Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Side 8

Austurglugginn - 09.10.2009, Side 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október Dreymdi um England Birna er nú að hefja þriggja ára langt BA nám í klassískri leiklist. Árið kostar 2,3 milljónir króna og hún hefur verið að reyna að aura saman styrkjum til að fjármagna námið og á langt í land enn. ,,Það hefur bara alltaf verið draumurinn að fara til Englands. Ég horfði á skóla í London og Bristol og á hverju einasta ári var ég komin með ljósrit af umsóknum sem ég potaði í. Þegar loks kom að því að sækja um var komin kreppa og þá var skól- inn í Bristol hættur að taka við nemendum utan Evrópusambandsins. En það eru skólar í London sem taka nemendur hvaðanæva að og halda inn- tökupróf um allan heim. Eftir að skoða þá valdi ég að fara í inntökupróf í Rose Bruford, en hann var stofnaður 1950. Hann er meðal þriggja bestu leiklistarskóla Bretlandseyja og kennir allt sem snýr að leikhúsinu.“ Birna þurfti að flytja leiklestur úr klassísku leikriti og nútímaverki í inntökuprófinu og átti að velja andstæður. Hún valdi sér texta úr gamanleiknum The Merry Wifes of Windsor eftir Shakespeare og svo hádramatískt verk Söru Kane, 4.48 Psicosis. Birna segir inntökuprófið hafa gengið vel og þrátt fyrir að vera stressuð fyrirfram hafi allt slíkt strok- ist af henni þegar prófið hófst. Rose Bruford tekur þúsundir í inntökupróf árlega um allan heim en sem dæmi um hversu erfitt er að komast í skól- ann er að aðeins þrjátíu eru teknir inn á klassísku brautina í ár. Um og yfir 200 Íslendingar fara að jafnaði í inntökupróf skólans á ári, en hún var eini umsækjandinn héðan sem komst inn á klassíska leiklistarbraut. Leikhús er pólitík Birnu langaði ekki að læra leiklist á Íslandi þó hún beri mikla virðingu fyrir leiklistardeild L i s t a h á s k ó l a Íslands. ,,Ég hef mikla þörf fyrir að vera alltaf að skipta um umhverfi og fannst því meira heillandi að fara út fyrir landstein- ana til náms. Að vera útlendingur í skóla af þessu tagi gerir að verkum að maður verður alltaf lélegastur og þarf að leggja talsvert harðar að sér en innfæddir til að ná sama árangri. Samkeppnin er gríðarleg og maður þarf að ströggla mun meira til að halda velli og fá hlutverk.“ En hvað er leikhús fyrir Birnu? ,,Leikhús er ynd- islegur staður; staðurinn þar sem allt blandast saman. Til dæmis er leikhúsið fjölmiðill, pólitík, list og allt það í menningu okkar sem skiptir máli. Í leikhúsi getur fólk komið saman og grátið og hlegið, fræðst og þar má gera allt. Þar er hægt að koma á framfæri skoðunum á hlutunum án rit- skoðunar og leikhús er fullkominn vettvangur til að hafa áhrif á tiltekin öfl í samfélaginu. Það getur breytt hugsunum fólks, því allskyns fólk kemur í leikhús og fær nýtt sjónarhorn blákalt og beint í andlitið.“ Birna segist mjög áhugasöm um að tengja pólitík inn í leikhúsið. ,,Pólitík og peningar eru það sem stjórna öllu í heiminum núna. Yngri leikritaskáldin eru að vinna æðislegt starf hvað þetta varðar. Þau eru miklu djarfari en verið hefur. Listin er frjáls. Þar af leiðandi má segja sína skoðun og tjá hana að vild. Leikhúsið er uppáhalds staðurinn minn í heiminum!“ Tvíbent Birna segir sínar sterku hliðar í leiklistinni tvær. Bæði sé hún forfallinn söngleikjaáhugamaður og dái slíkar sýningar, með litum sínum, ljósum, söng og dansi. Á hinn bóginn elski hún mikla alvöru og dramatík og verk sem eru af pólitískum toga eða skrifuð í kringum sannsögulega atburði. ,,Þetta togast á í mér. Ég er mikil tilfinn- ingavera og hrærist auðveldlega.