Austurglugginn


Austurglugginn - 22.01.2010, Page 9

Austurglugginn - 22.01.2010, Page 9
 Föstudagur 15. janúar AUSTUR · GLUGGINN 9 Útgefandi: Landsvirkjun. Ábyrgðar- maður: Agnar Ólsen. Höfundur texta og umsjón með útgáfu: Atli Rúnar Halldórsson. Hönnun og umbrot: Athygli ehf. Reykjavík, okt. 2009. (138 bls.) Í haust fengu öll heimili á Héraði, í Fjarðabyggð, og líklega víðar, rit með ofangreindum titli í póst- kassa sína. Þetta er eins konar ,,hvítbók“ Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun, stærstu og umdeildustu framkvæmd Íslandssögunnar, unnin í tilefni af formlegum verklokum 2. okt. 2009. Ritið skiptist í um 80 stutta kafla, byggða á viðtölum við þá sem á einn eða annan hátt komu að þess- ari miklu framkvæmd, með fjölda ljósmynda og skýringarmynda, og er í alla staði fróðlegt og læsilegt. Áhersla er lögð á að kynna hvernig framkvæmdin gekk fyrir sig og ein- stakir verkþættir hennar. Aðstæður voru á margan hátt erfiðar, vegna staðhátta, veðráttu, jarðgrunns o.fl. Jarðfræðingar, verkfræðingar og verktakar urðu iðulega að fást við óvæntar uppákomur, sem settu strik í reikninginn, og þurfti bæði hugvit, dirfsku og lipurð til að leysa. Ýmsir benda á að Kárahnjúkavirkjun hafi verið verkfræðilegt afrek, og sérlega lærdómsríkt fyrir þá sem að henni unnu, og að reynslan sem þar fékkst muni notast við byggingar vatns- virkjana á heimsvísu, enda var vel með henni fylgst af þeim sem eru í þessum bransa. Ítalska verktaka- fyrirtækið Impregilo, sem annað- ist meginhluta framkvæmdanna: Kárahnjúkastíflu og aðfallsgöng, þykir hafa staðið sig vel og betur en margir ætluðu í byrjun. Stíflan mikla hefur staðið undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar og jafnvel staðist prófanir betur en áætlað var. Því til staðfestingar er þess getið að hún hafi fengið verðlaun á alþjóð- legri ráðstefnu í Kína sl. haust, ásamt fjórum öðrum sömu gerðar. Fjölmennt lið verkamanna af ýmsum þjóðernum vann við framkvæmd- ina og verður að teljast merkilegt hversu vel gekk að samhæfa það, þótt vissulega yrðu mörg vinnuslys, þar á meðal fimm dauðaslys í tengslum við verkefnið. Forstjóri Landsvirkjunar, Friðrik Sophusson, og upplýsingafulltrúi Kára- hnjúkavirkjunar, Sigurður Arnalds, draga ekki dul á það að barátta verndar- sinna gegn framkvæmd- unum hafi valdið þeim leiðindum og aukið á þá tæknilegu erfiðleika sem við var að glíma, og ýmsir sem lögðu sig alla fram við að vinna sín verk og gera skyldu sína hafi goldið þess ómaklega. Ekki fer mikið fyrir þætti náttúruverndar í þessu upplýsingariti Landsvirkjunar. Til að sýna lit á því, eru þó birt viðtöl við tvo af hörð- ustu andstæðingum framkvæmdanna á Héraði, þá Guðmund Ármannsson á Vaði og Örn Þorleifsson í Húsey, en hóf- samari verndarsinnar voru ekki hafðir með, t.d. er hvergi minnst á afskipti Náttúruverndarsamtaka Austurlands. Upphaflegar áætlanir Landsvirkjunar um að þaulnýta hverja ársprænu á NA-hálendinu, sökkva Eyjabökkum í jökullón og spilla Desjarárdal með yfirfallsvatni liggja líka í þagnargildi. Hin víðtæku umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar, t.d. á vatnakerfi Lagarfljóts og Jöklu, eru