Austurglugginn - 09.10.2009, Síða 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október
Framhald af forsíðu
Tinna Halldórsdóttir segir niður-
stöður þær sem liggi fyrir nú einkum
lýsandi gögn, en í framhaldinu muni
hún fara í frekari gagnaöflun með
viðtölum og spurningalistum til
kvenna víðar á Austurlandi og grein-
ingu, þar sem niðurstöðurnar verði
mátaðar inn í feminískar og félags-
fræðilegar kenningar.
,, Megin niðurstöðurnar nú eru að
almenn ánægja virðist með búsetu á
svæðinu,“ segir Tinna. ,,Síendurtekið
var talað um fjölskylduvænleika. Í
honum virðist felast öryggi og nálægð.
Litlir staðir gefa utanumhald og allir
þekkja alla. Á sama tíma getur slíkt
verið mjög óþægilegt fyrir þá sem
þurfa t.d. að taka á eineltismálum.
Lendi menn upp á kant við einhvern
í litlu samfélagi er nálægðin til trafala.
Annar aðilinn þarf jafnvel að víkja til
að friður komist á aftur. Ánægja með
búsetu virðist ekki helgast af fram-
boði afþreyingar eða geymslu fyrir
börn. Fram kemur í viðtölunum að
fótbolti og fimleikar gleypi allt og
listhneygðu börnin gleymist.“
Fyrir og eftir Bónus
Tinna segir skondið að tímatal
kvennanna varðandi verslun og þjón-
ustu virðist miðast við fyrir og eftir
Bónus. ,,Nú er hægt að slappa af í
Reykjavík og á Akureyri í stað þess
að verja mörgum klukkustundum í að
versla inn matvæli fyrir næstu mán-
uði.“ Almenn ánægja virðist vera með
verslun og þjónustu þó kallað sé eftir
meiri sérvöru, svo sem ódýrum fötum
fyrir börn, heilsuvörum og handa-
vinnu. Þar liggja greinileg nýsköpun-
artækifæri. Tinna segir gott framboð
af tómstundum og íþróttum barna og
fullorðinna nánast valda valkvíða því
úr nógu sé að velja.
Ónóg sérfræðiþjónusta
Mikil bjartsýni ríkir fyrir hönd
svæðisins, sem heita má merkilegt á
þessum krepputímum. Ungt fólk sér
mýmörg tækifæri í svæðinu. Fyrirvari
er þó gerður um að ákveðnir hlutir
eins og menntun þurfi að vera til
staðar til að halda ungu fólki heima
og atvinnustigi fjölbreyttu. Ákveðin
rödd er um að stofna eigi hér háskóla
með sérhæfingu sem tengist t.d. skógi,
hreindýrum og austfirskri náttúru.
Mikið var kvartað yfir heilbrigðis-
þjónustu í garð barna og kvenna með
einhvers konar sérþarfir. Mjög þykir
erfitt að koma börnum í geðheilbrigð-
isþjónustu, Skólaskrifstofa sé seinvirk
og bið alltof löng uns hjálp fæst, jafn-
vel upp í þrjú ár. Tvær greiddar ferðir
til sérlækna á ári þykja ekki nærri nóg
og aðgengi að sérfræðiþjónustu óvið-
unandi. Sundurlaus kvennaþjónusta,
þar sem sónar er á einum stað, fæðing
á öðrum og mæðraeftir-
lit á þriðja, sætir einnig
gagnrýni. Samgöngur
brenna einnig á konum
og þær efast um að fjórðung-
urinn geti orðið eitt atvinnu-
svæði nema samgöngur verði
stórbættar.“
Rígur og
hópamyndun
Tinna segir að gegnum gang-
andi í öllum viðtölunum hafi
verið rígur, flokkadrættir og hóp-
amyndun á Austurlandi. ,,Þetta
virðist mjög raunverulegt, við-
varandi og hreint engin mýta.
Byggðarannsókna-stofnun
og Hagfræði-stofnun gerðu
rannsókn 2003 þar sem
talað er um að flokka-
drættir og hópamynd-
anir séu sérstaklega áber-
andi á Austurlandi. Þetta
er greinilega dauðans alvara. Konur
í rýnihóp vildu meina að rígur milli
sveitarfélaga og innbyrðis milli stað-
anna á fjörðum stæði svæðinu alvar-
lega fyrir þrifum, til dæmis varðandi
skólamál, heilbrigðisþjónustu, ýmsa
þjónustu, samgöngur og atvinnu.
Rígurinn leiðir einnig til þess að sér-
staklega erfitt er fyrir aðkomufólk að
fóta sig á svæðinu, ef það hefur ekki
fjölskyldubönd hér eða getur rakið sig
til ,,góðra“ ætta. Ein kvennanna sagði
til dæmis að hennar vin-
konuhópur tæki
ekki inn nýjar
k o n u r ,
sem er
ansi
sérstakt. Aðkomumenn voru stundum
taldir heldur illa ættaðir og því væri
best að eiga ekki mikið samneyti við
viðkomandi. Stundum er talað um að
erfitt sé að komast inn í mannlífið á
Akureyri, en það þykir hreint grín
miðað við Austurland sagði ein sem
búið hafði fyrir norðan. Í skýrslunni
er Eskifjörður sagður
sérlega erfiður við-
ureignar fyrir þá sem
koma nýir inn. Hvar
eru svo aðgerðirnar og hvar erum
við að reyna að gera eitthvað í
þessu?“
Bíta á jaxlinn
Íslensk kvennamenning virðist
í hnotskurn snúast um að sætta
sig við það næst besta, að sögn
Tinnu. Það hefur komið fram áður,
m.a. í rannsókn á íslenskum fisk-
verkakonum frá 1997. Þær eiga
það sammerkt að þegja, þrauka og
þola og að kvarta ekki of mikið.
