Austurglugginn - 09.10.2009, Qupperneq 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október
ORKUÖFLUN Á
KREPPUTÍMUM
Ég gerði dálitla tilraun á sjálfri mér á dögunum. Það var í þann mund
sem byrjað var á ný að tala um stjórnarkreppu í kjölfar afsagnar
Ögmundar og stjórnarandstaða gömlu flokkanna galaði eins og
hani á haug um getuleysi og óstjórn ríkisstjórnarinnar. Sömu
ríkisstjórnar og stendur nú upp að öxlum í eðjunni sem fyrri stjórnhættir
gátu af sér og getur sig trauðla hrært, en reynir þó af ýtrustu (en hugsanlega
þverrandi) kröftum að koma böndum á ástandið. En þetta var sem sagt
dálítil tilraun og gerð í tilefni af því að ég var að missa glóruna vegna utan
að komandi áreitis á skilningarvit mín.
Ég slökkti á útvarpinu. Lokaði tölvuskrípinu. Kveikti alls ekki á sjónvarpi.
Hlustaði á tikkið í klukkunni sem færir mig inn í veturinn á furðumiklum
hraða. Ég lokaði meira að segja augunum. Hugleiddi þau merku sannindi
að við getum sjálf stjórnað áreiti hvunndagsins að miklu leyti. Greip mig
í að vera aftur farin að hugsa um landsmálin. Kreppan virðist vera búin að
hreiðra um sig í heilavef mínum. Afréð að fara út að ganga, minnug þess sem
Hörður Torfason sagði eitt sinn við mig þegar ég hitti hann á Laugaveginum
hér í gamla daga; að ekkert væri eins heilsusamlegt fyrir sálina og að ganga
úti við. Þannig mætti fá þyngstu sorgir og flóknasta hugarvíl til að hjaðna,
í það minnsta um stundarsakir. Dumbrauð og gulleit laufblöð skriðu eftir
götum í norðaustanvindinum og fyrstu snjókorn vetrarins kitluðu mig í
nefið. Hugur minn kyrrðist og orkan endurnýjaðist.
Ég held, góðir landsmenn, að til að þrauka veturinn af verðum við meðvitað
að skýla sjálfum okkur fyrir argaþrasinu. Þó minna sé í buddunni og kannski
næstum ekki neitt, skulum við reyna að nema fegurð hins smáa, andvar-
ann, ilminn, liti og form. Hlusta eftir glöðum hlátri, mjúkum klið. Muna
eftir vinum og fólkinu sem okkur þykir vænt um. Hlú að kærleik og ástúð
hvar sem því verður við komið. Ég þekki öndvegiskonu og við komumst
nýlega að sameiginlegri niðurstöðu um að þegar við yrðum gamlar konur
myndum við frekar orna okkur við minningar um vináttu sem var rækt, en
þvottinn sem við brutum saman um dagana og tímann sem fór í gagnslitlar
og slítandi áhyggjur.
Og við stjórnmálamenn vil ég segja þetta: Takið til alvarlegrar skoðunar að
nú er ekki tíminn til að vera í skotgrafahernaði; ,,þú ert aumingi en ég er
frábær og veit allt/skil allt“-heilkenninu. Nú ríður á að standa saman, hefja
sig yfir gamlar væringar og gefa þeirri þjóð, sem þið lofuðuð að starfa fyrir
af heilindum, von um að úr rætist og vissu um að þið vinnið saman sem
einn maður af ýtrustu ábyrgð, yfirvegun og myndugleik.
Að þessu sögðu er ég farin út að ganga.
Steinunn Ásmundsdóttir.
Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Steinunn Ásmundsdóttir
frett@austurglugginn.is
Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Erla Sigrún Einarsdóttir
Fréttasími: 477 1750
frett@austurglugginn.is • www.austurglugginn.is
Auglýsinga- og áskriftasími: 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is
Íþróttasvið: Gunnar Gunnarsson, s. 848-1981 - zunderman@manutd.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com
Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 854 9482 - kompan@vortex.is
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf.
Umbrot og prentun: Héraðsprent.
Átt þú frásögn og mynd af viðburði í þínu sveitarfélagi sem þú vilt deila með lesendum? frett@austurglugginn.is
Popp & kók frumsýnt
Hornfirska skemmtifélagið frum-
sýnir Popp & kók í kvöld á Hótel
Höfn. Þetta er tónlistarsýning þar
sem hornfirskir listamenn flytja mörg
af þekktustu lögum kvikmyndasög-
unnar en meðal annars munu lögin
What a feeling, Footloose, Eye of a
tiger og Ghostbusters hljóma á sýn-
ingunni.
Aðstandendur sýningarinnar eru
hátt á þriðja tuginn; söngvarar og
hljóðfæraleikarar, ljósameistari, hljóð-
maður, búningahönnuðir, hárgreiðslu-
og förðunarfólk. Tónlistarstjóri er
Heiðar Sigurðsson og leikstjóri
Þórhildur Magnúsdóttir.
Þetta er áttunda verkefni Hornfirska
skemmtifélagsins sem sett er upp á
Hótel Höfn. Áður hafa hornfirskir
skemmtikraftar sett á svið sýningar
sem m.a. nefndust Bítl, Eitís, Rokk í
50 ár, American Graffiti, Diskó, Með
allt á hreinu og Slappaðu af.