aðeins að litlum hluta komin fram. Þó öldur misklíðar vegna Kárahnjúkavirkjunar hafi nú lægt, á hún eflaust eftir að verða umdeild um langa framtíð, og síðari tíma fræðimenn munu skrifa um hana þykkar bækur. Höfundur er náttúrufræðingur. Tímamót urðu í sögu Starfsendur- hæfingar Austurlands (StarfA) fyrir síðustu jól, en þá útskrifuðust fyrstu nemendurnir úr endurhæfingunni. Alls lauk 21 nemandi starfsendur- hæfingu, tólf í Fjarðabyggð og níu á Fljótsdalshéraði. Flestir stefna á frekara nám. Útskriftir StarfA þann 17. og 18. desember sl. mörkuðu tímamót í sögu StarfA sem hóf starfsemi sína í byrjun nóvember árið 2007. Þá var Erla Jónsdóttir ráðin fram- kvæmdastjóri og var auk þess eini starfsmaður StarfA. Myndaðir voru hópar á Fljótsdalshéraði, skömmu síðar í Fjarðabyggð og loks var myndaður hópur á Hornafirði fyrri- hluta síðasta árs. Alls byrjuðu þrjá- tíu og átta í starfsendurhæfingu á Mið-Austurlandi snemma árs 2008 og núna, tveimur árum síðar, hafa tuttugu og þrír þátttakendur lokið endurhæfingunni en tveir voru út- skrifaðir síðastliðið vor. Útskriftarnemar StarfA hafa marga fjöruna sopið á undanförnum mán- uðum en endurhæfingin hefur m.a. verið fólgin í námi á framhaldsskóla- stigi, líkamsrækt, andlegri uppbygg- ingu og verklegri þjálfun, auk þess sem boðið hefur verið upp á fræðslu- erindi af ýmsum toga. Í ávarpi sem Erla flutti á útskriftinni ræddi hún um mikilvægi þess að iðka stöðuga endurskoðun á starfseminni svo bæta megi hana og þróa. „Á þessum fyrstu skrefum okkar í StarfA hafa oft verið hugleiðingar uppi um hvort við værum á réttri leið og hef ég sjálf stundum efast um réttmæti þess að vera með bóklegt nám á framhaldsskólastigi, þar sem margir þeirra sem að til okkar hafa komið eiga sögu um erfiðleika í námi frá fyrri tíð. Undanfarna daga hef ég hins vegar sannfærst um mikilvægi þess að gefa þessu sama fólki tæki- færi til að takast á við nám við nýjar og breyttar aðstæður, að þau upplifi að þau geti lært. Það er ógleyman- leg lífsreynsla að sjá hve margir hafa fengið áhuga á að mennta sig áfram. Það er stærsti sigurinn að mínu mati því mennt er máttur,“ sagði Erla, en verulegur hluti þeirra sem útskrifuð- ust vikuna fyrir jól hafa hug á áfram- haldandi námi. Tveir nemendur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í endurhæf- ingunni. Þetta voru þau Borghildur Jóna Árnadóttir í Fjarðabyggð og Hrafnkell Ásmundsson, búsettur á Fljótsdalshéraði, en bæði nýttu þau til fullnustu alla þætti endurhæfing- arinnar með frábærum árangri. Á heimasíðu StarfA, www.starfa.is, má sjá myndskeið frá útskriftinni m.a. útskriftarræður Hrafnkels og Árna Þorsteinssonar frá Norðfirði. Höfundur starfar hjá Starfsendurhæfingu Austurlands. Bréf til blaðsins Orkubrunnur á Austurlandi Svipmyndir úr sögu Kárahnjúkavirkjunar Helgi Hallgrímsson skrifar: Bréf til blaðsins StarfA útskrifar í fyrsta skipti Jón Knútur Ásmundsson skrifar: ,,Ekki fer mikið fyrir þætti náttúruverndar í þessu upplýsingariti Landsvirkjunar.“ ,,Það er ógleymanleg lífsreynsla að sjá hve margir hafa fengið áhuga á að mennta sig áfram.“

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.