“ Um íslenska leikhúsið segir Birna að þegar Söru Kane-mánuðurinn var í fyrra, og verk Kane, Rústað, var sýnt og fleiri verk hennar leiklesin, hafi opnast nýjar dyr í íslensku leikhúsi. ,,Hingað til hefur mér fundist svolítið það sama í gangi, þó svo auðvitað sé leikrit alltaf nýtt í hverri upp- færslu. Þarna gerðist eitthvað markvert og nú sýn- ast mér vera að koma mjög margir nýir og flottir leikarar inn og leikstjórinn í Borgarleikhúsinu, Magnús Geir Þórðarson, er stórkostlegur. Hann er kominn til að vera og er líklega það sem er mest spennandi í íslensku leikhúslífi. Hann tók Leikfélag Akureyrar og hafði á því endaskipti og allt í einu er Akureyri orðin leikhúsbær og allt þar iðandi af menningu, bara út af honum. Hann breytti öllu og það er frábært að hann er kominn í Borgarleikhúsið. Þeir leikarar sem hann er með núna eru framúrskarandi. Psicosis og Grease ,,Mig langar að leika eitthvað eftir Söru Kane. 4.48 Psicosis eftir hana er draumahlutverkið mitt. Sandy í Grease væri líka ofboðslega skemmtilegt hlutverk,“ segir þessi hugumstóra unga kona, sem horfir til þess í framtíðinni að taka meist- aragráðu í leiklist og læra leikstjórn. ,,Þetta á eftir að leiða mig til margra staða og ég ætla að láta lífið bera mig um; það gæti verið í London, í Borgarleikhúsinu eða með íslensku mennta- skólaleikfélagi. Allt verður það gott.“ ,,Til dæmis er leikhúsið fjölmiðill, pólitík, list og allt það í menningu okkar sem skiptir máli.“ Birna í söngleikjaham. Mynd/BP Breskur rithöfundur hefur gefið út bók um vinsæl tískufyrirbæri sem ekki hafa staðist tímans tönn og kemur fáum á óvart að syngj- andi plastfiskur á vegg sé efstur á listanum. Hann var kallaður Big Mouth Billy Bass, fiskurinn sívinsæli sem söng lög á borð við Don‘t Worry, Be Happy og Take Me To The River, og hékk á þúsundum veggja árið 2000. Hann toppar lista Rhodri Marsden sem hefur gefið út bókina The Next Big Thing, eða Næsta tísku- fyrirbæri. Í öðru sæti lentu hinir sívinsælu glansgallar en Íslendingum kemur kannski á óvart að Sódastream-tækið lendir í þriðja sæti listans. Meðal annarra hluta sem lentu á listanum má nefna plaköt með karlmannlegum ungum manni með smábarn í fanginu og handprjónaðar uglur. „Í gegnum mannkynssöguna, allt frá fornum menningarsamfélögum, höfum við sýnt hjarðhegðun og allir hafa samþykkt að eitthvað sé góð hugmynd á sama tíma og við höfum á e i n h v e r n hátt náð að bæla niður þær efa- semdir um að kannski sé þetta ekki svo sniðugt eftir allt saman. Ég reyndi að safna sumum þeirra furðulegu hluta í eina bók sem gefur yfirsýn yfir þær stundum stórfurðu- legu dellur allra tíma sem fær mann stundum til hugsa ...af hverju?,.“ segir Marsden. Hann segir bókina sýna nokkur tískufyrirbæri sem hann telur að muni ekki eldast vel og nefnir þar á meðal raun- veruleikaþætti í sjónvarpi og Twitter. Hér er Topp 10 listinn yfir tískufyrirbæri sem eldast illa: 1. Syngjandi fiskurinn á veggnum, öðru nafni Big Mouth Billy Bass 2. Glansgallar 3. SodaStream 4. Hraðsuðumáltíðir í poka 5. Maður og barn plakat 6. Prjónaðar klósettrúlluhlífar 7. Tupperware-boð 8. Prjónaðar uglur 9. Pogo prik 10. Tölvugæludýrin, öðru nafni Tamagotchis pressan.is, 29.09.2009 Syngjandi fiskur á veggnum, handprjónaðar uglur og tupperware-boð Topp 10 tískufyrirbæri sem eldast illa

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.