Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Page 2

Austurglugginn - 09.10.2009, Page 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október Framhald af forsíðu Tinna Halldórsdóttir segir niður- stöður þær sem liggi fyrir nú einkum lýsandi gögn, en í framhaldinu muni hún fara í frekari gagnaöflun með viðtölum og spurningalistum til kvenna víðar á Austurlandi og grein- ingu, þar sem niðurstöðurnar verði mátaðar inn í feminískar og félags- fræðilegar kenningar. ,, Megin niðurstöðurnar nú eru að almenn ánægja virðist með búsetu á svæðinu,“ segir Tinna. ,,Síendurtekið var talað um fjölskylduvænleika. Í honum virðist felast öryggi og nálægð. Litlir staðir gefa utanumhald og allir þekkja alla. Á sama tíma getur slíkt verið mjög óþægilegt fyrir þá sem þurfa t.d. að taka á eineltismálum. Lendi menn upp á kant við einhvern í litlu samfélagi er nálægðin til trafala. Annar aðilinn þarf jafnvel að víkja til að friður komist á aftur. Ánægja með búsetu virðist ekki helgast af fram- boði afþreyingar eða geymslu fyrir börn. Fram kemur í viðtölunum að fótbolti og fimleikar gleypi allt og listhneygðu börnin gleymist.“ Fyrir og eftir Bónus Tinna segir skondið að tímatal kvennanna varðandi verslun og þjón- ustu virðist miðast við fyrir og eftir Bónus. ,,Nú er hægt að slappa af í Reykjavík og á Akureyri í stað þess að verja mörgum klukkustundum í að versla inn matvæli fyrir næstu mán- uði.“ Almenn ánægja virðist vera með verslun og þjónustu þó kallað sé eftir meiri sérvöru, svo sem ódýrum fötum fyrir börn, heilsuvörum og handa- vinnu. Þar liggja greinileg nýsköpun- artækifæri. Tinna segir gott framboð af tómstundum og íþróttum barna og fullorðinna nánast valda valkvíða því úr nógu sé að velja. Ónóg sérfræðiþjónusta Mikil bjartsýni ríkir fyrir hönd svæðisins, sem heita má merkilegt á þessum krepputímum. Ungt fólk sér mýmörg tækifæri í svæðinu. Fyrirvari er þó gerður um að ákveðnir hlutir eins og menntun þurfi að vera til staðar til að halda ungu fólki heima og atvinnustigi fjölbreyttu. Ákveðin rödd er um að stofna eigi hér háskóla með sérhæfingu sem tengist t.d. skógi, hreindýrum og austfirskri náttúru. Mikið var kvartað yfir heilbrigðis- þjónustu í garð barna og kvenna með einhvers konar sérþarfir. Mjög þykir erfitt að koma börnum í geðheilbrigð- isþjónustu, Skólaskrifstofa sé seinvirk og bið alltof löng uns hjálp fæst, jafn- vel upp í þrjú ár. Tvær greiddar ferðir til sérlækna á ári þykja ekki nærri nóg og aðgengi að sérfræðiþjónustu óvið- unandi. Sundurlaus kvennaþjónusta, þar sem sónar er á einum stað, fæðing á öðrum og mæðraeftir- lit á þriðja, sætir einnig gagnrýni. Samgöngur brenna einnig á konum og þær efast um að fjórðung- urinn geti orðið eitt atvinnu- svæði nema samgöngur verði stórbættar.“ Rígur og hópamyndun Tinna segir að gegnum gang- andi í öllum viðtölunum hafi verið rígur, flokkadrættir og hóp- amyndun á Austurlandi. ,,Þetta virðist mjög raunverulegt, við- varandi og hreint engin mýta. Byggðarannsókna-stofnun og Hagfræði-stofnun gerðu rannsókn 2003 þar sem talað er um að flokka- drættir og hópamynd- anir séu sérstaklega áber- andi á Austurlandi. Þetta er greinilega dauðans alvara. Konur í rýnihóp vildu meina að rígur milli sveitarfélaga og innbyrðis milli stað- anna á fjörðum stæði svæðinu alvar- lega fyrir þrifum, til dæmis varðandi skólamál, heilbrigðisþjónustu, ýmsa þjónustu, samgöngur og atvinnu. Rígurinn leiðir einnig til þess að sér- staklega erfitt er fyrir aðkomufólk að fóta sig á svæðinu, ef það hefur ekki fjölskyldubönd hér eða getur rakið sig til ,,góðra“ ætta. Ein kvennanna sagði til dæmis að hennar vin- konuhópur tæki ekki inn nýjar k o n u r , sem er ansi sérstakt. Aðkomumenn voru stundum taldir heldur illa ættaðir og því væri best að eiga ekki mikið samneyti við viðkomandi. Stundum er talað um að erfitt sé að komast inn í mannlífið á Akureyri, en það þykir hreint grín miðað við Austurland sagði ein sem búið hafði fyrir norðan. Í skýrslunni er Eskifjörður sagður sérlega erfiður við- ureignar fyrir þá sem koma nýir inn. Hvar eru svo aðgerðirnar og hvar erum við að reyna að gera eitthvað í þessu?