Austurglugginn


Austurglugginn - 22.01.2010, Side 8

Austurglugginn - 22.01.2010, Side 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 15. janúar Dynskógar 4, Egilsstöðum sími 471 1331 Opnum mán. mið. fim. og fös. kl. 9, þriðjud. kl. 12 HÁR & SNYRTING Dynskógum 4 jarðhæð · Egilsstöðum S. 471 3117 Opið virka daga 9:00 - 17:00 Opið virka daga 9:00 - 17:00 Einbúablá 29 · Egilsstöðum sími 471 2980 Opið 9-16 alla virka daga Smiðjusel 5 · Fellabæ 700 Egilsstaðir· s: 471 1696 BIFREIÐAÞJÓNUSTA Toyota Austurlandi Bílaverkstæði Austurlands Bílaverkstæði/bílasala Opið mán.-fim. Kl. 8-18 - Fös kl. 8-17 Sími 470 5070 Réttingar og sprautun Framrúðuskipti Bílaleiga. Opið virka daga kl. 8-18 TILKYNNINGAR Opið mánud.-föstud. kl. 8-12 og 13-18 Lyngás 5 · 700 Egilsstaðir · sími 471 3113 Óska eftir notuðum og vel með förnum Carving-skíðum, 150-155 cm löngum, með eða án bindinga. Upplýsingar í síma 867-2151. Tilefni þessa bréfs er meðal annars að svara að hluta fullyrðingum í grein sem birt var í Fréttablaðinu þann 22. desember síðastliðinn þar sem ábú- andi að Stórhóli í Álftafirði, Stefanía Lárusdóttir sem dæmd var fyrir illa meðferð á skepnum fyrir skömmu, leyfir sér að halda því blákalt fram að það hafi aldrei verið svelt skepna að Stórhól. Í öllu falli verður heldur ekki látið hjá líða í framhaldi að velta fyrir sér stöðu dýraverndar í landinu þegar kemur að búfjárhaldi. Skrif þessi eru sannarlega ekki sett fram af óvild í garð ábúenda að Stórhóli, heldur miklu fremur af umhyggju fyrir þeim dýrum sem hafa mátt þola ömurlegan aðbúnað á bænum eins og almenningur hefur m.a. mátt sjá í fjölmiðlum vegna þess málareksturs sem hefur verið í gangi gegn ábúendum. Undirrituð sem býr í næsta nágrenni við Stórhól og þekkir því allar aðstæður vel, getur samvisku sinnar ekki lengur orða bundist í ljósi stað- reynda. Oft hefur undirrituð á dag- legum ferðum sínum sem skóla- bílstjóri séð margt illa haldið fé við túnfótinn á Stórhól og hefur svo háttað til á Stórhól um langt árabil. Á síðastliðnu vori keyrði hinsvegar um þverbak í búfjárhaldi að bænum sem leiddi síðar til ákæru af hálfu Matvælastofnunnar og síðar saksókn- ara sýslumannsembættisins á Eskifirði. Á síðastliðnu vori mátti sjá sérstak- lega illa útlítandi fé allt í kringum bæinn og sömuleiðis við þjóðveginn og það fé var í stórum stíl grindhorað með slæma sótt og litlu lömbin stóðu undantekningalaust í keng af sulti. Ábúandi leyfir sér engu að síður að halda því fram eins og áður segir að aldrei hafi verið svelt skepna á Stórhól og heldur því sömuleiðis að jöfnu fram að ástæðan fyrir slæmu útliti fjárins sé lungnaveiki, en lungnaveiki er hins vegar einmitt einn af fylgi- kvillum slæmrar meðferðar. Jaxlaveiki hefur sömuleiðis verið borið við til að breiða yfir sannleikann í málinu, þ.e. vanfóðrunina og almennt ömurlegan aðbúnað fjárins. Undirrituð, sem er fyrrverandi bóndi í Álftafirði, tel mig eftir búskap um langt árabil vita nokkuð vel hvernig ber að fóðra sauðfé og hirða á annan hátt. Mér hefur því sannarlega sviðið mjög að sjá slíka umhirðu og meðferð á sauðkindinni hér í nærumhverfinu. Aðrir bændur á svæðinu hafa augljós- lega sömuleiðis liðið mikið fyrir mál þetta um árabil og það má öllum ljóst vera að þessir búskaparhættir eru ein- hver sú versta auglýsing fyrir okkar annars góðu sveit og bændastétt- ina heild sem hægt er að hugsa sér. Í ljósi þeirrar áralöngu baráttu við að koma böndum á þennan búskap að Stórhól, meðal annars með ýmsum aðgerðum af hálfu sveitarfélagsins Djúpavogshrepps, spyr maður sig hvar dýraverndunarsamtökin í land- inu séu, af hverju hafa þau sig ekki frammi í málum sem þessum og til hvers er sá félagsskapur? Og hvar eru hagsmunasamtök bænda sem ættu sannarlega að beita sér af afli og ganga fram fyrir skjöldu til að hreinsa atvinnugreinina af þessum ósóma? Ímynd bændastéttarinnar er í húfi og forsvarsmenn