Austurglugginn - 20.11.2003, Síða 13
Fimmtudagur 20. nóvember
AUSTUR • GLUGGINN
13
EFNIÐ y ANDINN
Sigurþór Sigurðsson er matgæðingur vikunnar.
JÍÍaTGÆÐINGUR
VIKUNNAR
Létt stádtarflœsabrínflur með rúsínusósu
Fyrir 4-6
2 stk. gæsabringur
2 msk. villíjurtablanda
Salt og pipar
olía til steikingar
Gott er ef þú ert ekki veiðimaður sjálf/sjálfur að láta það berast að þér þyki
gæsir góður matur. Þá er aldrei að vita nema frændi / frænka nú eða mágur
færi þér gæs. Brúnið gæsabringurnar f olíu á pönnu. Kryddað með salti, pipar
og villijurtablöndu. Setja á grind ( ofni og steikja við 100 gr.hita í 20 mínútur.
Kæla síðan og skera í sneiðar og bera fram með rúslnusósunni.
Meðlæti: Smábrauð eftir smekk og rauðvín með keim af berjum /ávöxtum.
‘Rúsínusósa
1 dl rúsfnur
1 msk ólífuolía
1 msk sykur
2 msk koníak
1 dl rjómi
1/2 tsk dijon sinnep
1 tsk sítrónusafi
1 msk sýrður Ijómi
Hita oliuna og steikja rúsfnurnar, stráið sykri yfir. Bætið í rjóma og koníaki
og sjóðið f 2-3 mínútur við vægan hita. Kælið og maukið í matvinnsluvél.
Bragðbætið með sinnepinu, sítrónusafanum, sýrða rjómanum, salti og pipar.
Ath þetta er lítið magn af sósu, en það þarf mjög Iftið því sósan er mjög sæt.
Gott er að setja smá karrý f sósuna.
Cjtírréttur
Fylltar pönnukökur með Mars súkkulaði, bönunum og Galaxy caramel sósu.
Pönnukökudeig 12-14 kökur
250 gr. Hveiti
3 msk sykur
salt á hnífsoddi
4 egg
1/2 I mjólk
smjör til steikingar
Blandið öllu hráefninu saman og látið deiðið standa í kæli i eina klukkustund,
Athugið ef til vill þarfa að þynna deigið svolítið
áður en pönnukökurnar eru bakaðar.
Jyffíng
3-4 bananar
2 Mars súkkulaðistykki
Smyrið eldfast mót með olíu. Skerið banana eftir endilöngu og síðan í tvennt.
Raðið þeim í eldfastamótið og dreifið söxuðu Mars súkklaði yfir. Setjið inn í
200gr.heitan ofninn þar til súkklaðið er orðið lint og bananirnir glansandi.
Sósa
3 Galaxy caramel súkkulaði
1/2 dl rjómi
Bræðið Galaxy caramel súkklaðið yfir heitu vatnsbaði hellið rjómanum út í og
þeytið vel saman. Ef sósan verður of þykkk má setja meiri rjóma saman við.
Bragðsterkt kaffi finnst mér passa með.
Verði ykkur að góðu.
Sigurþór skorar á Bibba eða Sigurð Frey Sigurðarson, kennara á
Egilsstöðum, að töfra fram gómsæta rétti. „ Vona þó sannarlega að
matreiðslan fái betri dóma en stærðfræðikennslan i fljölmiðlum
upp á síðkastið." segir Sigurþór.
haqyrðinqa
Heilir og sælir Austurgluggalesendur,
Vinur minn Vetur konugur
veifar og mundar korðann.
Hrollkaldur stálballarstinningur
steytir sig þá að norðan.
Kiddý mín kæra vina,
komin ertu í hóp
Kvenna með keppi lina
og kinnar sem skjálfa við hróp.
Andlitið krumpurnar krýna
krankur er magi og rass.
Hærur í hárinu skína
hugurinn er sem hlass.
Þó að veturinn sé okkur blíður ennþá ætla ég að
byrja á víu um hann.
Langa orðið í 3. Hnu heyrði ég eftir Fúsa á Brekku
í Mjóafirði og finnst það skemmtilegt.
Svo er ein eftir pabba minn og heitir bara Timbur-
menn.
I dag get ég hvorki drukkið né reykt
en dáið ég gæti úr hneysu
í nótt hef ég áunnu fjörðunum feykt
og finn ég í maganum kveisu.
Höfuðið er nú sem helþungur hnaus
í herðum er ónota svali.
Mér finnst að ég heyri eitthvert helvítis raus
þar held ég að samviskan tali.
Ein systra minna bað mig að gera afmælisvísu til
fertugrar vinkonu sinnar. Ég gat ekki gert alvarlega og
fallega vísu þennan dag en þetta fékk hún:
Hökurnar hrossast í vindi
handleggir dingla við hlið.
Fellingum flett upp í skyndi
ef fiktar við holdlegan sið.
En hertu upp hugann mín kæra
því heil og ung er þin sál.
Arin þér ánægju færa
áfram og þína skál!
Þetta má nota handa fleirum með því að breyta
nafninu. Gætið ykkar á myrkrinu og gangið á Guðs
vegum.
Halla Kolfinna.
FÖND URHORNIÐ
Jólakort
Sandy-kort.
Efni:
Kortapappír
Sandy-límpappír
Sandy-stensill
2 litir af Sandy-sandi
„Gleðileg jól“ límmiðar
Aðferð: Klippið límpappírinn í
sporöskjulaga hring og límið á
kortið. Takið filmuna af og setjið
stensilinn á. Hellið ljósa litnum á
límpappírinn og nuddið létt yfir,
hellið afgangnum af sandinum aft-
ur í dósina. Takið stensilinn af og
hellið dökkalitnum yfir limpappír-
inn og nuddið létt. Hellið afgangn-
um aftur í dósina. Límið „Gleðileg
jól“ límmiða á og kortið er tilbúið.
Pergament - Límmiðakort.
Efni:
Kortapappír
Pergament pappír
Gulllímmiðar
„Gleðileg jól“ límmiðar
Rauður pappír
Aðferð: Skerið glugga úr kort-
inu aðeins stærri heldur en lím-
miðinn sem nota á. Límið perga-
ment pappír í gluggann og setjið
límmiðann á pergament pappírinn.
Snúið kortinu við og farið með
embossing prjón inn í þá hluta af
myndinni sem þið viljið að verði
upphleyptir. Skerið ramma úr
rauða pappírnum sem passar utan
um gluggann og límið á. Setjið
línu með gulllímmiðun á
rammann. Skerið einnig bút úr
rauða pappírnum og límið neðan
við og setjið „gleðileg jól“ lím-
miða þar á.
Góða skemmtun.
Nánari upplýsingar og sýnis-
horn er hœgt að nálgast í Blóma-
bæ s. 471 2230. Þar feest einnig
allt efnið í kortin.