Austurglugginn


Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 12

Austurglugginn - 09.10.2009, Blaðsíða 12
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er eins og í mörgum skólum á Austurlandi komin hefð á að nota einn skóladag til útivistar og gönguferða. Þessir dagar hafa margþættan tilgang, svo sem að kynnast eigin getu og tak- mörkunum, njóta gönguferða í nátt- úrunni og kynnast þeim sem tóm- stundum, að ganga í hóp og fylgjast að og hlusta á fararstjóra og fara að fyrirmælum. Þá auka gönguferðir við náttúrufræðiþekkingu og vakin er athygli á náttúruperlum í nán- asta umhverfi. Líneik Anna Sævarsdóttir, skóla- stjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, segir að þegar fyrirhugaður göngu- dagur rann upp 23. september, hafi runnið tvær grímur á marga því snjór blasti við niður í miðjar fjalls- hlíðar. Veðurútlit var þó gott og því ákveðið að láta slag standa. Ungviðið gaf ekkert eftir Yngsta stig fór ásamt elstu nem- endum leikskólans upp með Skjólgilsánni og þeir fljótustu fóru aðeins lengra en upp á brún. Líneik Anna segir leikskólakrakkana ekki hafa gefið grunnskólanem- endunum neitt eftir á göngunni. Miðstigið gekk yfir á Stöðvarfjörð frá Hvammi. Nemendur úr 5., 6. og 7. bekk á Stöðvarfirði komu með í ferðina. Gangan gekk mjög vel, þó gengið hafi verið í snjó smá spöl. Við hópnum blöstu álftapör sem syntu um Hvammsvötnin speg- ilslétt, Steðjinn skartaði sínu feg- ursta og Súlurnar tóku vel á móti hópnum. Útisýni yfir utanverðan Fáskrúðsfjörðinn var líka frá- bært. Þegar komið var á Stöðvarfjörð beið matur í skólanum þar og eftir matinn var Steinasafn Petru heim- sótt. Þar var hópnum boðið upp á lummur og drykk. Unglingastigið gekk á Digratind, og óhætt er að segja að það sé fjallganga sem tekur á, enda fjallið meira en 800 metra hátt. Fararstjórar lögðu upp með það að hugsanlegt væri að fara ekki alla leið á fjallið ef gangan reyndist erfið. Skemmst er frá því að segja að allir hópar komust á topp- inn með glæsibrag. Það er svo sann- arlega flott útsýni yfir bæinn af tind- inum og margir bæjarbúar tóku fram kíkinn og horfðu á nemendur veifa. Líneik Anna segir þetta frábæran árangur og þegar leið á daginn hafi fótboltavöllurinn fyllst af börnum sem virtust ekki vitund þreytt eftir göngurnar. Ekki verri þó vökni ,,Margir nemendur kynntust því þennan dag hvernig er að vera blautur í fætur, en við það bjó nú íslenska þjóðin öldum saman og vonum við því að engum verði meint af,“ segir Líneik Anna og þakkar öllum sem aðstoðuð við göngudag- inn, bæði í ferðum og við að aka nemendum á milli staða. Þess má geta að nýtt húsnæði Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar verður vígt 14. október næstkomandi. Mynd/GF Göngudagur nemenda á F áskrúðsfirði og Stöðvarfirði var v iðburðaríkur Starfsstöðvar ÞNA: Vopnafjörður - Kaupvangur ✆ 473 1569 Egilsstaðir - Vonarland ✆ 471 2838 Reyðarfjörður - Molinn ✆ 471 2848 Neskaupstaður - VA ✆ 477 1838 Hornafjörður - Nýheimar ✆ 470 8030 * tna@tna.is - ̨www.tna.is Fjölmörg spennandi námskeið í boði! Kíktu á www.tna.is og skráðu þig á póstlistann okkar Tóta segir Upp, upp mín sál!

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.