Austurglugginn


Austurglugginn - 27.05.2011, Side 6

Austurglugginn - 27.05.2011, Side 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 27. maí Vetrarveður á Austurlandi Undanfarna viku hefur vetrarveður geisað á Austurlandi. Veðrið hefur þó lagast eftir því sem liðið hefur á vikuna en óveður, ófærð og illfærð olli talsverðum vandræðum víða. Margir sátu fastir í bílum sínum á Fagradal sem og víðar sökum veðurs og færðar en óveðrið kom mörgum ferðamönnum í opna skjöldu enda óvanalegt að ófært sé til Seyðisfjarðar í meira en sólarhring í lok maímánaðar. Samkvæmt heimildum Austurgluggans lentu margir bændur í vandræðum við að koma búfé inn vegna fannfergis. Sauðburði var að mestu lokið og lentu því ýmsir bændur í vandræðum vegna plássleysis. Talið er að tekist hafi að bjarga öllu fé en bændur höfðu í nógu að snúast við að bjarga nýfæddum lömbum og kindum undan óveðrinu. Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson Halldór Walter Stefánsson, starfsmaður Náttúrustofu Austurlands, sagði hætt við að varp flestra smærri fugla hafi farið illa en meiri líkur séu á að stærri fuglar eins og gæsir og álftir hafi setið þetta af sér á hreiðrum á allra lægsta láglendi.  „Staðan versnar um hverja 100 metra sem ofar er farið í landið“ sagði Halldór.  Náttúrustofa Austurlands hvetur fólk til að vera ekki að hnýsast í hreiðrin eins og staðan er, þar sem egg og ungar í hreiðrum gætu misfarist fyrir vikið enda staðan mjög viðkvæm. Það var orðið tómlegt í Samkaupum á Seyðisf irði þegar Austurgluggann bar að garði. Öll mjólk hafði klárast og lítið var eftir af brauði. Stuttu eftir að vegurinn opnaði yfir Fjarðaheiði komu matarbirgðir þó í búðina. Norræna beið fyrir utan Seyðisfjörð á meðan verið var að moka veginn yfir Fjarðaheiði. Ekki var talið ráðlegt að hleypa fólki í land fyrr en heiðin væri orðin auð sökum þess hve margir voru á ökutækjum sem talið var fullvíst að hefðu lent í vandræðum. Talsvert þurfti að hafa fyrir því að gera veginn yfir Fjarðarheiði færa fyrir þá 600 ferðamenn sem komu með Norrænu, margir hverjir voru á farartækjum ekki búnum undir þessa óvæntu vetrarfærð. Sumir virtust kunna að meta tíðarfarið meira en aðrir. Fjölmargir lentu í vandræðum á Fagradal enda blindbylur þar á köflum. Fjöldi bíla sat þar fastur eða höfðu lent utanvegar.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.