Austurglugginn


Austurglugginn - 22.01.2010, Blaðsíða 4

Austurglugginn - 22.01.2010, Blaðsíða 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 15. janúar ÞORRABLÓT ERU ÓMISSANDI MENNINGARAUKI Fræg er sagan af konunni á fínu þorrablóti sem hóf mikilfengleg pils sín á loft við salarvegg og pissaði hálfstandandi í blómaker. Önnur reyndi að skýla henni meðan á pisseríinu stóð, en missti við það tvær gervineglur og leiddist það mjög. Að svo búnu vöfruðu þær áfram um salinn og skemmtu sér vel. Skondin er líka sagan af bankaútibússtjóranum sem stóð við þriðja mann á blóti og ræddi heims- málin. Kom þar ung kona aðvífandi með glas í hönd og vindling og sagði þá útibússtjórinn yfirlætislega að bragði ,,jah, finnst þér virkilega að þú hafir efni á að reykja?“ Einn gubbaði úti í horni, annar dó áfengisdauða við hljómsveit- arpallinn, gamall maður handleggsbrotnaði, ungir menn brutust inn í hús þar sem húsráðendur voru á blóti og stálu góðum bókum, aðallega þó Shakespeare. Flestir skemmtu sér samt vel og komust óskaddaðir heim að þorrablótum loknum. Það er að segja þeir sem þurftu ekki að bíða í bifreiðum sínum eða skammtímavistarverum úti til sveita eftir að storminn lægði. Þorrablótin eru tilhlökkunarefni. Sérstaklega hinn ómissandi annáll, spegill af viðburðum liðins árs og fá menn þar gjarnan til tevatnsins, og nokkru meira. Sumir gesta hafa aldrei komið aftur eftir að fá á sig kárínu af sviðinu. Sumir koma ekki aftur ef þeir fá ekki á sig kárínu af sviðinu. Þetta er svo misjafnt. Og ástir kvikna og aðrar ástir brotlenda. Alveg er ljóst hvað menn eta á þorrablóti, súran mat og hanginn, reyktan og kæstan. Það er þó aðdáunarvert að til að enginn fari svangur af blóti, jafnvel ekki þeir sem andstyggð hafa á þorramat og telja hann úldinn og óætan, bera menn nú fram þorrapizzur, kannski með kjúklingaáleggi og hugsanlega ofurlitlu súru rengi í köntunum. Og allir fara því mettir frá borði. Enda veitir ekki af, einkum ekki ef menn teyga drjúgt af pyttlum sínum og vasapelum. Því það er auðvitað orðið allt of dýrt að versla á barnum endalaust. Undirbúningur þorrablóta er síðan ekki veigaminna mál en sjálf blótin. Þrotlausar æfingar skemmtiatriða standa yfir svo vikum og mánuðum skiptir, menn sjást ekki heima hjá sér nema endrum og sinnum á þeim tíma og varla í vinnunni heldur. Sviðsvinna, búningasaumur og textagerð er stórfellt verkefni og heilt ævintýri mun það vera þegar venjulegur jón úti í bæ umbreytist í einni svipan í knáan textasmið eða brestur í undurfagran söng öllum að óvörum. Og slík vin- áttubönd myndast í þorrablótsnefndum að þau fær ekkert brotið. Í heimahúsum er undirbúningur vart minni. Enn mun það svo að kona getur ekki verið þekkt fyrir að láta sjá sig í sama kjólnum tvö þorrablót í röð. Helst á kjóllinn að vera sérsaumaður, með framandlegu og nýstárlegu útliti og skarti í stíl. Og tösku þarf og skó sem passa þar við. Þetta hefur verið teygt svo langt að nú heyrist af konum sem hafa einsett sér að mæta hreinlega í lopapeysu, föð- urlandi og gúmmískóm. Aftur til upprunans. Hárgreiðslustofur á Austurlandi eru fullar út úr dyrum, sömuleiðis meikupp-skonsur, naglaálímingarherbergi og hárlosunarklefar. Snyrtivörufyrirtæki úr höfuðstaðnum bjóða upp á kynningar í lyfjaverslunum bæja á þorrablótsdag og ilmvatnsúðaðar, glimmermálaðar og lokkaprúðar konur svífa um bæinn fyrripart þorrablótsdags. Heldur minna fer fyrir körlunum. Þeir sjást mest í áfengisbúðum á sama tíma og hugsanlega við skyrturekka verslana. Þorrablót eru góður siður og skemmtilegur, þar borða menn fallega, hlýða á uppbyggileg skemmtiatriði og hefja upp raust sína, hitta nýtt fólk og endur- nýja gömul kynni. Við skulum hlú að þessari venju og mæta, öll sem vettlingi getum valdið. Steinunn Ásmundsdóttir. Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Steinunn Ásmundsdóttir frett@austurglugginn.is Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Erla Sigrún Einarsdóttir Fréttasími: 477 1750 frett@austurglugginn.is • www.austurglugginn.is Auglýsinga- og áskriftasími: 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 854 9482 - kompan@vortex.is Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot og prentun: Héraðsprent. Bóndadagur er í dag og markar hann upphaf austfirskrar þorrablótsvertíðar sem stendur fram í febrúarlok. Þorri er fjórði mánuður ársins í gamla norræna tímatalinu. Þorri hefst í þrettándu viku vetrar (18.