Austurglugginn


Austurglugginn - 22.01.2010, Side 2

Austurglugginn - 22.01.2010, Side 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 15. janúar Þrjú tilfelli garnaveiki voru um miðjan mánuð staðfest í ám á Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði. Þetta er í annað sinn sem garnaveikitilfelli kemur upp á Austurlandi skömmu eftir að bólu- setningu við garnaveiki er hætt, en hið sama gerðist í Jökulsárhlíð seint árið 2008 og hafði þá ekki verið garnaveiki á Héraði frá árinu 1945. Hætt var bólusetningu í Fáskrúðsfirði haustið 2005 og hafði þá ekki orðið vart við garnaveiki í fé á svæðinu í áratugi. Blóðprufur hafa verið teknar til að rannsaka hvort fleiri kindur kunna að vera sýktar af garnaveik- inni. Hákon Hansson, héraðsdýra- læknir á Breiðdalsvík, reiknar með að bólusetningar hefjist aftur á svæð- inu, líkt og gerðist í Jökulsárhlíðinni. ,,Ekki hafa verið staðfest fleiri tilfelli af garnaveiki á Gestsstöðum. Ekki er þó hægt að útiloka að fleiri tilfelli eigi eftir að koma í ljós, það verður kannað nánar á næstu dögum,“ segir Hákon. Garnaveiki lýsir sér með vanþrifum og skituköstum hjá fé. Hún er ekki hættu- leg mönnum, þó veiran sem veldur henni sé náskyld bakteríum sem valda berklum og holdsveiki í fólki. Krefjast þess að Reyðarfjarðarlína haldi Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs hefur nú krafist þess að Matvælastofnun afturkalli þegar þá ákvörðun að leggja sauðfjárveikivarna- línu þá sem kölluð er Reyðarfjarðarlína niður, meðal annars vegna staðfestrar garnaveiki í fyrrum Austfjarðahólfi, sem Fáskrúðsfjörður tilheyrir. Matvælastofnun auglýsti í október sl. að Héraðs- og Austfjarðahólf yrðu sameinuð í eitt Héraðshólf, sem ná skal frá austurbakka Jökulsár í Fljótsdal og Lagarfljóts og allt suður til Hamarsár. Í gær hélt Matvælastofnun fund með heimamönnum og héraðsdýralæknum á svæðinu á Reyðarfirði. Þar voru yfir- dýralæknir og sérgreinadýralæknir sauðfjársjúkdóma og á dagskrá var að meta hvernig bregðast ætti við þessum nýju garnaveikitilfellum og einnig hvort Reyðarfjarðarlína verði tekin upp að nýju. ,,Ég á von á því að línan verði endurvakin, a.m.k. mun ég leggja það til og vilji er til þess innan MAST. Auk þess á ég von á því að bólusetning verði hafin að nýju við garnaveiki, alla vega í Fáskrúðsfirði. Ég hef rætt við alla aðra sauðfjárbændur í Fáskrúðsfirði og þeir hafa ekki orðið varir við neitt grunsamlegt, sem gæti bent til þess að garnaveiki leyndist víðar. Ekkert er vitað um ástæður þess að veikin kom upp aftur á Gestsstöðum,“ sagði Hákon við Austurgluggann á miðvikudag. Smári Geirsson ætlar ekki að gefa kost á sér til setu í sveitarstjórn í Fjarðabyggð á nýju kjörtímabili. Enginn af núver- andi bæjarfulltrúum Fjarðalistans sæk- ist eftir endurkjöri í vor. Smári er bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð og var forseti bæjar- stjórnar þar, og í Neskaupstað fyrir sameiningu. Smári hefur setið 28 ár samfleytt í bæjarstjórn og hefur þann tíma allan tilheyrt meirihluta. Smári hóf pólitískan feril sinn í bæjarstjórn Neskaupstaðar 1982 og sat þá fyrir Alþýðubandalagið. Hann var forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar og síðar Fjarðabyggðar árin 1990 til 2002 og formaður bæjarráðs frá 2002. Smári var formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 1998-2003 og sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var formaður Alþýðubandalagsins í Neskaupstað 1977-8. Smári nam þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands, stjórnsýslufræði við Háskólann í Bergen og uppeldis- og kennslufræði við H.Í. Hann hefur starfað sem kenn- ari í Neskaupstað nokkuð sleitulaust frá árinu 1975, í gagnfræðaskólanum, Iðnskóla Austurlands, Nesskóla, við Framhaldsskólann í Neskaupstað, þar sem hann var skólameistari í þrjú ár og við Verkmenntaskóla Austurlands frá 1986, en þar var hann skólameist- ari í áratug. Smári hyggst nú hverfa frá kennslu og snúa sér að sagnfræðinámi í Noregi. Smári hefur auk stjórnmála- þátttöku og kennslu verið þekktur fyrir ritstörf sín og baráttu fyrir uppbygg- ingu atvinnulífs á Mið-Austurlandi. Forystan hvílir Enginn af núverandi bæjarfulltrúum Fjarðalistans sækist eftir endurkjöri í vor. Fjarðalistinn hefur undanfarin kjörtímabil myndað stærsta fram- boðið