Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Page 10

Austurglugginn - 09.10.2009, Page 10
10 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 9. október Þjónustuauglýsingar INNANSTOKKS VEITINGAHÚS GÆLUDÝR Sjoppa og veitingar Heimilsmatur í hádeginu Opið mán. - fim. 8-22 · föst. 8-23 lau. 9-23 · sun. 10-22 Strandgata 13 · Eskifiirði sími 476 1383 B R Ú N Á S innré t t ingar Miðási 9 • Egilsstaðir Sími: 470-160 Vallargerði 9 · Reyðarfyrði Sími 892 0336 · www.bakkagerdi.net Hjá Marlín Kaffihús og gisting Tjarnarás 8 / 700 Egilsstaðir kristjanajons@simnet.is · 8952414 Opið frá kl. 9-13 virka dag FLUTNINGAR BIFREIÐAÞJÓNUSTA Miðás 7 · sími 471 3002 Opið virka daga 10:00 - 18:00 Laugardaga 13:00 - 17:00 MARKAÐUR Dynskógar 4, Egilsstöðum sími 471 1331 Opið virka daga 9:00 - 17:00 Dynskógum 4 jarðhæð · Egilsstöðum S. 471 3117 Opið virka daga 9:00 - 17:00 Tjarnarbraut 21, · Egilsstöðum Sími 471 2919 · Opið mán.- þri.- fim. og fös. frá 9-17, miðv. 9-20. Opið virka daga 9:00 - 17:00 HÁR & SNYRTING Toyota Austurlandi Bílaverkstæði Austurlands Bílaverkstæði/bílasala Opið mán.-fim. Kl. 8-18 - Fös kl. 8-17 Sími 470 5070 Réttingar og sprautun Framrúðuskipti Bílaleiga. Opið virka daga kl. 8-18 Fótbolti Jóhann Ragnar í liði ársins í 1. deild 4. október var lið ársins í 1. deild karla valið af þjálfurum og fyrirliðum liðanna. Einn leikmanna Fjarðabyggðar, Jóhann Ragnar Benediktsson, var valinn í liðið. Fleiri Fjarðabyggðarmenn fengu atkvæði í kosningunni; Srdjan Rajkovic markvörður og varnarmennirnir Andri Hjörvar Albertsson, Haukur Ingvar Sigurbergsson, Guðmundur Andri Bjarnason og Daníel Freyr Guðmundsson. Einnig fékk Fannar Árnason atkvæði sem og þjálfarar liðsins, þeir Heimir Þorsteinsson og Páll Guðlaugsson. Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands og Alcoa-Fjarðaál gerðu í sumar sem leið samkomulag um að setja á fót að nýju afrekssjóðinn Sprett. UÍA auglýsir nú úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2009. Styrkir eru veittir í eftirtöldum flokkum: A) Afreksstyrkir Þessa styrki skal veita íþróttafólki 18 ára og yngri, minnst einum karli og einni konu, sem sérstaklega hafa skarað fram úr í sinni grein. Afreksstyrkir skulu ekki bundnir við tiltekið verkefni en sá sem hlýtur afreksstyrk skal gefa úthlutunarnefnd skýrslu um ráðstöfun styrksins innan árs frá því að viðkomandi hlýtur hann. Fjárhæð hvers afreksstyrks er kr. 100.000.- B) Iðkendastyrkir Þessir styrkir skulu veittir íþróttafólki 18 ára og yngri, sem búsett er á Austurlandi til að standa straum af kostnaði við æfingaferðir út fyrir fjórðunginn, eða öðrum kostnaði sem hlýst af því að æfa viðkomandi íþróttagrein. Þeir skulu ganga fyrir um styrk sem eru kallaðir til æfinga í úrvalshópum á vegum sérsambanda ÍSÍ eða landsliðum. Einnig er heimilt að styrkja kaup á tækjum eða búnaði til æfinga. Hámarksfjárhæð almennra iðkendastyrkja skal vera kr. 50.000.