“ Bíta á jaxlinn Íslensk kvennamenning virðist í hnotskurn snúast um að sætta sig við það næst besta, að sögn Tinnu. Það hefur komið fram áður, m.a. í rannsókn á íslenskum fisk- verkakonum frá 1997. Þær eiga það sammerkt að þegja, þrauka og þola og að kvarta ekki of mikið. ,,Niðurstaða þeirrar rannsóknar var að þessi afstaða stendur vel- ferðarkerfinu að talsverðu leyti fyrir þrifum. Ef þú kvartar ekki upp- hátt og skapar engan þrýsting verða engar aðgerðir eða framþróun. Þetta virðist gegnum gangandi og á líka við hér á Austurlandi. Íslenskur valkyrjuháttur verður til þess að konur bíta á jaxlinn og þrauka, í staðinn fyrir að mynda þrýsting. Nægur vilji virðist vera fyrir að sjá betrun og bót á ýmsum sviðum samfélagsins, en lítið um aðgerðir. Við getum tekið sem dæmi að barn- eignarþjónusta hefur hér verið nán- ast eins í þrjátíu ár og séu konur í áhættuhóp þurfa þær að fara af svæðinu. Þegar hlutir v e r ð a pe r s - ónulega pólitískir fyrir konum skortir aðgerðir. Þetta vil ég rann- saka frekar.“ Ekki vendipunktur Tinna hugaði einnig í rannsókninni að áhrifum samfélagsbreytinga í kjölfar virkjunar og álvers á stöðu austfirskra kvenna. ,,Stóriðjuframkvæmdirnar virtust ekki vendipunktur fyrir konur og sköpuðu þeim ekki ný tækfæri. Auðvitað sáu þær miklar breytingar á samfélaginu og flestar jákvæðar. Þær tala um nútímavæðingu. En þegar spurt er hvað konur græddu á þessu verður fátt um svör og það er býsna sérstakt. Þær upplifðu ekki að fleiri atvinnutækifæri stæðu þeim til boða. Meiri vinna karla þýddi jú meiri fjölskyldutekjur en einnig mikla þenslu á fjölskylduböndin, því konur voru margar hálfgerðar gras- ekkjur meðan á uppsveiflunni stóð. Tvær kvennanna starfa við álverið en aðrir viðmælendur litu ekki á það sem atvinnukost.“ Kynjahalli áberandi Tinna segir að staða kvenna á Austurlandi virðist vera nokkuð góð. ,,Þær eru bærilega ánægðar og flestar sáttar við að hafa valið sér búsetu hér. Þær sjá þó að hitt og annað má betur fara. Hins vegar er greinilegt að sam- þætting kynjasjónarmiða hefur farið fyrir ofan garð og neðan í austfirsku samfélagi. Það er að segja að við alla ákvörðunartöku og stefnumótun sé þess gætt sérstaklega að taka bæði kynjasjónarmiðin inn í og halla á hvorugt. Þetta virtist ekki vera nein meðvituð praktík og gæti útskýrt af hverju konum finnst þær ekki hafa fengið neitt út úr þessu. Auðvitað sýndi álverið ákveðið frumkvæði, en allt umhverfið þarf að vera með og kynjasamþætting á að koma í stjórn- sýslunni og sjást í öllu. Umhverfið varð því allt karlmiðað og karlar virð- ast hafa fengið meira út úr þessu öllu efnahagslega og fleiri atvinnutæki- færi en konur.“ Niðurstöður Önnu Karlsdóttur úr viðtölum við átján konur á Austurlandi leiða þetta sama í ljós; að samþætting kynjasjónarmiða hefði engan veginn verið til staðar og að stóriðjuframkvæmdir væru ekki að breyta neinu markverðu fyrir konur á svæðinu. Rannsókn Tinnu má nálgast á vefsíðu Tengslanets austfirskra kvenna: www. tengslanet.is. Hér eiga allir sínar eigin pumpur Rannsókn á stöðu og viðhorfum kvenna á Austurlandi var unnin fyrir Tengslanet austfirskra kvenna. Þar koma fram niðurstöður á viðtalsrann- sókn sem unnin var vorið 2009. Rætt var við austfirskar konur um fjölmarga þætti í nærsamfélagi þeirra og viðhorf þeirra og hugmyndir teknar saman. ,,Ung kona sem er nýflutt í fjórðunginn fór á bensínstöð til að pumpa í hjól sonar síns. Hún spurði á bensínstöðinni hvernig hún gæti farið að því, þar sem hún ætti enga pumpu. ,,Hér eiga allir sínar eigin pumpur“ sagði afgreiðslu- maðurinn og bauðst ekki til að aðstoða frekar, svo sem eins og að lána henni sína pumpu. Þetta virðist vera málið - hver og einn bjargar sér sjálfur.“

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.