Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Side 6

Austurglugginn - 24.09.2010, Side 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 24. september Heilbrigðisnefnd Austurlands fundaði þann 17. september sl. Á fundinum var fjallað um verkaskipt- ingu Umhverfisstofnunar (UST) og Heilbrigðiseftirlits Austurlands (HAUST) og stöðu samningavið- ræðna varðandi endurskoðun samn- inga sem UST hefur sagt upp. Málefnið hefur verið baráttumál sveitarfélaganna á Austurlandi lengi og snýr að því að ”Heilbrigðiseftirlit Austurlands fari með eftirlit með starfsemi á Austurlandi sem Umhverf isstofnun vinnur starfs- leyfi fyrir” eins og segir í samþykkt Allsherjarnefndar SSA á aðalfundi 2009. Árið 2008 tilkynnti UST að samn- ingar milli UST og HAUST, um að HAUST fari með eftirlit með sorp- förgun og spilliefnamóttöku sem og með fiskimjölsverksmiðjum, skyldu endurskoðaðir á árinu 2009. Þeirri endurskoðun lauk ekki árið 2009 og endurskoðuninni er enn ekki lokið. Á aðalfundi SSA árið 2009 segir í samþykkt allsherjarnefndar að það „sætir furðu að ríkisstofnun skuli árum saman hundsa vel rökstuddar óskir þar um þrátt fyrir að fyrir liggi stuðningur alþingismanna Norðausturkjördæmis og viljayfirlýsing umhverfisráðuneyt- isins, svo og stefna ríkisstjórnar Íslands um tilflutning verkefna út á land.“ Í desember 2009 sagði UST bréflega upp gildandi samningum við HAUST um framsal eftirlitsverkefna og til- kynnti að stofnunin áformaði að gera nýja samninga við þær heilbrigðis- nefndir sem þess óski. HAUST ósk- aði eftir nýjum samningum með bréfi dagsettu 11. janúar 2010. Í bréfi sem Umhverfisráðuneytið sendi UST dagsettu 7. júlí 2010 er enn- fremur tilkynnt að með lagabreyt- ingu sé áformað að styrkja lagagrunn þannig að heimilt verði að framselja þvingunarúrræði auk eftirlitverkefna. HAUST og fleiri heilbrigðiseftirlits- svæði hafa eindregið óskað eftir að fá framseld þvingunarúrræði ásamt með eftirlitsverkefnum skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, en UST hefur ekki ljáð máls á því. HAUST segir stöðuna í dag vera þessa: Samningum um eftirlitsverkefni hefur verið sagt upp. Verði þeir ekki endur- skoðaðir falla þeir úr gildi 1. janúar 2011. Ekki er búið að ganga frá ramma- samningi og þau drög sem fyrir liggja eru óaðlaðandi fyrir HAUST. Ef ekki næst samningur um að áfram verði farið með eftirlitsverkefni skv. gildandi samningum verður HAUST af tekjum að upphæð 1,2 millj. kr. HAUST samþykkti svo eftirfarandi harðorða bókun á fundinum þar sem þau átelja vinnubrögð UST: Heilbrigðisnefnd átelur vinnubrögð UST harðlega, ekki síst hvað varðar tregðu og seinagang við endur- skoðun gildandi samninga en einnig vegna tregðu til að fara að yfirlýstum vilja ráðamanna þjóðarinnar og Umhverfisráðuneytis í þá veruna að eftirlit og þvingunarúrræði skuli færa til heilbrigðisnefnda þar sem vilji og fagþekking eru til staðar. Með samningum frá árunum 1994 og 1998 hefur HAUST farið með eftirlit f.h. stofnunarinnar með fiski- mjölsverksmiðjum og sorpförgunar- stöðum. Aldrei hefur stofnunin séð ástæðu til að gera aths. við verklag og skýrslur HAUST. Miklu frekar telur HAUST hafa sýnt og sannað að því er vel treystandi fyrir eftirlitsverkefnum og einnig beitingu þvingunarúrræða ef slíkt gerist nauðsynlegt. Heilbrigðisnefnd óskar hér með ein- dregið eftir að gildandi samningar verði endurnýjaðir hið fyrsta og þannig að þeir taki gildi 1.1.2011, jafnvel þótt það þurfi að vera á grunni draga að rammasamningi sem fyrir liggur í nefnd þar um. Þetta er gert í trausti þess að þótt síðar verði sjái UST sér hag í að framselja fleiri eftirlitsverkefni sem og þving- unarúrræði þar sem það er/verður heimilt skv. lögum. Það verður fróðlegt að sjá hvort álíka harðorða ályktun verður samþykkt á komandi SSA þingi. Heilbrigðisnefnd Austurlands átelur vinnubrögð Umhverfisstofnunar Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði fluttur að Búðum Nú er búið að flytja franska spítalann á Fáskrúðsfirði. Í undirbúningi er endurbygging spítalans á Búðum á vegum Minjaverndar hf. sem og ann- arra húsa sem Frakkar reistu á Fáskrúðsfirði . Upprunalegi grunnur spítalans stendur þó enn við Hafnargötu 5, rétt utan við Consulhúsið. Franski spítalinn var byggður á árunum 1903 - 1904 en var færður af byggingargrunn- inum árið 1940 og fluttur í Hafnarnes, sunnan fjarðarins. Þar var hann notaður sem fjöl- býlishús fram á 8. áratuginn.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.