,,Niðurstaða þeirrar rannsóknar
var að þessi afstaða stendur vel-
ferðarkerfinu að talsverðu
leyti fyrir þrifum. Ef
þú kvartar ekki upp-
hátt og skapar engan
þrýsting verða engar aðgerðir eða
framþróun. Þetta virðist gegnum
gangandi og á líka við hér á
Austurlandi. Íslenskur valkyrjuháttur
verður til þess að konur bíta á jaxlinn
og þrauka, í staðinn fyrir að mynda
þrýsting. Nægur vilji virðist vera fyrir
að sjá betrun og bót á ýmsum sviðum
samfélagsins, en lítið um aðgerðir.
Við getum tekið sem dæmi að barn-
eignarþjónusta hefur hér verið nán-
ast eins í þrjátíu ár og séu konur í
áhættuhóp þurfa þær að
fara af svæðinu.
Þegar hlutir
v e r ð a
pe r s -
ónulega pólitískir fyrir konum
skortir aðgerðir. Þetta vil ég rann-
saka frekar.“
Ekki vendipunktur
Tinna hugaði einnig í rannsókninni að
áhrifum samfélagsbreytinga í kjölfar
virkjunar og álvers á stöðu austfirskra
kvenna. ,,Stóriðjuframkvæmdirnar
virtust ekki vendipunktur fyrir konur
og sköpuðu þeim ekki ný tækfæri.
Auðvitað sáu þær miklar breytingar
á samfélaginu og flestar jákvæðar.
Þær tala um nútímavæðingu. En
þegar spurt er hvað konur græddu
á þessu verður fátt um svör og það
er býsna sérstakt. Þær upplifðu ekki
að fleiri atvinnutækifæri stæðu þeim
til boða. Meiri vinna karla þýddi jú
meiri fjölskyldutekjur en einnig
mikla þenslu á fjölskylduböndin, því
konur voru margar hálfgerðar gras-
ekkjur meðan á uppsveiflunni stóð.
Tvær kvennanna starfa við álverið en
aðrir viðmælendur litu ekki á það sem
atvinnukost.“
Kynjahalli áberandi
Tinna segir að staða kvenna á
Austurlandi virðist vera nokkuð góð.
,,Þær eru bærilega ánægðar og flestar
sáttar við að hafa valið sér búsetu hér.
Þær sjá þó að hitt og annað má betur
fara. Hins vegar er greinilegt að sam-
þætting kynjasjónarmiða hefur farið
fyrir ofan garð og neðan í austfirsku
samfélagi. Það er að segja að við alla
ákvörðunartöku og stefnumótun sé
þess gætt sérstaklega að taka bæði
kynjasjónarmiðin inn í og halla á
hvorugt. Þetta virtist ekki vera nein
meðvituð praktík og gæti útskýrt af
hverju konum finnst þær ekki hafa
fengið neitt út úr þessu. Auðvitað
sýndi álverið ákveðið frumkvæði, en
allt umhverfið þarf að vera með og
kynjasamþætting á að koma í stjórn-
sýslunni og sjást í öllu. Umhverfið
varð því allt karlmiðað og karlar virð-
ast hafa fengið meira út úr þessu öllu
efnahagslega og fleiri atvinnutæki-
færi en konur.“
Niðurstöður Önnu Karlsdóttur
úr viðtölum við átján konur á
Austurlandi leiða þetta sama í ljós;
að samþætting kynjasjónarmiða hefði
engan veginn verið til staðar og að
stóriðjuframkvæmdir væru ekki að
breyta neinu markverðu fyrir konur
á svæðinu.
Rannsókn Tinnu má nálgast á vefsíðu
Tengslanets austfirskra kvenna: www.
tengslanet.is.
Hér eiga allir sínar eigin pumpur
Rannsókn á stöðu og viðhorfum kvenna á Austurlandi var unnin fyrir
Tengslanet austfirskra kvenna. Þar koma fram niðurstöður á viðtalsrann-
sókn sem unnin var vorið 2009. Rætt var við austfirskar konur um fjölmarga
þætti í nærsamfélagi þeirra og viðhorf þeirra og hugmyndir teknar saman.
,,Ung kona sem er nýflutt í fjórðunginn fór á bensínstöð til að pumpa í hjól
sonar síns. Hún spurði á bensínstöðinni hvernig hún gæti farið að því, þar
sem hún ætti enga pumpu. ,,Hér eiga allir sínar eigin pumpur“ sagði afgreiðslu-
maðurinn og bauðst ekki til að aðstoða frekar, svo sem eins og að lána henni
sína pumpu. Þetta virðist vera málið - hver og einn bjargar sér sjálfur.“