-24. janúar) miðað við greg- oríanska tímatalið og alltaf á föstu- degi. Fyrsti dagur þorra er nefndur bóndadagur en þann dag var sú hefð að bóndinn hoppaði í kringum bæinn á nærhaldinu einu fata. Einnig var hefð að húsmóðirin færi út kvöldið áður og byði þorranum inn í bæ. Hér eru þau þorrablót austfirsk nefnd til sögunnar sem vitað er um: 22. JANÚAR: Þorrablót á Egilsstöðum og Reyðarfirði, bæði haldin í íþrótta- húsum bæjanna. 23. JANÚAR: Þorrablót Vopnfirðinga í Miklagarði, þorrablót Seyðfirðinga haldið í íþróttamiðstöð, þorrablót Borgfirðinga í Fjarðaborg, þorrablót Eskifirðinga í Valhöll og sveitablót á Norðfirði. 30. JANÚAR: Þorrablót Fellamanna í íþróttahúsi, þorrablót Fljótsdælinga í Végarði, þorrablót Djúpavogs á Hótel Framtíð og kommablót í Egilsbúð í Neskaupstað. 6. FEBRÚAR: Þorrablót Vallamanna á Iðavöllum og þorrablót Eiða- og Hjaltastaðarþinghármanna á Eiðum. 13. FEBRÚAR: Þorrablót Skriðdæla á Arnhólsstöðum, ef leyfi fæst. 27. FEBRÚAR: Þorrablót Hlíðarmanna og Jökuldælinga í Brúarási. Góugleði haldin í febrúarlok í Mjóafirði. Dansreglur fyrir herra á þorrablóti Hvers ber að gæta í vali á dansmey: Gættu þess jafnan, að mær sú sje 1. vel gefin til fótanna, svo ekki þurfi að óttast, að hún taki víxlspor í stað þess að hafa hreinan gang. Er því jafnan vissast, að krefjast þess um leið og þú býður henni, að hún sanni kunnáttu sína með dans- prófsskýrteini. Hafðu jafnan í huga, að stúlkan 2. sje ekki digrari nje þyngri í vöfum en svo, að þú sjert einfær um að snúa henni, og láti svo vel að stjórn, að kúvenda megi henni, ef þörf krefur. Gæt varúðar við því, að ekki sje hún 3. svo neflöng, að ásjóna hennar bíði tjón við, ef þið rekist óvart saman, þegar harðast gengur. Ekki er þýðingarlaust að ganga úr 4. skugga um, áður, hvort stúlkan er til lýta innskeif, því reynist hún svo, máttu ganga að því sem gefnu, að hún viti ei fótum sínum forráð, og annaðhvort skelli þjer óviljandi á svo kölluðu ,,músarbragði“ eða merji að öðrum kosti sundur á þjer líkþornin, sem er litlu betra. Það sem athuga ber, meðal ann-5. ars, er að öllu sje vel tylt utan um hana, áður en af stað er lagt, því við þekkjum það af reynslunni, að hverskonar bilanir valda jafnan truflunum, hvort heldur á sjó eða landi. Um aldur meyjar þeirrar, er þú 6. býður, skalt þú jafnan fá sem glegsta vissu - hafi hún ekki fæðingarvott- orð sitt við hendina, ræð jeg þjer til að líta upp í hana, ef þú þekkir aldur af tönnum einum saman. Veldu dansmeyna á hæð við sjálfan 7. þig, því jafnan er óviðfeldið að sjá lítinn mann, sem ekki nær dömunni hærra en í mjöðm, verða að ríghalda sjer um annað læri hennar eða hnje; - og jafnógeðslegt er að sjá langan mann, samanbrotinn, grúfandi yfir stúlku, sem er fimm sinnum styttri en hann sjálfur. Skyldur þínar gagnvart dömunni: Sækja skaltu dömu þá, er þú býður, 1. heim til hennar, og sje kloffönn skaltu bera hana á bakinu eða háhest á dansstaðinn, svo ei fari snjór ofan í skóna hennar. Í danssalnum finnur þú henni hið 2. mýksta sæti; - sje það ekki að fá, situr þú undir henni, heldur en að eiga það á hættu, að í hana hlaupi harðsperra af hörðum bekkjunum. Dansa skaltu jafnan frekar á 3. dansgólfinu en tám dansmeyjar þinnar. Hætta skal hverjum dansi áður 4. en tungan fer að lafa út úr píu- barninu eða froða fer að brjótast út um vitin. Jafnan ber þjer að vera vel rakaður, 5. einkum ef þú tíðkar vangadans, svo þú skrapir ei farðann af vöngum dansmeyjar þinnar. Sje stúlka sú, er þú hefir boðið, ekki 6. brunavátrygð, skaltu fara varlega með óbirgt ljós - logandi vindla eða cigarettur - í kring um hana, því kvenfólk er eldfimara en bensín. Mundu að vatna dömunni, það er 7. að segja, að bjóða henni svaladrykk við og við. Sje dansmærin feimin við þig, ber 8. að líta svo á, að þú eigir að fikta meira við hana. Ósvinna er að bjóða dömu sinni 9. Skraatuggu eða í nefið. Sje mærin stirð í dansi, er gott 10. að núa öll liðamót hennar með andanefjulýsi. Þegar dans er úti, fylgir þú dömunni 11. heim, lætur athuga hana, hvort hún hafi lagt af eða skemst í dansinum, og kostar hana í Slippinn ef svo er. - Þessu næst kveður þú döm- una, og ættingja hennar, og þakkar fyrir lánið. Ritað af Örnúlfi í Vík og birt í bókinni Skvettu, gamankvæði og fleira, 1. hefti, Reykjavík 1930. (Stafsetningu höfundar er til haga haldið). Þorri genginn í garð

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.