og var stofnaður 1998 við sam- einingu þriggja sveitarfélaga á Mið- austurlandi. Smári Geirsson hefur þegar lýst því yfir að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri. Hinir bæj- arfulltrúarnir þrír eru þau Díana Mjöll Sveinsdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Sigrún Birna Björnsdóttir. Þau þvertaka ekki þó fyrir frekari afskipti af stjórnmálum í framtíðinni. Búið er að senda dreifibréf til íbúa á Norðfirði og óska eftir tilnefningum á framboðslista Fjarðalistans. ,,Það er ljóst að það verða miklar breyt- ingar hjá Fjarðalistanum,“ segir Smári Geirsson. ,,Nú er verið að fara yfir hverjir taka við og gefst almenningi kostur á að koma með ábendingar. Þegar hafa borist ábendingar sem eru afgerandi.“ Áfram bólusett í Fáskrúðsfirði og hætt við sameiningu Héraðs- og Austfjarðahólfs? Garnaveiki blossar upp eftir áratugi Smári Geirsson hættir eftir langt og farsælt starf í sveitarstjórnarmálum. Mynd/SÁ Smári Geirsson hverfur úr sveitarstjórnarmálum með vori Forysta Fjarðalistans fer út í heilu lagi Valdimar O. Hermannsson Valdimar O. Hermanns- son, bæjarfulltrúi og odd- viti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Fjarða- byggðar, gefur kost á sér í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. ,,Með framboði mínu vil ég nýta þá fjölbreyttu reynslu og þekkingu sem við höfum aflað okkur á vett- vangi sveitarstjórnarmála, og ná enn betri árangri í komandi sveit- arstjórnarkosningum, með öfl- ugum framboðslista, þannig að Sjálfstæðisflokkurinn verði ráðandi afl í bæjarstjórn Fjarðabyggðar á næsta kjörtímabili.” Valdimar er fæddur 1960 og starfar sem innkaupa- og rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA, er í staðfestri sambúð með Vilborgu Elvu Jónsdóttir, hjúkr- unarfræðingi og eiga þau samtals 4 börn. Valdimar hefur á núverandi kjör- tímabili, sem bæjarfulltrúi, verið aðalmaður allt kjörtímabilið í bæj- arráði Fjarðabyggðar, formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands, HAUST, og einnig starfað sem stjórnarformaður í Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, SHÍ. Þá hefur hann gegnt trúnað- arstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, m.a. í Skipulags- og sveitarstjórn- arráði, auk annara. Á síðasta aðalfundi Samtaka sveit- arfélaga á Austurlandi, SSA, var Valdimar kjörinn í stjórn og fram- kvæmdaráð SSA. Valdimar hefur áratugareynslu af félagsmálum, stjórnun og rekstri. Jens Garðar Helgason Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Fiski- miða ehf. og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð við sveitarstjórnar- kosningarnar nú í vor. Jens Garðar hefur setið í bæjarstjórn Fjarðabyggðar síðan 2006 og er varafulltrúi í bæjarráði. Hann situr í Mannvirkjanefnd Fjarðabyggðar. Hann hefur ennfremur gegnt for- mennsku í Sjómannadagsráði Fjarðabyggðar síðastliðin ár. Jens Garðar hefur í gegnum tíðina gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var í sjávarútvegsnefnd flokksins, sat í stjórn SUS fyrir Austurland í ríflega áratug, sat í stjórn FUS Varðar á Akureyri og var formaður um tíma og sat einnig í stjórn full- trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri. Jens Garðar var enn- fremur formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð frá 2004 til 2006 og á sæti í flokks- ráði Sjálfstæðisflokksins. Jens Garðar er 33 ára gamall, fæddur og uppalinn á Eskifirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MA og stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Jens Garðar hefur síðan árið 2000 rekið útflutningsfyrirtækið Fiskimið ehf. á Eskifirði sem flytur út fiskimjöl og lýsi. Jens Garðar á þrjú börn, þau Heklu Björk 12 ára, Thor 6 ára og Vögg 4 ára. Baldur og Þráinn út Tveir bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði, þeir Baldur Pálsson, varaformaður bæjastjórnar og fulltrúi Héraðslista og Þráinn Lárusson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, gefa ekki kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Baldur segir hugsanlega koma til greina að taka sæti neðarlega á lista en eins víst sé að hann verði ekki með. Þráinn hefur sagst vilja út úr sveitarstjórnarmálum fyrir fullt og fast. Framboð vegna sveit- arstjórnarkosninga

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.