Austurglugginn - 09.10.2009, Page 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október
Jónsi
fréttaritari
Annað upplag af Fréttablaðinu Fluga á vegg
er farið í dreif ingu. Lenu lirfu er saknað og
það hangir dularfullur belgur í einu horni
á skrifstofu blaðsins.
Um leið og annað upplag af
Fréttablaðinu Fluga á vegg
hafði verið borið út, fögn-
uðu allir í almenningsgarðinum þessum góðu
fréttum af opnun sultuverksmiðjunnar. Kata
könguló dansaði um vefinn sinn og öll skor-
dýrin í trénu kættust og sungu. Jafnvel þótt
það virtist skrýtið, tókst Möttu að draga fram
bros.
„Það elska okkur allir,“ hrópaði Maggi marg-
fætla. „Við höfum skapað frábærasta fréttablað
í heimi.“
„Hvenær eigum við að byrja á næsta
tölublaði?“ spurði Konni maríubjalla
óþreyjufullur og vildi fá alla strax til
vinnu.
„Slappaðu af Konni,“ sönglaði
Kata og dró fram garnið sitt
og prjónana. „Við þurfum öll
að slaka aðeins á og skemmta
okkur svolítið.“
„Amma hefur rétt fyrir sér. Þar fyrir utan held
ég að sárin á Magga þurfi smá tíma til að gróa,“
sagði Jónsi og kinkaði kolli til margfætlunnar
sem var þakin plástrum.
„Verið rólegir, maurar,“ skipaði Rikki og allir
dottuðu í beinni línu. Reyndar færðist þögn
yfir allan hópinn.
„Ég er með kenningu um belginn í horninu á
skrifstofunni okkar,“ sagði Konni til að rjúfa
þögnina. „Ég held að Lena hafi ákveðið,
áður en hún fór, að við þyrftum öll á
líkamsrækt að halda,“sagði hann
um leið og hann rótaði í skrif-
stofudóti Magga.
„Að hverju ertu að leita?“ Maggi
reyndi að hjálpa Konna. „Farðu
varlega, það eru oddhvöss
áhöld í þessari skúffu!“
„Jaaá, ekki viljum við að einhver meiði
sig,“ sagði Matta kaldhæðnislega.
„Ég fann fleiri plástra,“ hrópaði Kata
til Magga og Konna. „Ég var að von-
ast til að geta geymt þá fyrir þriðju
útgáfu blaðsins.“
„Hér er það,“ til-
kynnti Konni, um
leið og hann
dró fram breiða límbands-
rúllu úr skúffunni. Hann vafði
límbandinu fremst um fram-
fæturna á sér og labbaði yfir í horn
skrifstofunnar.
„Konni, þú mátt alls ekki slá niður þennan dul-
arfulla belg,“ bað Kata.
„Jæja, en þetta er greinilega æfingapoki fyrir
hnefaleika,“ svaraði Konni, ósáttur við
nöldrið í Kötu. „Svo mér finnst rétt að ein-
hver okkar prófi hann.“
Um leið og Konni sveiflaði hand-
leggnum aftur fyrir sig, tilbúinn
í fyrsta höggið, greip Maggi í
hann. „Ég veit ekki hvað þessi
brjálæðislegi hlutur er.... en það
virðist alla vega ekki rétt að kýla
hann niður.“
Nú kom Matta til skjalanna „Ja, ég veit ekki
hvað þú ert brjálaður, Maggi, en ég myndi vilja
gera æfingapoka úr þér.“
„Bíðið nú við, pöddur.“ Rikki skarst í leik-
inn hjá skordýrunum þremur einmitt þegar
fór að hitna í kolunum. „Farið nú ekki
að slást núna einmitt þegar gengur
svona vel í fréttateyminu hjá okkur.
„Ég er sammála Rikka,“ kallaði Kata
úr vefnum sínum. „Við skordýrin þurfum
að standa saman.“ „Hvað?“ sagði Konni
ruglaður. „En Kata þú ert ekki sko... En
áður en hann gat lokið setningunni vafði
Maggi margfætla öllum sínum örmum
um munninn á honum. „Er ég
ekki hvað?“ spurði Kata og
tók ekkert eftir að Maggi
hvíslaði einhverju að
Konna.
„Ég ætlaði að segja að þú ert ah... uhm... þú
ert svo fallegt skordýr Kata og ég kann svo vel
að meta ráðin þín,“ sagði Konni
hikandi.
„Hæ Jónsi.“ Maggi flýtti sér að
skipta um umræðuefni. „Hvaða
frétt eigum við að hafa í næsta
blaði?“
„Ó minn eini,“ sagði Kata og
tók varlega upp blaðsnifsi af
Borgarblaði sem lá á vefnum
hennar. „Þetta fauk úr stóra papp-
írsstaflanum þarna. Ég er ekki viss, en þessi fyr-
irsögn hljómar eins og eitthvað sem við viljum
kannski rannsaka betur!“
„Leyfðu mér að sjá þetta.“ Matta
teygði sig yfir brúnina á vefnum
og hrifsaði blaðsnifsið úr höndum
Kötu. „...MEINDÝRAEYÐI
TIL ÞESS AÐ HREINSA
BORGINA,“ las hún upp-
hátt fyrir hópinn - græn húð
hennar hvítnaði. Kata
hélt það myndi líða
yfir hana og flýti sér að
spinna vef umhverfis
hana til þess að draga úr fallinu.
„Kemur ekki til greina,“ sagði Maggi marg-
fætla. „Við setjum ekki svona frétt í fréttablaðið
okkar. Viltu að allur garðurinn verði skelfingu
lostinn?“
„Maggi gæti haft rétt fyrir sér,“ samsinnti Jónsi.
„Hvaða rétt höfum við til að flytja svona
hræðilegar fréttir? Allir eru svo ánægðir
með sultuverksmiðjuna að það hefur
gert okkur að hetjum! Hver segir að
við þurfum að gera grein fyrir svona
slæmum fréttum?“
„Jæja, söfnumst nú saman og reynum
að finna út hvað við eigum að
gera,“ lagði Konni til.
Fréttateymið í basli
(5. kafli af 8)
Höfundur texta: Cathy Sewell. · Myndir: Blaise Sewell. · Endurprentað í samvinnu við The World Association of Newspapers and News Publishing og með leyfi The Curriculum Closet Productions Inc.
Allur réttur áskilinn. · Styrktaraðili: The Curriculum Closet (www.curriculum close.com) · Þýðingu annaðist Háskólinn á Akureyri.
Maggi margfætla
Lena lirfa
Matta beiða
Kata kónguló
Jó i fl gans u
Konni maríubjalla
Rikki maur