hennar verða að mínu mati að kalla eftir því að úrræði séu til staðar sem hægt er að grípa til og beita með mjög skjótvirkum hætti svo hægt sé undanbragðalaust að útrýma slíkri meðferð á dýrum. Spyrja má líka hvernig ráðunautar bænda geta horft endurtekið upp á slíka meðferð á dýrum sem hér um ræðir, ár eftir ár án þess að því sé fylgt úr hlaði með úrræðum sem skila árangri? Í þessu falli má sannarlega líka spyrja hvort það sé engin ástæða til að krefjast þess af fulltrúum kjöt- framleiðslu í landinu að þeir kanni uppruna vörunnar, er kjötframleið- endum kannski slétt sama við hvern þeir eiga í viðskiptum og eða hvernig meðferð dýrin hafa fengið? Fyrir skemmstu var sýnd í ríkissjónvarp- inu mynd um gæsadúnsframleiðslu sem vakti mjög hörð viðbrögð og þá gripu líka Íslendingar eins og aðrir andann á lofti í hneykslun sinni og hringdu umsvifalaust í þá sem flytja inn dúnsængur af ótta við að dúnn- inn í sænginni þeirra væri af fuglum sem hefðu fengið slæma meðferð. Ber í þessu samhengi að líta svo á að Íslendingum sé þá alveg sama um uppruna þeirrar vöru sem kemur af innlendum markaði? Er íslenskum neytendum sama hvernig hefur verið farið með vöruna sem liggur í kjöt- borðinu? Ég held reyndar ekki. Er ekki tími til komin að Íslendingar verði þá pínulítið samkvæmir sjálfum sér og horfi í eigin barm í þessum málum og taki ærlega til á heima- vígstöðvunum áður en við hneyksl- umst á slæmri meðferð dýra í öðrum löndum? Er það ekki líka bara sjálf- sagt réttlætismál að það séu gerðar sambærilegar kröfur varðandi gæða- mál í grunnatvinnuvegunum okkar, það er að segja í landbúnaði og kjöt- vinnslu annars vegar og í sjávarútvegi og fiskvinnslu hins vegar? Staðreyndin er sú að þrátt fyrir að dómur hafi nú verið kveðinn upp í Stórhólsmáli, þar sem sýnt var fram á að mjög alvarleg brot á meðferð dýra höfðu verið framin á bænum, var niðurstaðan einungis 80 þúsund krónur í sekt og ekki voru ábúendur dæmdir frá búskap þrátt fyrir sakarefnið, heldur fá viðkom- andi ábúendur á hinn veginn að halda áfram með óbreyttu sniði og með sama fjárfjölda sem er langt yfir þús- und fjár og því stendur allt við það sama á bænum og áður var. Ég sem útsvarsgreiðandi í hinu ágæta sveitarfélagi Djúpavogshreppi er sömuleiðis mjög ósátt við að sveit- arfélagið skuli þurfa að eyða jafn miklum tíma og fjármunum í að slást við vindmyllur í þessu búfjárhalds- máli að Stórhól eins og raunin hefur verið, þeim fjármunum væri betur varið í annað að mínu mati en í þetta rugl. Það er hins vegar búið að vega mjög ómaklega að þeim sveitarstjórn- armönnum sem hafa sannarlega lagt sig fram um að reyna koma málum í lag að Stórhól. Það verður auðvitað ekkert fram hjá því litið að sveit- arstjórnir hafa miklum skyldum að gegna í þessum málum og er skylt samkvæmt lögum að bregðast við sé eftir því kallað og því eiga sveit- arstjórnarmenn engan annan kost en að vinna undir því handónýta kerfi og þeim landslögum sem við búum við í dag í þessum efnum, þar sem dýravernd virðist með öllu fyrir borð borinn. Það er því einlæg ósk mín að stjórn- völd í þessu landi, hagsmunasamtök bænda og aðrir þeir sem bera ábyrgð á því kerfi sem við búum við í dag, taki nú í eitt skipti fyrir öll af skarið og breyti þessu ömurlega kerfi sem við búum við, þannig að sveitar- félög hafi ekki bara skyldurnar einar í þessum efnum, heldur einnig sann- arleg úrræði í höndunum til að beita gegn fámennum hópi fólks í sveitum landsins sem hefur dýraverndarsjón- armið að engu. Höfundur er ábúandi í Djúpavogshreppi Bréf til blaðsins Um illa meðferð á búfé Stefanía Björg Hannesdóttir skrifar: ,,Er ekki tími til komin að Íslendingar verði þá pínulítið samkvæmir sjálfum sér og horfi í eigin barm í þessum málum og taki ærlega til á heima- vígstöðunum áður en við hneykslumst á slæmri meðferð dýra í öðrum löndum?“

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.