Bræðrabandið - 01.02.1963, Síða 6
Bls. 6 - Bræðrabandið - 1.2.163
1 raun réttri er þetta ekki hið rétta nafn þessarar sam-
steypu því að hún stefnir að stjómmálalegri sameiningu Evrópu.
Það er sagt að bandalag þetta muni lækka verð margra
vörutegunda, og aö það muni tryggja vaxandi velmegun, en að tjalda-
baki eru sterk öfl, sem keppa að því að koma upp miðstjóm fyrir
alla Evrópu líkri þeirri er stjómar Bandaríkjum Ameríku.
Að baki þessu áformi er rómversk kaþólska kirkjan, þótt
hennar sé þar sjaldan getiö. Hún átti meira að segja upptökin
að hugmyndinni strax að aflokinni heimsstyrjöldinni síðari. Og
aðalforsvarsmenn þess voru tveir kaþólskir menn, þeir Konrad
Adenauer í Vestur-Þýskalandi og Paul Henri Spaak í Belgíu.
Athyglisvert er það, að öll sex aöildarríki banda-
lagsins eru kaþólsk lönd að mestu, og er svo að sjá, sem kirkjan
telji að hún hafi verulegan pólitískan og fjárhagslegan hagnað,
ef áform þess ná fram að ganga.
Sameining kirkju og ríkis í samsteypu þessari er sjaldan
nefnd, en hún er engu að síður uggvænlegur raunveruleiki. Gæti
svo verið að fjárhagslegi ávinningurinn, sem svo mikið er af látið,
sé aðeins yfirvarp, er hylja eigi eitthvað? Ef Bretland skyldi
ganga í bandalagið og verða eina mótmælenda stórveldi þess - myndi
það þá ekki verða þar sem mús undir fjalarketti? Eða hverskonar
ástand mun skapast í Evrópu, ef rómversk kaþólskakirkjan yrði
þar öllu ráðandi?
Sumir þeirra, er rannsaka spádómana, halda að með þessari
þróun geti ræzt spádómurinn í Op, 17:12.13. - "Og homin tíu, sem
þú sást, eru tíu konungar, sem enn hafa eigi tekið konungdóm, heldur
fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. Þessir hafa allir
eitt ráð, og máttinn og vald sitt gefa þeir dýrinu."
Vissulega er sú tilgáta athyglisverð, og "ein stund" gæti
bent til þess hve skammvinnt það skipulag muni verða er á kann
að verða komið.
Lokaafdrif þess bandnlags eru skýrt sögð fyrir í Dan.2:43 -
um þau getur því enginn vafi ríkt.
Þaö er um þjóðir Evrópu, sem Guð segir gegnum spámann sinn
þessi orð;"og þó ekki samþyðast hvorir öðrum eins og jámið sam-
lagar sig eigi við leirinn."
Þessi dómur hefur að engu gert hverja þá tilraun, er gerð
hefur verið til að sameina Evrópu um 15 alda skeiö.
Nýjasta óformið um sameiningu Evrópu mun hljóta sömu
örlög. Sameinuðu þjóðirnar styðja það e.t.v., þaö hlýtur án efa
blessun páfans og kirkjuþings hans, en árangurslaust. Vera kann
að áformið virðist fá byr undir báðo vængi um hríð. Svo kann að
virðast sem fomar f jandsamlegar þjóðir fallist í faðma, en sæði
óvildorinnar mun halda áfram að vera til, eins og vírus. Og skyndi-
lego, öllum að óvörum, mun öll spilaborgin hrynja.
Mikilvægast í öllu þessu er sú staðreynd, að öll þessi
þróun er nátengd lokaþáttun hcimssögunnar. Hámark þeirra er koma
Krists í mætti og dýrð, sem konungur ekki einungis yfir Evrópu,
heldur allror veraldar. Hrein eins og klukknahringing hljómor hln
guðlega viðvörun £ Daníel 2:44 -