Austurglugginn


Austurglugginn - 27.05.2011, Side 3

Austurglugginn - 27.05.2011, Side 3
KYNNING Fréttir frá Fjarðaáli Umsjón: Kristborg Bóel Steindórsdóttir ritstjóri Álpappírsins, fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls. Í haust munu fyrstu 30 nemendurnir hefja grunnnám við Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Stór- iðjunám er tækifæri fyrir framleiðslustarfs- menn til að afla sér fjölbreyttrar menntunar sem nýtist bæði í starfi og frekara námi, auk þess að veita launahækkun. Stóriðjuskólinn er samstarfsverkefni Fjarða- áls, Verkmenntaskóla Austurlands og Þekk- ingarnets Austurlands. Stéttarfélögin AFL og RSÍ eru einnig aðilar að verkefninu. Stuðst er við námskrá fyrir stóriðjunám frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Grunnnámið er þrjár annir og framhaldsnám verður fjórar annir. Verkmenntaskóli Austurlands mun sjá um stóran hluta kennslunnar sem fer að mestu leyti fram í húsakynnum Fjarða- áls að Hrauni. Lágmarksstarfsaldur til að sækja um skóla- vist er þrjú ár. Kynningarefni um Stóriðju- skóla Fjarðaáls verður gefið út um leið og gengið hefur verið frá nýjum kjarasamningi. Hvers vegna Stóriðjuskóli? Störf í álveri eru flókin og krefjandi. Því skiptir miklu máli að byggja upp þekkingu, sjálfstraust og hæfni svo að starfsmenn og fyrirtækið nái hámarksárangri. Markmið stóriðjunámsins er að gera framangreint með markvissum hætti. Tilgangurinn með námi við Stóriðjuskólann er jafnframt að auka starfsánægju og gera Fjarðaál að enn eftirsóknarverðari vinnu- stað. Náminu er einnig ætlað að auka öryggi við vinnu, auðvelda innleiðingu breytinga og þjálfa starfs- og samskiptahæfni. Stóriðjuskóli Fjarðaáls er byggður á nám- skrá um nám í stóriðju frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri námstækni, öflun og miðlun upplýsinga. Hvort tveggja er mikilvæg hæfni í nútímaþjóðfélagi og í starfi hjá stóru fyrir- tæki. Markmið námsins er einnig að efla sjálfstraust nemenda og lífsleikni. Nám við Stóriðjuskóla Fjarðaáls er hægt að fá metið til eininga á framhaldsskólastigi ef hugur stendur til frekara náms. Námið getur því orðið kveikjan að frekara námi þar sem möguleikarnir eru margir. Með því að ljúka bæði grunn- og framhaldsnámi við Stóriðjuskólann geta nemendur fengið allt að 48 einingar metnar upp í nám við Verkmenntaskóla Austurlands. Einnig verður í kjölfar námsins boðið upp á svokallað raunfærnimat þar sem lagt er mat á þá hæfni sem nemendur hafa aflað sér í lífi og starfi, sem veitir frekari möguleika á styttingu náms í iðn- eða bók- námsgreinum. Miklir möguleikar verða því fyrir hendi varðandi áframhaldandi nám að Stóriðjuskóla loknum. Nemendur munu fá ítarlega kynningu á námsmöguleikum í lok námsins, auk persónulegrar ráðgjafar. Nám við Stóriðjuskóla Fjarðaáls mun vænt- anlega að auki veita talsverða launahækkun samkvæmt nýjum kjarasamningi Fjarðaáls, AFLs og RSÍ strax að grunnnámi loknu og aðra hækkun að loknu framhaldsnámi. Gert er ráð fyrir að Fjarðaál greiði fyrir helming þess tíma sem nemar eru í skólanum, eða að jafnaði 16 tíma á mánuði. Fyrir hverja er stóriðjunám? Grunnnám Stóriðjuskóla Fjarðaáls er ætlað framleiðslustarfsmönnum Fjarðaáls, bæði þeim sem vinna á vöktum sem og dag- vinnufólki. Ekki er gerð krafa um ákveðna grunnmenntun og námsmönnum er mætt þar sem þeir eru staddir. Lágmarksstarfs- aldur til að sækja um skólavist er þrjú ár. Endanlegt val á nemum fer fram í samráði við framkvæmdastjóra, en meðal annars er tekið tillit til mætinga, hæfni og frammistöðu í starfi. Framhaldsnám Stóriðjuskólans verður svo ætlað þeim sem ljúka grunnnáminu, en einnig iðnaðarmönnum sem hafa starfað hjá Fjarðaáli í meira en þrjú ár. Hvernig fer kennslan fram? Verkmenntaskóli Austurlands mun sjá um stóran hluta kennslunnar, en kennarar skól- ans hafa mikla reynslu af fullorðinsfræðslu. Sérfræðingar Fjarðaáls munu kenna sér- hæfðar greinar sem snúa að fyrirtækinu sér- staklega. Þekkingarnet Austurlands mun svo sjá um ýmiss konar utanumhald í tengslum við Stóriðjuskólann, svo sem skráningar, samskipti við nemendur og leiðbeinendur, samræmingu í efnisgerð og fleira, auk þess sem námsver Þekkingarnetsins og önnur þjónusta standa nemendum til boða. Hvað verður kennt? Grunnnámið er 358 fimmtíu mínútna kennslustundir sem skiptast niður á þrjár annir. Ítarlega lýsingu á námsgreinum verður að finna í kynningarefni um Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Meðal þess sem farið verður yfir í grunnnáminu eru námstækni og samskipti, umhverfi, heilsa og öryggi, tölvur, stærð- fræði, efnafræði, eðlisfræði, vélfræði, fram- leiðslustýringar, rafgreining og málmvinnsla. Framhaldsnámið verður 462 kennslustundir á fjórum önnum. Af námsgreinum í fram- haldsnáminu má nefna tölvunám, vökvakerfi, loftstýringar, rafmagnsfræði, framleiðnistýrt viðhald, iðnstýringar, veitukerfi og umhverf- isfræði. Stóriðjuskóli Fjarðaáls tekur til starfa haustið 2011 Fyrstu 30 nemendurnir hefja stóriðjunám Skrifað var undir samninga um Stóriðjuskóla Fjarðaáls í Listasafni Tryggva Ólafssonar á Norðfirði, að loknum ársfundi sjálfbærniverkefnisins 13. maí. Frá vinstri Olga Lísa Garðarsdóttir, skólastjóri Verkmenntsakóla Austurlands, Stefanía Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og Sigurður Ólafsson, fræðslustjóri Fjarðaáls.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.