Fjarðabyggð sigraði
Lið Fjarðabyggðar sigraði
Hvergerðinga í spurningakeppni
Sjónvarps, Útsvari, sl. föstudags-
kvöld, með 73 stigum gegn 49. Liðið
er skipað Jóni Svani Jóhannssyni,
Kjartani Braga Valgeirssyni og Pjetri
St. Arasyni.
Ný vefsíða MMF
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs
hefur opnað nýja og aðgengilega
heimasíðu: www.mmf.egilsstadir.is.
Á síðunni er að finna ýmsan fróð-
leik um miðstöðina, hvað er á döfinni
og fleira fróðlegt auk tengla á aðrar
list- og hönnunartengdar vefsíður.
ME fagnar
30 ára afmæli
Menntaskólinn á Egilsstöðum fagnar
30 ára afmæli sínu miðvikudaginn 14.
október. Dagurinn verður framvegis
formlegur sparifatadagur nemenda og
kennara skólans. Skólinn og kennslu-
stundir verða opin gestum frá kl. 9-12
á miðvikudaginn, en formleg móttaka
hefst svo kl. 17 og stendur til 20. Þá
verða nemendur og kennarar í leik og
starfi, ýmsar sýningar og upplestur
og kynningar á nemendaverkum.
Skólameistari flytur ávarp kl. 18 og
sérlegur heiðursgestur er Vilhjálmur
Einarsson, f.v. skólameistari. Fundur
með foreldrum nýnema hefst kl. 19
og aðalfundur Foreldrafélags ME kl.
19:30. Allir eru velkomnir.
Andvarp endurvakið
Útvarpsstöðin Útvarp Andvarp, sem
er staðbundin útvarpsstöð nemenda
í Menntaskólanum á Egilsstöðum,
var endurvakin nú á miðvikudag.
Sendirinn og stúdíóið eru stað-
sett í vegaHúsinu/Sláturhúsinu og
mun útsendingin til að byrja með
nást í nágrenni Egilsstaða. Dagskrá
er send út á miðvikudögum frá
kl. 18-24. Halldór B. Warén segir
að í framtíðinni muni almenn-
ingi bjóðast að nýta tækjabúnaðinn
til dagskrágerðar og útsendinga.
Greitt til reiðskemmu
Bæjarráð Fjarðabyggðar mun greiða
10 milljóna króna framlag til reið-
skemmu á Norðfirði í samræmi við
samning frá árinu 2007. Einnig
mun sveitarfélagið aðstoða við að
afla 10 milljóna króna til viðbótar
samkvæmt nánara samkomulagi við
Hestamannafélagið Blæ. Samkvæmt
samningi milli Blæs og landbúnaðar-
ráðuneytisins þarf að hefja byggingu
reiðskemmunar innan skamms.
Hálf milljón safnaðist
Um fimm hundruð þúsund krónur
söfnuðust í Minningarsjóð um
Guðlaug Magna Óðinsson á tón-
leikum og dansleik sem fram fóru
í Skrúð sl. laugardag. Guðlaugur
Magni lést í bílslysi í maí, sautján
ára gamall. Nota á sjóðinn til að fjár-
magna forvarnastarf sem beint verður
að ungu fólki í umferðinni.
Gönguferðir kynntar
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og ÍT
ferðir verða með kynningu á göngu-
ferðum ársins 2010 í Hlymsdölum,
Miðvangi 6, Egilsstöðum mánu-
daginn 12. október kl. 20. Óskar
Ingólfsson og Skúli Júlíusson kynna
Hjálpleysuhringinn og fleiri garpa-
ferðir. Sæmundur Þór Sigurðsson
kynnir Perúferð um páska. Hjördís
Hilmarsdóttir kynnir ferðaáætlun
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs fyrir
2010, einnig kynnir hún nokkrar
spennandi gönguferðir erlendis sem
hún hefur sett upp og stýrt fyrir ÍT
ferðir.
Lögregla hætti
rannsókn
Sýslumannsembættið á Eskifirði
hefur vísað frá máli yfirlæknis við
Heilsugæslu Fjarðabyggðar. Þetta er
í annað skiptið sem rannsóknardeild
lögreglunnar á Eskifirði vísar máli
læknisins frá á grundvelli fyrirliggjandi
gagna. Ríkisendurskoðun tók málið
upp og kærði til Ríkissaksóknara,
sem sendi málið aftur heim í hérað
til rannsóknar. Ríkisendurskoðun
mun væntanlega í kjölfarið taka
afstöðu til hvort kyrrt verður látið
liggja eða óskað eftir endurupptöku.
Yfirlæknirinn var sendur í tíma-
bundið leyfi frá störfum í febrúar sl.
í kjölfar þess að Heilbrigðisstofnun
Austurlands fól lögreglu að rannsaka
hvort læknirinn hefði misfarið með
fjármuni HSA.
Unnið í Oddsskarði
Nú er orðið vetrarlegt um að litast og
nokkur snjór kominn í Oddsskarð. Í
Skíðamiðstöðinni er unnið að því að
gera skíðasvæðið klárt fyrir veturinn
og stefnt á að opna um leið og nægur
snjór kemur í brekkurnar.