri peningum,
betur menntuðum mönnum og betri aðferðum til að auka starf okkar,
Þetta er allt mjög gott, en viö megum ekki gleyma ráðinu, sem oklcur
var eitt sinn gefið. "Ef við lítillækkuðum okkur sjálf fyrir Guði
og værum góðviljuft, kurteis og samúðarfu.ll myndu hundruð vinnast
þar sem nú vinnst einungis einn."