- C) Þjálfarastyrkir Þessir styrkir skulu veittir þjálfurum sem starfa með ungu íþróttafólki á Austurlandi og hyggjast afla sér aukinnar þekkingar eða réttinda með námskeiðum eða annars konar fræðslu. Skilyrði er að viðkomandi þjálfari sé starfandi á Austurlandi. Einnig er heimilt að styrkja aðra starfsmenn íþróttafélaga eða sjálfboðaliða til að afla sér þekkingar sem nýtist við skipulag þjálfunar barna og unglinga. Hámarksfjárhæð þjálfarastyrkja er kr. 100.000.- D) Félagastyrkir Félagastyrkir skulu veittir íþróttafélögum á Austurlandi sem hyggjast auka tækifæri barna og unglinga á svæðinu til að stunda íþróttir. Verkefni skulu vera á ábyrgð tiltekins íþróttafélags og vera nýjung eða viðbót við það starf sem fyrir er á viðkomandi svæði. Hámarksfjárhæð félagastyrkja er kr. 100.000.- Aðeins er unnt að sækja um styrki á svæði sjóðsins á heimasíðu UÍA www.uia.is/sprettur. Þar má einnig finna úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar um sjóðinn. Umsóknarfrestur fyrir úthlutun úr sjóðnum 2009 rennur út 25. október næstkomandi og verður úthlutað formlega úr sjóðnum þann 31. október. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfanginu uia@uia.is. Afrekssjóður UÍA og Alcoa SPRETTUR Brunch alla sunnudaga - sunnudagar eru til sælu! Hótel Hérað, Egilsstöðum Borðapantanir í síma 471 1500 og á herad@icehotels.is Samstarf menningarráðanna í Vesterålen í Norður-Noregi og á Austurlandi hefur síðustu ár stuðlað að heimsóknum lista- manna til beggja landa. Meðal annars hafa listamenn komið og dvalið í gestaíbúðinni Klaustrinu á Skriðuklaustri öll haust frá 2005 vegna sérstaks samstarfs við Gunnarsstofnun. Síðustu vikur hafa dvalið á Skriðuklaustri söngkonan Liv Skrudland og sellóleikarinn Karin Nielsen. Liv lærði við Rogaland Musikkonservatorium og er alhliða söngvari en þekkt fyrir túlkun sína á kammertónlist og ljóðatónleika. Karin nam sellóleik bæði í Svíþjóð og Noregi og hefur m.a. spilað með Fílharmóníusveitinni í Osló en vinnur nú sem svæðistónlistarmaður í Tromsfylki. Báðar koma þær að kennslu í listaskólum í Vesterålen. Á Skriðuklaustri hafa þær Liv og Karin æft nýja efnisskrá sem byggir á samtímatónlist og þjóðlögum frá báðum löndum. Á efnisskránni eru m.a. lög eftir Þorstein Hauksson og Sommerfeldt í bland við þekkt kvæði eins og Sofðu unga ástin mín, Snert hörpu mína og kvæði Olavs H. Hauge. Sunnudaginn 11. okt. kl. 15 munu þær frumflytja hið nýja prógramm á Skriðuklaustri. Þær munu einnig spila í kirkj- unni á Borgarfirði eystra á mánudagskvöld og að endingu á Gljúfrasteini í Mosfellssveit á laugardaginn. En þær munu ekki láta þar við sitja heldur verða þær með kynningu á kúltúrskólunum norsku fyrir Austfirðinga, í Gistihúsinu Egilsstöðum mánudaginn 12. okt. kl. 18.00 og í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði þriðjudaginn 13. okt. kl. 17.00 Ókeypis er á alla tónleikana og kynningarfundirnir opnir öllum sem áhuga hafa á að heyra um hvernig Norðmenn breyttu sínum tónlistaskólum í allsherjar listaskóla. Tónfundur Íslands og Noregs

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.