Austurglugginn


Austurglugginn - 27.05.2011, Qupperneq 2

Austurglugginn - 27.05.2011, Qupperneq 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 27. maí Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og stjórnlagaráðsmaður, vann úttekt á framhaldsskólum landsins fyrir nýjasta tölublað Frjálsrar verslunar. Í tölublaðinu kemur fram að skól- arnir séu metnir samkvæmt 17 gæðavísum, þessir vísar snúast að mestu leyti um þátttöku nemenda í keppnum á vegum félags framhalds- skóla og sérgreinafélaga í einstökum námsgreinum sem kenndar eru í framhaldsskólum s.s. Gettu Betur, MORFÍS, Söngkeppni framhalds- skólanema og Íþróttavakningu fram- haldsskólanna. Flestir skólameistarar sem fram hafa komið í fjölmiðlum undanfarið vegna úttektarinnar hafa dregið aðferðafræði Pawels í efa, engu virðist skipta í hvaða sæti viðkomandi skóli lenti, flestum ber saman um að úttektin sé ómarktæk. Þá hefur Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, dregið niðurstöðurnar í efa og bent m.a. á ójöfn tækifæri milli skóla á landsbyggðinni og í höfuðborginni til að taka þátt í mörgum þeim keppnum sem lagðar eru til grundvallar matinu. Í úttektinni notaðist Pawel við árangur skólanna í innlendum og alþjóðlegum keppnum, svo sem Gettu Betur. Í könnuninni er Menntaskólinn í Reykjavík á toppi listans, með 925 stig, og Menntaskólinn í Hamrahlíð er í öðru sæti, með 660 stig. Verkmenntaskóli Austurlands er hins- vegar í neðsta sæti. Í ljósi þess hve Verkmenntaskóli Austurlands kemur illa út úr könnuninni hefur Verkmennta- skólinn sent frá sér yfirlýsingu. Tilkynningin er svohljóðandi: „Vegna fréttar Stöðvar 2 mánudags- kvöldið 16. maí sl. Umrædd grein sem vísað er í í frétta- tíma Stöðvar 2 er úttekt á afmörk- uðum þáttum í rekstri og starfi fram- haldsskóla. Þar er horft til 17 flokka sem einkum snúa að þátttöku nem- enda í keppnum á vegum félags fram- haldsskóla og sérgreinafélaga í ein- stökum námsgreinum sem kenndar eru í framhaldsskólum. Í greininni er sleginn varnagli á úttekt sem þessa og taka bæði menntamálaráðherra og skólameistarar þriggja efstu skólanna í úttektinni undir þá gagnrýni. Það er hæpið að mínu mati að þessar niðurstöður séu nýttar til að hvetja grunnskólanemendur til að velja skóla eins og Pawel Bartoszek heldur fram í úttektinni og í viðtali á Stöð 2 því það kemur ekkert fram í úttektinni sem mælir gæði þeirrar vinnu, kennslu og árangurs sem fram fer í framhalds- skólum landsins. Í annarri grein laga um framhaldsskóla 92/2008 segir: „Hlutverk framhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóð- félagi með því að bjóða hverjum nem- anda nám við hæfi..“ Gr. 32 í sömu lögum leggur einnig þá skyldu á framhaldsskóla að taka alla nemendur inn sem lokið hafa undir- stöðumenntun eða náð hafa 16 ára aldri. Verkmenntaskóli Austurlands tekur alla nemendur sem sækja um nám í skólann inn. Ekki er um að ræða að velja bara þá bestu né þá sem ekki uppfylla inntökuskilyrðin. Skólinn kennir fornámsáfanga sem eru upp- rifjun á námi úr grunnskóla fyrir þá sem ekki hafa lokið námsefni grunn- skólans þegar þess þarf. Einn þáttur sem fjallað hefur verið um í úttektinni er menntun kenn- ara skólanna í árum talið í háskóla. Í Verkmenntaskóla Austurlands kenna 7 af 21 kennara skólans á iðnnámsbrautunum. Þeir eru allir með þau réttindi sem krafist er til kennsl- unnar þ.e. sveinspróf, iðnmeistara- próf og kennsluréttindi í framhalds- skóla. Það nám er ekki háskólanám og það skýrir af hverju verknámsskólar koma verr út en bóknámsskólar í úttektinni, þar sem krafist er a.m.k. 3ja ára háskólanáms auk kennslu- réttindanáms fyrir framhaldsskóla. Bóknámskennarar VA eru undan- tekningarlaust með tilskilin réttindi til kennslu í framhaldsskóla. Í einstaka tilfellum er fagfólk úr atvinnulífinu fengið til að kenna sérgreinda fagá- fanga þegar þannig stendur á. Sækja þarf um undanþágu frá Mennta – og menningarmálaráðuneytinu ef kennari í framhaldsskóla er ekki með kennslu- réttindi og kennir meira en sem nemur 25% starf í frh.skóla. Við höfnum því alfarið að Verkmenntaskóli Austurlands sé versti skóli landsins og vörum við að þessi r s.k. „gæðavísar“ sem þarna eru dregnir fram séu nýttir sem mælikvarðar á gæði skóla.“ Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók í sama streng á síðasta bæjarstjórnarfundi og hafnar niðurstöðum könnunarinnar. Þann 5. maí síðastliðinn voru undir- ritaðir kjarasamningar við Samtök atvinnulífsins. Á miðvikudaginn lauk atkvæðatalningu um aðalkjarasamn- inga AFLs starfsgreinarfélags við Samtök Atvinnulífsins. Allir samn- ingar félagsins voru samþykktir með miklum meirihluta atkvæða. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs, segist ánægð með nýgerða aðalkjara- samninga og segir að „miðað við stöð- una í samfélaginu og hvernig einstakar starfsgreinar standa  þá get ég ekki verið annað en sátt með niðurstöður samninganna. Þessir kjarasamningar eru ekkert frábrugðnir öðrum samn- ingum sem gerðir eru, þeir eru mála- miðlun samningsaðila.“ Hjördís segir að félagsmenn AFLs hafi lagt upp með þá kröfu að auka kaupmátt launa og jafnframt ná fram hækkun lægstu launa umfram önnur laun. Þá segir Hjördís að það hafi verið mikilvægt að nota það svigrúm sem sé til staðar hjá útflutningsfyrirtækj- unum til að sækja á þau með frekari hækkanir en hjá þeim fyrirtækjum sem verr standa. „Ég tel niðurstöðuna endurspegla þetta. Upphafshækkun launataxta eru 12.000 kr. á mánuði en almenn laun um 4.25%. Síðan hækka laun í tveimur áföngum á samnings- tímanum, að því gefnu að forsendur kjarasamninga standi. Í febrúar 2012 um 11.000 kr. á taxta og 3.5% á almenn laun. Í febrúar 2013 um 11.000 kr. á taxta og 3,25% á almenn laun“ segir Hjördís. Þá fylgir því ákveðin kjarabót að ný námskeið fiskvinnslufólks gefi tveggja launaflokka hækkun þegar þeim er lokið og bónusar í fiskvinnslu hækki um 16,25% eða að lámarki 39 krónur á tímann en hækki síðan um 3,50% eða að lámarki 10 kr. og 3,25% eða að lámarki 9 kr. í áföngum. Hjördís segir þetta hafa verið niðurstöðuna sökum þess að ekki tókst að ná fram hækkun á launaflokkum fiskvinnslunnar. Kjarasamningar samþykktir Hafna niðurstöðum úttektar á framhaldsskólum landsins Sunnudaginn 22. maí sl. var haldinn héraðsfundur Austfjarðaprófastsdæmis í Djúpavogskirkju. Var þetta síð- asti héraðsfundur prófastsdæmis- ins þar sem ákveðið var á síðasta Kirkjuþingi að leggja það niður ásamt Múlaprófastsdæmi og stofna nýtt sem sameinaði bæði undir heitinu Múlaprófastsdæmi. Gengur sú sam- eining í gildi 1. nóvember nk. Aðalefni fundarins var Fjármál sókna, sóknargjöld og fjárhagsstaða kirkjunnar. Framsöguerindi fluttu: Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri kirkjunnar og sóknarnefndarformennirnir Guðjón B. Magnússon, Norðfirði og Ingibjörg Björgvinsdóttir, Stöðvarfirði. Í fréttatilkynningu frá prófastsdæminu segir að hljóðið í framsögumönnum og öðrum sem til máls tóku hafi verið afar þungt í garð stjórnvalda gagnvart sjálftöku ríkisins af félagsgjöldum trú- félaga. „Ríkið sér um innheimtu fyrir trúfélög á félagsgjöldum meðlima, en í stað þess að skila innheimtum félagsgjöldum til viðkomandi trú- félaga, heldur það eftir drjúgum hluta þeirrar innheimtu. Um árabil á svokölluðum góðæris- tímum hafa sóknir í prófastsdæminu engu að síður þurft að gæta mikils aðhalds í rekstri til þess að halda úti viðunandi þjónustu, en nú er svo komið að endar ná ekki saman þrátt fyrir aukið sjálfboðastarf. Ef núverandi sjálftaka heldur áfram og að ekki sé talað um að hún auk- ist stefnir i óefni. Héraðsfundarmenn meta það svo að kirkjan sé ein af fáum grunnstoðum samfélaganna og veiti fólki mikilvæga þjónustu sem það getur ekki hugsað sér að sjá af. Sú þjónusta má engan veginn af þessum orsökum minnka eða falla niður“ segir í tilkynningunni. Ályktun héraðsfundar Austfjarða- prófastsdæmis 2011: „Héraðsfundur Austfjarðaprófasts- dæmis haldinn á Djúpavogi sunnu- daginn 22. maí 2011 mótmælir harð- lega sjálftöku ríkisins af lögbundnum félagsgjöldum til trúfélaga. Samkvæmt lögum innheimtir ríkið félagsgjöld fyrir öll trúfélög í landinu, en heldur eftir stórum hluta af inn- heimtunni. Skerðingin er nú 33% af félagsgjaldinu, sem veldur alvarlegum erfiðleikum í rekstri safnaða kirkjunnar í prófastsdæminu þrátt fyrir aðgerðir til hagræðingar og fjáröflunar og mun bitna á þjónustu kirkjunnar ef ekki fæst leiðrétting á hið fyrsta. Fundurinn skorar á ríkisvaldið að skila til trúfélaganna öllum innheimtum félagsgjöldum.“ Síðasti héraðsfundur Austfjarðaprófastsdæmis

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.